Fréttatíminn - 03.03.2017, Blaðsíða 38
38 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 3. MARS 2017
Mangóbolla
sló í gegn
Það voru eflaust einhverjir sem
borðuðu yfir sig af rjómabollum á
bolludaginn, enda er það samfé-
lagslega viðurkennt þennan eina
dag á ári. En það eru ekki allir sem
leggja í rjómann og súkkulaðið og
kjósa að útbúa hollari útgáfu af
bollunum.
Hlédís Sveinsdóttir ákvað að
prófa sérlega skemmtilega útfær-
slu af bollum þetta árið en þær
gerast varla hollari. Bollan sjálf
var heilt mangó skorið í tvennt
og í stað rjóma og sultu setti hún
vatnsmelónu á milli. „Svo spændi
ég 70 prósent súkkulaði yfir og
dóttir mín var sjúk í þetta. Hún
fékk sér tvær,“ segir Hlédís, en það
er væntanlega vísbending um að
tilraunamennskan hafi heppnast
vel.
„Þetta var bara skyndihugdetta.
Ég átti bæði mangó og melónu
og datt þetta í hug. Ég er alltaf að
reyna að smita ekki vondum hefð-
um frá mér til dóttur minnar. Það
þarf ekki alltaf að vera beinharð-
ur sykur. Ekki það að við fengum
báðar bollu. Hún í leikskóla og ég í
vinnunni.“
Þessar bollur ætti að vera óhætt
að borða allan ársins hring án þess
að fá nokkuð samviskubit. | slr
Gómsæt, girnileg og meinholl.
Íslenskukennarinn
Guðjón Ragnar leik-
ur kennarann káta í
uppfærslu leikfélags
MR sem frumsýnd er
í dag. Guðjón segist
ekki vita til þess að
kennari hafi áður leik-
ið í með leikfélaginu
og er sáttur með
ráðahaginn.
Bryndís Silja Pálmadóttir
bryndis@frettatiminn.is
Leikfélag Menntaskólans í Reykjavík, Herranótt, hefur í gegnum tíðina sett upp fjölbreyttar leiksýn-ingar. Föstudaginn 3.
mars verður söngleikurinn West
Side Story frumsýndur. Það eru
þó ekki einungis nemendur sem
munu standa á sviðinu í Gamla
bíó heldur mun íslensku kennari
þeirra, Guðjón Ragnar Jónasson
einnig stíga á stokk sem kennarinn
káti. „Ég tók því vel þegar ég var
beðinn um að taka þátt en ég veit
ekki til þess að þetta hafi áður ver-
ið gert,“ segir Guðjón sem hefur
kennt í MR í átta ár. „Ég hef stund-
um kennt valáfanga sem heitir
Líf og leikhúsmenning og ég var
með einhverja leikræna tilburði
í tímum þannig þau sögðu að ég
yrði endilega að koma og leika.’’
Guðjón var að eigin sögn örlítið
hikandi við að koma og leika en
ákvað svo að slá til.
Sara Líf Sigsteinsdóttir formað-
ur Herranætur segir hugmyndin
um að fá kennara inn hafi komið
til í gríni en leikstjórinn hefði
svo bara tekið vel í þetta. „Okkur
datt Guðjón strax í hug því hann
er mjög hrifinn af Herranótt
og mætir á allar
sýningar og
svoleið-
is. Þetta
heldur,
heldur betur uppi
sýningunni og gefur henni nýjan
karakter,“ segir Sara.
„Ég er kátur kennari í sýn-
ingunni og ég er glaður að eðlis-
fari,’’ segir Guðjón, sáttur með
hlutverkið. Að sögn Söru eru
margir MR-ingar og gamlir nem-
endur Guðjóns spenntir að sjá
hann í hlutverkinu. Hún kveðst
hrifin af því að halda
áfram að fá kennara inn í
sýningar. Erfitt er að átta
sig á hvor eru ánægðari
með ráðahaginn, Guðjón
eða nemendurnir en Guð-
jón segir sjálfur sannan
heiður að fá að vera með
í sýningunni. Samband
nemenda og kennara er
öðruvísi í leikhúsinu og
bæði Sara og Guðjón eru
á því að það sé gaman að
kynnast á annan hátt. „Þetta er
mjög skemmtilegt og sýnir honum
líka hvað það er mikil vinna fyrir
nemendur að vera í Herranótt,“
segir Sara og bendir á að stund-
um aðstoði Guðjón nemendur
baksviðs ef próf eru nærri. Guðjón
dregur þó vissar línur, þrátt fyrir
að hitta krakkana á nær hverju
kvöldi þessa dagana. „Ég tek nú
ekki þátt í félagslífinu, þó að mér
sé alltaf boðið með,“segir Guðjón
og hlær dátt.
„Ég mæti bara þegar mér er sagt“
Guðjón kennir íslensku í MR og leikur kennarann káta í leikriti Herranætur West
Side Story. Mynd | Hari
Ég hef stundum kennt
valáfanga sem heitir
Líf og leikhúsmenning
og ég var með einhverja
leikræna tilburði í tím-
um þannig þau sögðu
að ég yrði endilega að
koma og leika.
Nú þegar mars er runninn upp förum við ef-
laust að sjá fleiri og fleiri herramönnum með
yfirvaraskegg bregða fyrir á götum bæjar-
ins. Það er vissulega einn og einn sem skart-
ar góðri mottu allan ársins hring, en margir
taka sig til í mars og leyfa skegginu á efri
vörinni að vaxa til að vekja athygli á Mottu-
mars, árlegu átakssverkefni Krabbameins-
félagsins, tileinkuðu baráttunni gegn krabba-
meini í körlum.
Sjálfur mottudagurinn verður haldinn hátíðlegur
10. mars næstkomandi og þá eru allir landsmenn,
karlar jafnt sem konur, hvattir til að leyfa karl-
mennskunni að njóta sín. Það eru ekki allir sem geta
safnað yfirvaraskeggi og því er um að gera að leyfa
ímyndunaraflinu að ráða för. Skörtum öllu mögu-
legu tengdu karlmannin-
um; fatnaði, höfuðfötum,
gerviskeggi eða öðru því
sem hægt er að grípa í.
Á heimasíðu Krabbeins-
félagsins er hægt að kaupa
ýmsa hluti sem hægt er að
skreyta sig mig og einnig
gjafavörur til styrktar fé-
laginu.
Mottumars-golfpungurinn er til að
mynda skemmtileg tækifærisgjöf fyrir golfarann.
Pungurinn inniheldur tvær golfkúlur og á honum
er hanki svo hægt er að hengja hann á golfpokann.
Pungurinn kostar litlar 2990 krónur og ættu því flest-
ir að geta pungað út fyrir honum. | slr
Pungur gegn
krabbameini
Mottumars er hafinn og
skeggvöxtur karlmanna eykst.
Sniðug gjöf
handa golfara
eða grínara.
Ljósmyndir geta átt sérstakan
stað í hugum fólks, minningar
sem festar hafa verið á filmu
sem gott er að horfa á stöku
sinnum. Sigurlaug Thorarensen
deilir með Fréttatímanum ljós-
mynd sem lýsir vetrinum vel.
Snjórinn sem heldur Reykjavík í
heljargreipum þessa dagana fer
varla framhjá neinum. Sumir taka
snjónum fagnandi, skella sér í
snjógallann og hlaupa út. Aðrir
bölva honum og vilja helst leggj-
ast í híði fram að vori. Flestir eru
hinsvegar akkúrat þarna mitt á
milli. Sigurlaug Thorarensen tón-
listar- og kaffigerðar kona smellti
af mynd sem lýsir snjónum vel og
deilir henni með
Fréttatímanum.
Hún tók myndina
eldsnemma á
sunnudagsmorgni
eftir að snjór hafði
fallið alla nóttina og
gripið Reykjavík í
mjúkt fangið á sér.
Á myndinni sést vel
hvernig fönnin hef-
ur tekið yfir borgina
og trén eru að sligast undan þung-
anum. „Hún lýsir bæði myrkrinu
og mögulegu skammdegisþung-
lyndinu en á sama tíma ljósinu og
léttleikanum í snjóþungri glugga-
sýninni,“ segir Sigurlaug sem
tók myndina út um glugga á
heimili sínu í miðbæ Reykja-
víkur.
„Mér finnst þannig vera á
myndinni ákveðnar and-
stæður.“ Svipuð augnablik og
Sigurlaug festi á filmu hafa
eflaust átt sér stað víða um
land í vikunni. Þegar lands-
menn risu úr rekkju, litu út
um gluggann og fundu fyrir
blendnum tilfinningum yfir snjó-
þyngslunum. | bsp
Augnablik úr Reykjavík Andstæður í Reykjavík.Mynd | Sigurlaug
Thorarensen
af öllum vetrarfatnaði 1-6 mars
Mikið úrval af úlpum-skóm-húfum og vettlingum