Fréttatíminn - 03.03.2017, Qupperneq 45

Fréttatíminn - 03.03.2017, Qupperneq 45
5 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2017 TÍSKA&SNYRTIVÖRUR LANGAR ÞIG AÐ LÆRA VARANLEGA FÖRÐUN? Leynist listamaður í þér ? Zirkonia ehf. býður upp á ítarleg námskeið í varanlegri förðun. Námskeið fara fram í frábærri aðstöðu fyrirtækisins. Kennari er Undína Sigmundsdóttir en hún hefur áratuga reynslu í framkvæmd og kennslu varanlegrar förðunar og hefur sótt námskeið hjá færustu sérfræðingum heims ásamt því að vera sjálf með alþjóðleg kennsluréttindi. Unnið er með vörur frá Nouveau Contour sem er eitt af fremstu merkjum á sviði varanlegrar förðunar. Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 555-0411 eða info@zirkonia.is Zirkonia ehf. | Suðurhrauni 1 | 210 Garðabær | Sími: 555-0411 | info@zirkonia.is | www.zirkonia.is Á námskeiðum hjá okkur lærir þú m.a. Augabrúnir Augu Varir • Skygging • Hairstroke • Microblade • Powder brows • Hybrid Pigmentation • Þétting augnhára • Augnlína með væng • Skygging • Breið augnlína • Varalínur • Skyggðar varir • Heillitun vara Næsta námskeið hefst föstudaginn 7. apríl Námskeiðið hjá Undínu var faglega uppsett. Varanleg förðun er það skemmtilegasta sem ég geri í dag og á ég Undínu allt að þakka þar. Ég mæli 100% með þessum námskeiðum Fanney Dögg Ólafsdóttir Meistari í snyrtifræði og eigandi snyrtistofunnar Líkami og sál Mosfellsbæ FYRIR EFTIR Varanleg fegurð Erla Björk og Sólveig Birna eru sérfræðingar í varanlegri förðun og reka saman stofuna Varanlega fegurð í Hafnarfirði. Unnið í samstarfi við Varanlega fegurð. Varanleg förðun nýtur sífellt meiri vinsælda. Þau efni og tækni sem notuð er til varanlegrar förðunar hafa þróast ört síð- ustu ár auk þess sem sérþekking fagaðila fer vaxandi. Erla Björk Stefánsdóttir og Sólveig Birna Gísladóttir, sérfræðingar hjá Var- anlegri fegurð sækja regulega námskeið erlendis til að bæta við þekkingu og kynna sér allt það nýjasta. Þær eru einnig umboðs- aðilar Swiss color á Íslandi og sóttu nýverið námskeið í höfuð- stöðvum þeirra í Austurríki. „Viðskiptavinir okkar sækjast helst eftir frísklegu og náttúru- legu útliti. Við notum microblade tækni til að gera hárstrokur sem þétta og móta augabrúnir, sem er mjög vinsælt. Til viðbótar er orðið mjög vinsælt að fá varanlega eyeliner línu og láta skerpa á náttúrulegum útlínum vara. Eins er mjög vinsælt að skyggja augabrúnirnar, sem oft er kallað powder brows og býr til smá skugga við neðri brúnina,“ segja Erla og Sólveig. „Við notum litina frá Swiss color sem eldast jafnt en fallega án litabreytinga, og mælum með skerpingu á 12-18 mánaða fresti til að viðhalda litnum.“ Litirnir frá Swiss color innihalda ekki nikkel eða járnoxíð og eru þar af leiðandi ekki ofnæmisvaldandi. „Varanleg förðun hentar flestum og þá sérstaklega fólki sem stundar líkamsrækt er að ganga í gegnum veikindi og eldri konum sem eiga erfitt með að farða sig,“ segja Erla og Sólveig. Fyrir hverja meðferð er farið vel yfir alla þætti með viðskiptavininum í notalegu umhverfi. „Við höfum mikla ánægju af þessu starfi og vöndum okkur við að uppfylla væntingar viðskiptavina,“ segja Erla og Sólveig. Jafnframt þjónusta þær aðra sérfæðinga í varanlegri förðun með námskeiðum fyrir þá sem vilja bæta við sig þekkingu. Auk þess geta sérfræðingar nálgast hjá þeim allt sem nauðsynlegt er til að gera varanlega förðun. Allar upplýsingar er að finna hjá Varanlegri fegurð í Hafnarfirði, Fjarðargötu 19, sími 565 6767 og á Facebook síðunni Varanleg fegurð. Erla Björk Stefánsdóttir er förðunarmeistari, naglameistari og sérfræðingur í varanlegri förðun. Hún rak Naglameistarann í mörg ár. Sólveig Birna Gísladóttir er förðunarmeistari og sérfræðingur í varanlegri förðun. Hún rak áður Airbrush & Makeup Gallery. Þær eiga og reka saman Varanlega fegurð í Hafnarfirði. Augabrúnir fylltar með microblade tækni og náttúrlegum lit frá Swiss Color.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.