Fréttatíminn - 03.03.2017, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 3. MARS 2017
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Greiðslumiðlunarfyrir-tækið Borgun hefur meðal annars séð um greiðslukortafærslur fyrir viðskiptavini al-
þjóðlega fyrirtækisins EMerchant-
Pay sem er í eigu Íslendingsins
Jónasar Ragnarssonar. Fyrir tæp-
um fimm árum sleit greiðslumið-
lunarfyrirtækið Valitor viðskiptum
við fyrirtæki Jónasar vegna gagn-
rýni frá VISA International og flutti
fyrirtækið viðskipti sín yfir til Borg-
unar í kjölfarið. Fyrirtæki Jónasar
er umsvifamikið víða um Evrópu
og kemur fram að það sjái meðal
annars um greiðslukortafærslur
fyrir fjárhættuspil á netinu en ljóst
er út frá heimasíðu fyrirtækisins að
það getur aðstoðað fyrirtæki með
greiðsluinnlausnir í alls kyns starf-
semi. Jónas stofnaði fyrirtækið árið
2002 þegar hann var nýhættur sem
sparisjóðsstóri í Sparisjóði Hafnar-
fjarðar.
Fjármálaeftirlitið hefur kært
Borgun til embættis héraðssak-
sóknara, eins og komið hefur fram,
vegna viðskipta þess við þrettán
aðila þar sem Borgun kannaði ekki
bakgrunn þessara erlendu fyrir-
tækja. Nokkuð ljóst er að fyrirtæki
sem eru viðskiptavinir félags Jónas-
ar eru þar á meðal. Vanræksla fjár-
málafyrirtækja á því að fylgja lög-
um um varnir gegn peningaþvætti
getur verið refsiverð. Fjármála-
eftirlitið, í gegnum Sigurð G. Val-
geirsson upplýsingafulltrúa, neit-
ar að veita upplýsingar um hvaða
fyrirtæki það voru sem Fjármála-
eftirlitið setti út á að Borgun ætti í
viðskiptum við.
Jónas hefur ekki viljað veita
Fréttatímanum viðtal þrátt fyrir
beiðnir þar um í tölvupósti. Þegar
Fréttatíminn hringir á skrifstofu
EMerchantPay í London segir kon-
an sem svarar um Jónas. „Ég veit
ekki hvar hann er staðsettur og við
getum aðeins komist í samband
við hann í gegnum tölvupósti, því
miður.“
Tekjurnar sexfölduðust
Þegar Valitor hætti viðskiptum við
þetta fyrirtæki Jónasar árið 2012
hafði Andri Valur Hrólfsson nýver-
ið hætt sem framkvæmdastjóri al-
þjóðlausna hjá Valitor. Hann var því
framkvæmdastjóri hjá Valitor lung-
ann úr tímanum þegar eMerchant-
Pay var í viðskiptum við það. Andri
Valur situr nú í stjórn eMerchant-
Pay með Jónasi. Á meðan Andri Val-
ur stýrði alþjóðadeild Valitor jukust
tekjur félagsins af færsluhirðingu
og bendir á að þegar hann var hjá
Valitor hafi gilt mjög strangar reglur
hjá færsluhirðingarfyrirtækjum um
aðkomu að lyfsölu á netinu. „Klám
er auðvitað talsvert mikill hluti
af netviðskiptum. En ég veit ekki
nákvæmlega hvað eMerchantPay
gerir. Ég veit ekki til þess að þeir
snerti klámið en ég get ekki svarið
fyrir það. En þar fyrir utan finnst
mér þessi umræða dálítið fíflaleg.
Á Stöð 2 eru fjórar svæsnar klám-
rásir, alveg svæsnar. Ef þú ferð inn
á hótel á Íslandi er hvert eitt og ein-
asta með þrjár til fimm klámrás-
ir. Og það er ekkert elsku mamma
og verið að haldast í hendur í bíóí.
Klám er vaðandi úti um allt. Ég er
ekkert að verja klám en ég veit ekki
hvernig þetta er þarna hjá þeim,“
segir Andri Valur sem bætir við að-
spurður að hann sem stjórnarmað-
ur sé ekki meðvitaður um smáat-
riðin í rekstrinum. „Þetta er bara
alveg eins og með stjórnarmann í
Skeljungi: Hann veit ekki um alla
viðskiptavini sem kaupa bensín af
félaginu. Það eru bara almennar
mjög strangar siðareglur sem stjórn
eMerchantPay fer yfir og þar með
búið. Ekki nokkurt fyrirtæki vill
láta taka sig í bólinu.“
Aðspurður um hvaða skoðun
hann hafi á því almennt séð að
færslu hirðingarfyrirtæki sé milli-
liður í viðskiptum með klám á
netinu segir Andri Valur að hann
geri greinarmun á klámi og sóða-
klámi. „Sóðaklám er ógeðslegt og
það er auðvitað til á netinu. Ég á
við barnaklám til dæmis. Ef fyrir-
tæki er staðið að því að vera milli-
liður í viðskiptum með barnaklám
þá minnir mig að sektin sé 60 millj-
ónir, bara hjá VISA. Það er svoleiðis
sem er viðbjóður. Það þarf að passa
sig mjög vel í netviðskiptum og eftir
því sem ég best veit þá hefur eM-
erchantPay gert það.“
Viðskiptabanki og stærsti hluthafi
Íslandsbanki er stærsti hluthafi
Borgunar með meira en sextíu
prós enta hlut og er íslenska ríkið
eigandi bankans í gegnum banka-
sýslu ríkisins.
Edda Hermannsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Íslandsbanka, segir
að bankinn komi ekkert að rekstri
Borgunar og geti ekki veitt svör um
starfsemi þess. Aðspurð um hvort
Íslandsbanki sé viðskiptabanki
Borgunar, og þar með þátttakandi
í viðskiptum fyrirtækins við við-
skiptavini sína, segir Edda að hún
geti ekki svarað spurningum um
viðskiptavini bankans. Hins vegar
má nánast fullyrða að Íslandsbanki
sé viðskiptabanki Borgunar vegna
eignarhluta fyrirtækisins í félaginu.
Íslandsbanki hefur því óbeina að-
komu að viðskiptum Borgunar sem
viðskiptabanki og stærsti hluthafi
fyrirtækisins.
Haukur Oddsson, f ra m-
kvæmdastjóri Borgunar, hefur
ekki gefið Fréttatímanum færi á
viðtali. Viðar Þorkelsson, fram-
kvæmdastjóri Valitor, hefur heldur
ekki viljað ræða við blaðið.
Íslensku greiðslumiðlunarfyrirtækin Valitor
og Borgun hafa bæði verið með fyrirtæki í
viðskiptum sem VISA International hefur
gagnrýnt. FME hefur vísað máli Borgunar
til héraðssaksóknara vegna gruns um brot á
lögum um varnir gegn peningaþvætti. Eitt af
fyrirtækjunum sem átt hefur í viðskiptum við
Borgun er eMerchantPay sem er í eigu Jónasar
Ragnarssonar. Stjórnarmaður í fyrirtæki,
sem byggði upp alþjóðleg kredikortaviðskipti
Valitor, vill gera skýran greinarmun á net
viðskiptum með „klám“ og „sóðaklám“.
erlendis gríðarlega og sexfölduð-
ustu meðal annars frá árinu 2009
til 2011 þegar þær fóru upp í 14 millj-
arða króna eins og fjölmiðillinn
Stundin hefur sagt frá.
Í samtali við Fréttatímann seg-
ir Andri Valur að ábyrgðin á að
kanna bakgrunn fyrirtækjanna
liggi ekki hjá eMerchantPay held-
ur hjá færslu hirðingarfyrirtækinu
- ábyrgð fyrrnefnda fyrirtækis-
ins sé því engin. „Þetta gengur
þannig fyrir sig að einhverjir aðilar
sem vantar tækniþjónustu vegna
greiðslna á netinu hafa samband
við fyrirtæki eins og hjá Jónasi.
Fyrirtæki Jónasar hefur svo sam-
band við færsluhirðingaraðilann, í
þessu tilfelli Borgun. Það er svo al-
farið Borgunar að gera könnunina
á viðskiptamanninum og ákveða
hvort þeir taka viðskiptin eða ekki.
Borgun hefur aðgang að upplýs-
ingabönkum og öðru sem aðili eins
og eMerhantPay hefur ekki.“
Ólíkar gerðir kláms
En hvað er það í starfsemi fyr-
irtækja eins og eMerchantPay
sem eftirlitsaðilar eins og VISA
International fetta fingur út í? Er
það milliliður í viðskiptum með
klám á netinu, eða jafnvel lyfseð-
ilsskyld lyf. „Ég held að enginn
nema vitleysingur komi nálægt því
að selja lyf á netinu,“ segir Andri
Borgun tók við viðskiptum sem eMerchantPay hafði áður stundað í gegnum Valitor og áttu þátt í því að tekjur Valitor af
færsluhirðingu jukust mikið. Haukur Oddsson er framkvæmdastjóri Borgunar.
„Sóðaklám er ógeðslegt
og það er auðvitað
til á netinu. Ég á við
barnaklám til dæmis. Ef
fyrirtæki er staðið að því
að vera milliliður í við-
skiptum með barnaklám
þá minnir mig að sektin
sé 60 milljónir, bara hjá
VISA.“
Íslandsbanki er bæði viðskiptabanki
Borgunar og stærsti hluthafi fyrir-
tækisins þótt bankinn komi ekki að
rekstrinum með beinum hætti.
Bankinn nýtur því góðs af öllum
viðskiptum Borgunar, líka
þeirra sem orka tvímælis. Birna
Einarsdóttir er bankastjóri
Íslandsbanka.
„Sóðaklám er ógeðslegt“
Andri Valur Hrólfs
son segir að fær
sluhirðingu tengda
klámi vera stóra
tekjulind sumra
greiðslumiðlunar
fyrirtækja.
Einu sinni þótti ekkert sjálfsagðara en að bera
fram veislumat í hlaupi við ólíklegustu aðstæður.
Í dag vitum við betur. Það sama á við um tóbak.
Tóbak er tímaskekkja.
mottumars.is