Fréttablaðið - 12.01.2018, Síða 28

Fréttablaðið - 12.01.2018, Síða 28
Elín Albertsdóttir elin@365.is Margrét býr í Berlín en leikur um þessar mundir í nýju leikriti Borgar- leikhússins, Himnaríki og helvíti. MYND/ANTON BRINK Margrét segir að það hafi verið af heilsufarsástæðum sem hún breytti mataræð- inu, fyrst með því að sleppa hveiti og sykri. „Ég hef verið meðvituð um mataræði frá því ég var tvítug. Ástæðan var alls kyns óþol sem ég fann fyrir. Ég ákvað að prófa að taka mataræðið í gegn og vegan er partur af því. Það er til dæmis mjög gott að taka hveiti og sykur stundum út. Ég finn gríðarmikinn mun á mér þegar ég tek mig til með mataræðið. Eftir að ég byrjaði að taka út ákveðnar matvörur var ein- falt að halda áfram og ég fékk góða leiðsögn í Jógasetrinu hjá Guðna Gunnarssyni,“ segir hún. „Ég var hjá honum þrisvar í viku og fór eftir matarprógrammi. Það var til dæmis ein vika sem eingöngu mátti borða hráfæði. Þegar maður tekur upp vegan matarstíl þarf að vera vel undirbúinn og meðvitaður. Það er átak að breyta mataræðinu og erfitt að gera það samhliða mik- illi vinnu. Í leiklistinni er maður mikið á hreyfingu og þarf mikla orku. Það er ekki hægt að lifa bara af banana eða epli heldur þarf góða næringu. Mér finnst mjög gott að fá þessa orku úr lárperum og baunum. Það kemur ekki í stað kjöts en gefur fyllingu auk þess að vera járn- og fituríkar fæðutegundir,“ segir Mar- grét og bætir við að hún hafi verið í Danmörku um jólin þar sem hún fann mjög góða bók sem fjallar um vegan mataræði um hátíðir. Bókin nefnist á dönsku Vegansk til højtider og fest. „Þessi bók bjargaði mér um jólin,“ segir hún. „Samt er ég ekki fanatísk og finnst að hver og einn eigi að finna það mataræði sem hentar. Stundum borða ég fisk ef ég kemst í hann,“ segir hún. Verndun náttúrunnar Margrét segist hafa verið mikil kjötæta áður fyrr en það hafi verið auðveldara en hún bjóst við að hætta að borða það. „Mér fannst heldur ekki svo erfitt að sleppa mjólkurvörum,“ segir hún en Margrét er dýraverndunarsinni og hefur barist fyrir verndun nátt- úru Íslands. Meðal annars hefur hún haldið tónleika og verið með uppákomur til að vekja athygli á stöðunni og framkvæmdum sem hún segir að hafi verið meira en lítið vafasamar út frá umhverfis- sjónarmiðum. „Ég er hlynnt umhverfisvitund og minni sóun. Einnig mætti plasta minna af matvörum,“ segir hún og bætir við að hana langi ekki til að snúa aftur frá vegan stílnum. „Vegan er ekki bara salat og það er hægt að finna fullt af flottum upp- skriftum á netinu. Ég nota til dæmis mikið síðu sem heitir Carrots and Flowers. Þar eru æðislegar upp- skriftir. Um tíma var ég orðin leið á mér og matseldinni og fór að kaupa grænmeti frá fyrirtæki í Berlín sem er svipað og Eldum rétt hér heima. Maður fékk frábærar uppskriftir með hráefninu og lærði margt skemmtilegt. Berlínarbúar eru mjög meðvitaðir um flokkun sorps og eru umhverfisvænir á margan hátt.“ Margrét hefur búið með manni sínum Agli Heiðari Antoni Pálssyni, prófessor og leikstjóra, í Berlín í fimm ár. Himnaríki og helvíti er sjötta sýningin sem Egill leikstýrir á síðasta ári en æfingar hófust í október. Margrét hefur hins vegar bæði verið að leika í leikhúsi og kvikmyndum. Fjársjóður í leikhúsi Í gærkvöldi var leikritið Himnaríki og helvíti frumsýnt en það er byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar eftir bókum hans, Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins. Þar fer Margrét með eitt hlutverkið og eiginmaður hennar leikstýrir. Árið 2016 leikstýrði Egill verkinu Hver er hræddur við Virginíu Woolf? í Borgarleikhús- inu og þar fór Margrét sömuleiðis með hlutverk. „Það er alltaf gott að koma heim og rifja upp íslenskuna með börnunum okkar tveimur. Þau fá alltaf aðgang að sínum gamla skóla.“ Margrét er ánægð með leikritið. „Það er ótrúlegur fjársjóður sem við eigum í þessum bókum hans Jóns Kalmans. Bækurnar hafa vakið verðskuldaða athygli bæði hér heima og erlendis. Þetta er stór og mikil sýning. Það er búið að vera fróðlegt að vinna þetta verk og koma því á svið og Borgarleikhúsið er frábær vinnustaður.“ Vegan uppskrift Að lokum gefur Margrét æðislega uppskrift með portobello sveppum sem hún fékk frá Carrots and Flowers og hentar fyrir tvo. Grísk gyros 2 portobello sveppir 2 msk. vegan worcestershire sósa 1 tsk. cumin 1 tsk. hlynsíróp Vegan lífsstíll gefur orku Margrét Vil- hjálmsdóttir leik- kona aðhyllist vegan lífsstíl. Hún telur sig fá aukna orku og vellíðan með breyttu mataræði. Mar- grét býr í Berlín en leikur um þessar mundir í leikritinu Himnaríki og hel- víti sem frumsýnt var í gær. ½ bolli Raw Hemp Tzatziki (upp- skrift hér fyrir neðan) 2 pítur Hrærið saman worcestershire sósu, cumin og hlynsírópi. Skerið svepp- ina í sneiðar og setjið í vökvann. Látið standa í 15 mínútur. Hitið pönnu og setjið örlítið af olíu eða vatni á hana. Steikið sveppina í 4-5 mínútur og hrærið af og til. Hitið pítubrauð á báðum hlið. Setjið sveppi og tzatziki í hverja pítu. Raw Vegan Tzatziki 1 bolli hampfræ 2-3 hvítlauksrif Safi úr tveimur sítrónum 2 msk. „heaping“ tahini 1 agúrka 1 msk. niðurskorin fersk minta 1 msk. niðurskorin fersk steinselja 1 msk. niðurskorið ferskt dill 4 msk. vatn Skerið agúrkuna mjög smátt. Setjið hampfræin, tahini, hvítlauk, sítrónusafa og vatn í matvinnsluvél. Ef blandan er of þykk má þynna hana með meira vatni. Setjið í skál og hærið kryddjurtum og agúrku saman við. Berið strax fram með sveppunum og brauðinu. 6 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . jA N úA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVeGANúAR Krydd fyrir VEGAN matreiðsluFiesta de Mexico hentar frábærlega á allt grænmeti. Arabískar nætur er sjö kryddablandan ættuð frá Líbanon í grænmetisrétti Reykt paprika bítur aðeins en er góð í marga grænmetisrétti. Eðalsteik og grillblandan er góð fyrir tofusteikina. Fiskikrydd er gott í grænmetis-súpur- og rétti. Lamb Islandia er frábært á alla kartöflurétti og á kjúklingabaunarétti. Kryddin frá okkur eru ómissandi í eldhúsið hjá ykkur Benda skal á að öll stök krydd henta í VEGAN matreiðslu s.s. origano, basilikum, steinselja og fleiri. Töfrakryddið og Ítalskt panini henta ekki í VEGAN matreiðslu því þau innihalda ostaduft. 1 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E B 9 -2 F D 0 1 E B 9 -2 E 9 4 1 E B 9 -2 D 5 8 1 E B 9 -2 C 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.