Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2018, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 12.01.2018, Qupperneq 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@365.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@365.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 | Ruth Bergsdóttir, ruth@365.is, s. 512 5095, „Matti lét spá fyrir sér í Xining, borg í Norður-Kína. Flugum þangað frá Sjanghæ og tókum lest þaðan til Lhasa. Hann spáði að við myndum eignast strák á næstu mánuðum en þá var ég komin fjóra mánuði á leið með Bryndísi Millu og vissi að hún var stelpa, 50% rétt er nokkuð gott.“ „Ég var ein á ferð með Síberíuhrað- lestinni þegar ég fékk hugljómun og ákvað að stofna mitt eigið tölvuleikjafyrirtæki. Það heitir Parity, sem getur þýtt margt. Eitt af því er jafnræði og langtíma- markmiðið er að fá fleiri konur inn í tölvuleikjageirann,“ segir María Guðmundsdóttir þar sem við sitjum á skrifstofu hennar við Eiðistorg á köldum janúardegi. „Ég hafði unnið fyrir CCP Games í tólf ár en var ekki viss um hvort mig langaði að halda áfram að vinna innan tölvugeirans eða skipta algjörlega um starfsvett- vang. Maðurinn minn, Matthías Guðmundsson, hvatti mig til að láta gamlan draum rætast en frá því ég var skiptinemi í Rússlandi frá 1997-1998 hafði mig langað til að sjá meira af landinu. Börnin okkar, Bryndís Milla og Guð- mundur Högni, voru ekki nema þriggja ára og eins og hálfs árs en ég ákvað samt að slá til, enda þurfti ég á því að halda að hugsa minn gang. Ég gældi lengi við þá hug- mynd að flytja aftur til Rússlands en þessi ferð læknaði mig af þeim draumum og ég hætti að sjá landið í gullnum ljóma,“ segir María sem ferðaðist frá Moskvu til Mongólíu á þremur vikum. „Það er enn stríðsástand á Krím- skaga og andrúmsloftið í Rúss- landi er mjög sérkennilegt. Það er einhver harmur yfir þessu landi. Í lestinni hitti ég t.d. fólk sem var að flýja frá Úkraínu. Á leiðinni las ég bækur um start-up fyrir- tæki og velti framtíðinni fyrir mér en um leið og Síberíuhraðlestin var komin yfir landamærin til Mongólíu fóru hugmyndirnar að flæða og ég vissi hvað ég vildi gera,“ segir hún brosandi. „Það er eins og landið og ægifagurt landslagið hafi haft þessi áhrif á mig. Ferðin lokaði ákveðnum kafla í lífi mínu um leið og sá næsti hófst.“ Vil vera fyrirmynd Þegar heim var komið bauðst Maríu starf hjá Novomatic Lott- ery Solutions sem hún ákvað að þiggja en í vor ákvað hún að láta slag standa og stofnaði Parity formlega. „Þetta er algjörlega rétti tímapunkturinn fyrir mig og ég er hundrað prósent tilbúin í þetta verkefni. Allan þann tíma sem ég vann hjá þessum stóru fyrirtækj- um sá ég enga fjölgun á konum í tölvuleikjageiranum. Ef ein kona hætti var kannski önnur ráðin í staðinn en í heildina fjölgaði þeim ekki. Mörg tölvuleikjafyrirtæki verða þannig til að nokkrir vinir koma saman með hugmynd sem þeir hrinda síðan í framkvæmd. Þegar grunnvinnunni er lokið og fyrirtækið komið af stað koma konurnar til sögunnar. Ég vil breyta þessu og fá konurnar með allt frá byrjun. Í þessum geira, sem og öðrum, er mikilvægt að hafa fyrirmyndir og ég ákvað að vera öðrum konum fyrirmynd í staðinn fyrir að fara út úr faginu með alla mína reynslu og þekkingu,“ segir hún. Norn á sæskrímslaveiðum María hefur þegar fengið nokkra starfsmenn til liðs við Parity og vinna við tölvuleikinn Island of Winds er í fullum gangi. „Kynja- hlutfallið er næstum því jafnt, eða fimm konur og fjórir karlar. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is „Ég gældi lengi við þá hugmynd að flytja aftur til Rússlands en þessi ferð læknaði mig af þeim draumum og ég hætti að sjá landið í gullnum ljóma,” segir María sem var skiptinemi þarlendis á námsárunum. MYND/ERNIR Við skoðuðum hvað við þekkjum úr okkar umhverfi og ákváðum að vinna með sögur sem standa okkur nærri og það eru íslenskar þjóðsögur. Island of Wind er ævintýradrifinn leikur þar sem aðalpersónan er norn. Hennar hjálparhella er hrútur og þau lenda í ýmsum ævintýrum. Við leggjum mikið upp úr því að fanga íslenskt andrúmsloft með litapallett- unni og veðrabrigðum í leiknum. Sæskrímsli, skoffín, skuggabaldur og marbendill koma einnig við sögu,“ upplýsir María og bætir við að þótt leikurinn sé spennandi ævintýraheimur fléttist inn í hann teiknimynd með upplýsingum og sögum af göldrum sem raun- verulega áttu sér stað hér á landi á galdratímabilinu. „Ísafjarðar- djúpið er fyrirmyndin að útlitinu á leiknum, sem byrjar þar en færist svo um landið og miðin,“ segir hún leyndardómsfull. Með sorg í hjarta til Kína María kynntist eiginmanninum í vinnunni hjá CCP Games og segir það hafa verið skrifstofurómans. Þau hjónin fluttust til Sjanghæ í Kína á vegum fyrirtækisins árið 2008 en María segir dvölina þar hafa litast af sorg því stuttu áður en þau fluttu út misstu þau dóttur sína, Helenu, úr sjaldgæfum erfða- sjúkdómi. „Helena var rúmlega eins árs þegar hún dó. Hún var þriggja mánaða þegar hún greind- ist með ólæknandi hrörnunarsjúk- dóm. Líkurnar á að við eignumst saman barn með þennan sama sjúkdóm er einn á móti fjórum og því var fylgst mjög náið með mér þegar ég varð ófrísk að yngri dóttur okkar og sonurinn var búinn til í tilraunaglasi. Við segjum stundum í gríni að hann sé algjörlega sér- hannaður en staðreyndin er sú að hann var valinn þannig genalega séð að hann væri ekki með þennan erfðasjúkdóm,“ segir María alvarleg í bragði. Kína kom Maríu á óvart og hún segir Sjanghæ mjög sérstaka borg. „Við bjuggum í vestrænu hverfi sem hefði í raun getað verið hvar sem er í heiminum. Um leið og komið var út fyrir borgina blasti við mikil nátt- úrufegurð og allt annar heimur. Við urðum vör við að Kínverjar þurfa ekkert persónulegt rými eins og við Íslendingar, sem viljum ekki hafa neinn alveg ofan í okkur og það tók tíma að venjast því. Ég var mjög opin fyrir því að læra kínversku en komst fljótt að raun um að það er meira en að segja það. Orðin já og nei eru ekki til í kínversku heldur nota Kínverjar er eða er ekki í staðinn. Þess vegna verður oft misskilningur í samræðum við þá,“ segir María sem hefur alltaf átt auð- velt með að læra tungumál og státar af BA-gráðu í rússnesku. „Kínverskan er fremur tilviljunar- kennt tungumál þannig að hana þarf að læra algjörlega utanbókar. Svipuð tákn hafa oftar en ekki mjög mismunandi merkingu og ég er viss um að það er áhugavert fyrir listamenn að skoða þau vel. Ég get bjargað mér á kínversku en er alls ekki fullnuma í málinu,“ segir hún. Þau hjón fluttu heim árið 2011 og fljótlega fæddust börnin tvö. „Við ætluðum að fara út aftur en örlögin höguðu því þannig að við ákváðum að festa rætur á Íslandi og við sjáum ekki eftir að hafa flutt heim.“ Góð hugmynd ekki nóg María sér fram á spennandi tíma á næstunni en Island of Winds leikurinn verður prufukeyrður í febrúar. „Það er ekki nóg að fá góða hugmynd að tölvuleik heldur þarf fólk að vilja spila leikinn. Markmiðið með Island of Winds er að það taki ekki lengri tíma en fimm mínútur að skilja út á hvað leikurinn gengur. Ég er ekki sam- mála þeirri mýtu að konur spili ekki tölvuleiki heldur þurfa leikir líka að höfða til kvenna. Ég trúi að þessi leikur eigi eftir að höfða til stelpna jafnt sem stráka,“ segir María bjartsýn að lokum. „Í Síberíuhraðlestinni, ásamt Galínu og Galínu. Önnur þeirra var á leið frá Múrmansk til borgar austur af Irkutsk, 6-7 daga ferð til að kíkja til ættingjana. Þær voru mjög góðar við mig þessa tvo sólarhringa í lestinni.“ 88% af lesendum dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 18–49 ára lesa Fréttablaðið daglega. Lesa bara FBL 65% Lesa bæði FBL OG MBL 23% Lesa bara MBL 12% Allt sem þú þarft ... *Fréttablaðið og Morgunblaðið. Heimild : Prentmiðlamæling Gallup júl.-sept. 2017. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . JA N ÚA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 1 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E B 9 -4 8 8 0 1 E B 9 -4 7 4 4 1 E B 9 -4 6 0 8 1 E B 9 -4 4 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.