Fréttatíminn - 03.03.2017, Side 34
34 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 3. MARS 2017
Það eru eflaust fáir sem geta sagst
hafa ferðast í kringum hnöttinn í
síðustu viku en það gerðu félagarn-
ir Snorri Björnsson og Sveinn
Breki. Ferðin tók einungis 200
klukkustundir og er slíkt ferðalag
því líklega ekki fyrir marga. Þeir
félagar ferðuðust til átta gjörólíkra
landa þar sem þeir fengu smjörþef-
inn af menningunni áður en þeir
flugu á vit nýrra ævintýra. „Við
náðum samt alveg að gera fárán-
lega mikið á fáránlega litlum tíma
enda fórnuðum við svefninum,“
segir Snorri sem er á því að Hawaii
eigi stóran stað í hjarta sínu eftir
stutt stopp. „Við vorum þarna í sex
klukkutíma og við mættum bara
í eitt besta veður sem ég hef séð,“
segir hann.
Snorri segir að ferðalagið hafi
gengið stórslysalaust fyrir sig fyr-
ir utan eina seinkun á flugi sem
hafði í för með sér þyrluferð og
tvö týnd veski. „Við týndum báðir
veskjunum okkar en ég fann mitt
aftur, ef að ég hefði ekki fund-
ið það þá værum við ennþá á
Hawaii.“ Aðspurður mælir hann
þó ekki með því að hver sem er
stökkvi í slíkt ofur ferðalag nema,
kannski með kírópraktori með
í för enda er bakið ekkert í
sérstaklega góðu standi eftir
stanslaus flug. Snorri sökkti
sér þó strax aftur í vinnu eftir
heimkomuna og telur líklegt
að næsta frí verði frekar á sól-
arströnd. | bsp
Snapchat-konungurinn Snorri Björnsson og félagi hans Sveinn Breki eru komnir heim eftir átta daga ferð í kringum hnöttinn.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Það er draumur að ræt-ast, eftir að hafa bruggað heima í mörg ár og gert allskonar tilraunir, þá er þetta alveg frábært,“ segir
Ásta Ósk Hlöðversdóttir sem nýlega
var ráðin bruggmeistari Ölvisholts,
en hún hún er jafnframt fyrsta
konan sem gegnir starfi atvinnu-
bruggara á Íslandi.
Að sjálfsögðu hóf Ásta störf á
bjórdaginn, 1. mars og var á fullu að
læra á græjurnar þegar blaðamaður
náði tali af henni.
Ásta er enginn nýgræðingur í
bruggbransanum en hún hefur
bruggað bjór í frístundum í næst-
um tíu ár. Hún hefur setið í stjórn
Fágunar, áhugafólks um gerjun og
unnið til ýmissa verðlauna innan
bruggsamfélagsins. Þá stofnaði hún
hún/hann brugghús sem tók þátt í
Startup Reykjavík 2015.
„Þetta byrjaði bara þannig að ég
fór að hugsa út hvernig bjórinn væri
búinn til og fór að prófa mig áfram.
Þegar ég fékk fyrstu græjurnar þá
fannst mér bjór einfaldlega góður
og langaði til að búa til eftirlíkingar
af því sem var til. En þegar ég byrj-
aði að gera þetta sjálf þá fékk ég
virkilega ástríðu fyrir bjórnum og
fór að pæla í fleiri bjórstílum. Svo
fór ég að geta gert miklu betri bjóra
en ég fékk í ríkinu og á börunum, en
það var frekar auðvelt á þeim tíma,“
segir Ásta og skellir uppúr. Hún
vísar þar til þess að bjórúrvalið hafi
ekki endilega verið mjög fjölbreytt
hér á landi fyrir nokkrum árum. En
það hefur heldur betur breyst. „Nú
þegar ég fæ góðan bjór í hendurn-
ar, þá fer ég að hugsa hvernig ég
geti bætt hann og hvað ég vildi hafa
öðruvísi.“
Aðspurð segist hún ekki minnast
þess að hafa nokkurn tíma brugg-
að vondan bjór. „Ég hef aldrei búið
til ódrekkanlegan bjór. Hann hefur
verið misgóður og ekki virkað alveg
eins og ég bjóst við, en ég hef aldrei
þurft að hella niður bjór.“
Ásta segir það helst einkennandi
fyrir góðan bruggmeistara, að hann
hafi virkilega ástríðu fyrir bjór.
„Þegar ástríðan er til staðar þá fylgir
allt annað. Maður þarf reyndar líka
að vera mjög skipulagður og passa
upp á ýmis praktísk atriði.“
En bruggmeistarinn þarf líka að
vera duglegur að bragða á afurðinni
og smakka hana til. Ásta segir bjór-
drykkju því óhjákvæmilegan fylgi-
fisk starfsins. „Þá er maður samt að
smakka bjórinn frekar en að drekka
hann. Þetta er svolítið öðruvísi
drykkja. Maður þarf að passa allt sé
í góðu lagi í framleiðslunni, það er
bara hluti af starfslýsingunni. Þegar
verið er að þróa nýja bjóra þá þarf
að smakka margt og prófa ýmis-
legt,“ segir hún hlæjandi.
Hluti af starfs lýsingunni
að drekka bjór
Ásta Ósk Hlöðvers
dóttir er komin í
draumastarfið sem
bruggmeistari Ölvis
holts eftir að hafa
bruggað bjór heima
hjá sér í tæp tíu ár. Hún
hefur mikla ástríðu
fyrir miðinum og var
fljót að ná færni í að
brugga betri bjór en
hún gat keypt í ríkinu.
Mælir með kírópraktor
í hringferð um heiminn
Á þessum síðustu og verstu er
alltaf gott að gleðjast yfir góðu
gríni, sérstaklega þegar neikvæðn-
isöldur ríða reglulega yfir samfé-
lagsmiðla. Það er nefnilega alveg
ótrúlegt hvað fólk getur látið fara
í taugarnar á sér og fundið þörf
fyrir að tjá sig um þegar betra
er að sleppa því. Tuð og röfl á
netinu er nefnilega bara til að æra
óstöðugan. Facebook-hópurinn
Fyndna frænka er gott mótvægi
við neikvæðni og tuði á samfélags-
miðlum. Það getur jafnvel komið
verstu fýlupúkum og tuðurum í
gott skap að renna aðeins yfir inn-
leggin þar.
Hópurinn, sem telur tæplega 23
þúsund meðlimi, er aðeins ætlaður
konum og er tilgangur hans að létta
lund í hversdagslegu amstri.
Þar kennir ýmissa grasa, allt frá
gömlum og góðum bröndurum,
sem margir hafa eflaust heyrt áður,
upp í fyndin myndbönd af dýr-
um og tvírætt grín sem slær alltaf
í gegn. Tuðum minna og hlæjum
meira. | slr
Hlæjum meira á netinu
Fyndna frænka léttir
lundina í hversdags
legu amstri.
Það væru eflaust margir til í að starfa við að smakka bjór. Fyrir Ástu er það að
minnsta kosti algjör draumur. Mynd | Hari
Léttir sumarjakkar frá
stærðir 38 - 58
hollur kostur á 5 mín.
Plokkfiskur
HÖGGBORVÉL
PSB 500-RE, 500W
13mm patróna, 1,5 kg, taska
7.995kr.
74860500
Almennt verð: 9.895kr.
RAFHLÖÐUBORVÉL
PSR 14,4 LI-2, 2x2,5Ah
rafhlöður, 2 gírar, 40 Nm hám.
hersla, 10 herslustillingar,
taska, 1,14 kg
22.995kr.
74864116
Almennt verð: 27.995kr.
Tilboðsverð
Tilboðsverð
MULTISÖG
PMF 220 CF, 220W,
4x fylgihlutir, 1,1 kg, taska
15.995kr.
74862194
Almennt verð: 19.995kr.
Tilboðsverð
byko.is
TILBOÐ GILDA TIL 13.MARS