Fréttatíminn - 03.03.2017, Síða 48
Góð hreinsun eftir farða
Eftir að búið er að hreinsa farðann af andlitinu þarf að þvo andlitið vel.
Margir telja nóg að nota hreinsiklút, en það þarf meira til að ná öllum
farða af andlitinu, ásamt óhreinindum eins og svita, mengun úr and-
rúmsloftinu og fleira. Því hreinna sem andlitið er því betur situr farðinn
á þegar andlitið er farðað.
Fyrst þarf að hreinsa allan farða af. Til að ná augnmálningu af skaltu
væta bómullarhnoðra með augnfarðahreinsi sem inniheldur olíu og
þrýsta varlega á augnlokin. Bíddu í 10 sekúndur áður en þú þurrkar
málninguna af, til að leyfa maskara og eyeliner að leysast upp. Notaðu
hreinsiklúta eða bómull með andlitsvatni til að hreinsa afganginn af
farðanum af.
Bleyttu andlitið og berðu hreinsimjólk á andlitið með fingurgómun-
um. Byrjaðu við munnvikin og dragðu fingurna yfir nefið, upp yfir ennið,
kringum augun, yfir kinnar og niður að höku. Gerðu þetta í tvær mín-
útur til að ná vel allri fitu og óhreinindum af andlitinu. Hreinsaðu með
volgu vatni. Þurrkaðu andlitið með hreinu handklæði, án þess að nudda
andlitið.
Innan nokkurra mínútna skaltu bera þau krem og serum sem þú notar
á andlitið, á meðan húðin er enn rök og opin.
Gættu þess að þrífa allan farða af áður en þú ferð í líkamsræktina.
Annars er hætta á því að þú nuddir farða inn um opnar svitaholur, sem
veldur útbrotum.
Hreint andlit. Eftir að farðinn er fjarlægður þarf að þvo andlitið vel.
Bi-Facil augnhreinsir
frá Lancôme
Fjarlægir allar gerðir augnfarða, einnig
vatnsheldan. Hreinsar á mildan hátt og húðin
umhverfis augun verður mjúk. Einstaklega
góður hreinsir fyrir viðkvæm augu og
notendur augnlinsa.
Biosource
micellar water
frá Biotherm
Ferskt hreinsivatn fyrir andlit og augu.
Fljótlegt og þægilegt í notkun. Hreinsar
vel af farða og önnur óhreinindi úr
húðinni frá umhverfinu.
Top Secrets
augnfarðahreinsir
frá YSL
Hreinsir sem virkar fyrir augu og varir.
Hreinsirinn leysir upp augnfarða og
varaliti á mjög mildan máta, jafnvel
vatsheldan og long lasting formúlur.
Hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim
allra viðkvæmustu.
Biosource total
renew oil frá
Biotherm
Nærandi blanda af náttúrulegum
olíum sem næra og lagfæra húðina
meðan húðin er hreinsuð. Olía sem
umbreytist í froðu og hreinsar upp
öll óhreinindi og mengun.
Hentar fyrir augnsvæði og andlit.
Biocils
Water proof
frá Biotherm
Augnfarðahreinsir sem fjarlægir
vatnsheldan farða. Ein létt stroka og
farðinn er farinn af augunum.
Hentar mjög vel fyrir viðkvæma húð.
Ilmandi fersk og hrein húð
Biosource Balm-to-oil
frá Biotherm
Hreinsikrem
fyrir andlit og
augu, fjarlægir
allan farða. Er
rakagefandi og
húðin verður
silkimjúk og ljómar.
8 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2017TÍSKA&SNYRTIVÖRUR
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM Á FRÁBÆRU VERÐI
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
STÆRÐIR 14-32 EÐA 42-58