Fréttatíminn - 03.03.2017, Page 30
30 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 3. MARS 2017
Flemming Madsen smíðar
magnara með gömlu góðu
aðferðinni, með lömpum sem
magna upp mjúkan hljóm. Hann
gerir líka við gítarmagnara fyrir
fjölmarga íslenska tónlistarmenn,
sækir þá í Tónastöðina í Reykja-
vík og skilar þeim aftur til baka
eins og nýjum. Þess á milli kennir
Flemming ungu fólki á töfraheim
rafmagnsins við Fjölbrautaskól-
ann á Akranesi.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
„Það var árið 1988 sem ég hélt af
stað frá Kaupmannahöfn og fór
beint norður á Akureyri. Ég kom
hingað vegna hins kynsins, eins og
fleiri landar mínir hafa gert í gegn-
um tíðina, var að elta konu,“ segir
Flemming Madsen rafeindavirki og
kennari uppi á Skaga. „Þetta gekk
ansi skrautlega hjá mér fyrstu árin.
Það var ekki mikla vinnu að fá fyr-
ir mig á Akureyri, ég man að ég fór
í byggingarvinnu sem náði naum-
lega að borga húsaleiguna. Það var
kreppa þá á Íslandi eins og stund-
um gerist. Ég var auðvitað mállaus
í íslenskunni og með strákinn minn
með mér 10 ára gamlan og þetta var
ekkert sérlega bjart. Í félagsmála-
kerfinu á Akureyri var ég nú eigin-
lega bara hvattur til að fara aftur
heim til Danmerkur, en ég var nú
þrjóskari en það.“
Það birti til þegar Flemming fór
Hinn danski
Flemming Madsen
smíðar og lagar
rafmagnstæki,
einkum þau sem
snúa að tónlist.
Það eru að verða
komin þrjátíu ár
síðan hann kom
fyrst til Íslands.
Lífið er
lampamagnari
Innflytjandinn
að kenna. Fyrst var það grunnskóli
á Akureyri sem lenti í vandræð-
um með að manna í stöðu dönsku-
kennara og þrátt fyrir litla kennslu-
reynslu sló Flemming til. „Það gekk
nú bara sæmilega að kenna eldri
bekkjum í grunnskóla, þrátt fyr-
ir að ég hefði bara tekið að mér að
kenna einhver lítil tækjanámskeið í
vinnunni minni út í Danmörku. Síð-
an frétti ég af því að það gæti vantað
kennara í rafeindavirkjun á Akra-
nesi en það munaði minnstu að ég
hefði ekki einu sinni efni á því að
fara suður, slík voru blankheitin.
En þetta slapp allt saman fyrir horn
og ég var ráðinn á skömmum tíma í
Fjölbrautaskólann á Akranesi.“
Frá 1990 hefur Flemming sem-
sagt kennt rafeindavirkjun uppi á
Skaga og segir bæjarfélagið hafa
tekið vel á móti sér á sínum tíma.
„Hér kann ég vel við mig og hef
alltaf gert. Ég segi stundum að
Akranes sé kannski ekki fallegasti
bær landsins, en hér er besta fólk-
ið. Mér var tekið opnum örmum
og kynntist fljótlega stórum hópi
af góðu fólki. Skömmu eftir að ég
hóf störf við skólann hitti ég líka
konuna mína, sem auðvitað var að
kenna dönsku,“ segir Flemming og
hlær.
Í dag gerir hann við magnara
meðfram kennslunni og smíðar
líka forláta lampamagnara sem
gefa frá sér mjúkan hljóm. Flemm-
ing er á því að slíkir magnarar séu
eina vitið fyrir alvöru tónlistar-
áhugamenn. „Ég hef alltaf verið að
fikta við þetta, bæði í kennslunni
og utan við hana. Við þessa smíði
fær fólk góða tilfinningu fyrir hand-
verki og rafmagnshönnun og svo
hljóma góðir lampamagnarar bara
svo rosalega vel, þó að þetta sé dýrt
spaug og alltaf ríflegur hallarekstur
á þessari nýsmíði. Konan mín er
jafnvel farin að segja eftir mér: „Líf-
ið er lampamagnari,“ enda er ég bú-
inn að segja þetta svo lengi. Síðan
eru það viðgerðirnar fyrir Andrés
í Tónastöðinni á gítarmögnurum
og hljómborðum sem taka meiri
tíma en nýsmíðin, enda verður tón-
listin í landinu að hljóma vel,“ segir
Flemming Madsen.
Sjónmælingar eru okkar fag
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500