Fréttatíminn - 10.02.2017, Side 11
| 11FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. febrúar 2017
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
TAKK FYRIR TRAUSTIÐ
Vínbúðin fékk hæstu einkunn í flokki smávöruverslana frá ánægðum
viðskiptavinum og var í þriðja sæti yfir öll fyrirtæki í Íslensku ánægjuvoginni.
Starfsfólk í 50 Vínbúðum víðsvegar um landið er stolt af árangrinum
og þakkar traustið. Við erum staðráðin í að halda áfram að gera okkar
besta í þjónustu og samfélagslegri ábyrgð.
VIÐSKIPTAVINIR OKKAR GÁFU VÍNBÚÐINNI TOPPEINKUNN
stjóra Prima, vegna framkvæmd-
anna, en án árangurs.
„Lóðareigandi á Laugavegi 4-6
kom hingað í janúar í fyrra, og sagði
okkur að það yrði ónæði vegna
framkvæmda í 2-3 mánuði. Ónæðið
stendur enn, ári síðar,“ segir Hörð-
ur. „Við þurftum að bregða á það ráð
að kaupa hljóðeinangrandi eyrna-
hlífar til að geta unnið í friði. Ferða-
menn hringja á skrifstofuna okkar
allan daginn og stundum greinum
við ekki orðaskil vegna hávaðans.“
Í vikunni fékk Hörður sig
fullsaddann þegar hann tók eftir
því að starfsmenn Prima voru að
mölva vegg á húsi hans, til að eiga
auðveldara með að losa rusl frá
byggingasvæðinu. Hann fullyrðir
að framkvæmdirnar stangist á við
deiliskipulag á svæðinu og hefur
leitað til byggingafulltrúa borgar-
innar með erindið.
Upplifum þetta sem ofbeldi
Í lok síðasta árs veittu borgarfull-
trúar sérstaka heimild til að loka
Laugaveginum tímabundið, svo
verktakinn gæti athafnað sig bet-
ur og verkið gengi hraðar fyrir sig.
„Þetta er búið að taka alltof langan
tíma og allir þarna í kring eru orðn-
ir langþreyttir,“ sagði Hildur Sverr-
isdóttir, Sjálfstæðisflokki, við Frétta-
tímann í október.
Morgunblaðið fjallaði einnig um
reiði nágrannanna. „Við upplifum
þetta sem ofbeldi,“ sagði Sigurveig
Káradóttir, sem rekur Matarkistuna
nálægt framkvæmdunum. Odd ný
Guðmunds dótt ir, rekstr ar stjóri
Mokka-kaff s, sagði sal inn oft vera
tóm an þar sem viðskipta vin ir þyldu
ekki hávaðan af fram kvæmd un um.
Anna María Svein björns dótt ir, gull-
smiður, sag ðist hafa mælt hávað-
an í hundrað desi bel um og notaði
eyrna hlíf ar í vinn unni.
Skrautlegur ferill að baki
Mennirnir að baki Prima ehf. eiga
afar skrautlegan feril að baki. Fyr-
irtækið hefur aukið umsvif sín á
undanförnu ári og staðið í hverri
stórframkvæmdinni á fætur annarri
í miðbænum. En fyrirtækið kom
fram á sjónarsviðið þegar starfsemi
Brotafls var stöðvuð af yfirvöldum
í fyrra.
Þá var forsprakki Brotaf ls,
Sigurjón G. Halldórsson, hnepptur í
gæsluvarðhald, ásamt sambýliskonu
sinni og tengdasyni. Var hann grun-
aður um umfangsmikil skatta- og
auðgunarlagabrot sem enn eru til
rannsóknar hjá Héraðssaksóknara.
Við húsleitir fannst einnig kanna-
bis og verulegar upphæðir í reiðu-
fé. Handtökurnar voru hluti af
rassíu yfirvalda gegn skattsvikum í
byggingabransanum.
Við nánari skoðun leist lögreglu
ekki á aðstæður sem starfsmönnum
Brotafls var boðið uppá. Þeir voru
nánast allir frá Austur-Evrópulönd-
um og leigðu herbergi af vinnuveit-
endum sínum í nöturlegu iðnað-
arhúsnæði, meðal annars við
Funahöfða í Reykjavík. Fjölmargir
starfsmenn bjuggu þar saman og
höfðu óljósar hugmyndir um hver
laun og réttur þeirra væri.
Tvisvar mansalsrannsóknir
Þegar Fréttatímann bar að garði
í Funahöfða í fyrra hafði raf-
magni hússins verið lokað vegna
vangreiddra reikninga. Mennirn-
ir sögðust greiða fimmtíu þúsund
krónur á mánuði fyrir herbergi,
en leigan væri dregin af launum
þeirra um hver mánaðamót. Þeir
áttu því allt sitt undir vinnuveit-
endum sínum, vinnu, laun og hús-
næði. Lögregla hóf rannsókn á því
hvort um mansal væri að ræða.
Eftir viðtöl við starfsmennina taldi
lögregla að þrátt fyrir nöturlegar
aðstæður þeirra, væru mennirnir
frjálsir ferða sinna. Því var horfið
frá því að ákæra fyrir mansal.
Sigurjón G. Halldórsson hafði
áður verið ákærður og setið í
gæsluvarðhaldi vegna gruns um
aðild að mansalsmáli. Þó að hann
hafi ekki verið dæmdur til refs-
ingar var ljóst að hann bjó yfir
mikilvægum upplýsingum um
málið. Fimm litháískir menn voru
árið 2010 dæmdir í Hæstarétti fyrir
þaulskipulögð brot gegn litháískri
konu sem þeir fluttu til Íslands í
þeim tilgangi að láta hana stunda
vændi. Sigurjón var vinnuveitandi
fjögurra þeirra sem hlutu dóma en
hann flæktist sjálfur inn í málið
með ýmsum hætti.
Sigurjón var sá eini af hinum
ákærðu sem ekki var sakfelldur
fyrir aðild að málinu. Hann höfð-
aði síðar mál gegn ríkinu og krafð-
ist skaðabóta vegna miskans sem
hann taldi sig hafa orðið fyrir, með-
al annars í gæsluvarðhaldi. Dómar-
ar komust að því að réttmætt hefði
verið að dæma hann í gæsluvarð-
hald vegna þeirrar vitneskju sem
hann hafði um málið. Eins og sést er mikið nábýli í bakgarði við Laugaveg 4-6. Mynd | Hari
„Ferðamenn hringja á
skrifstofuna okkar allan
daginn og stundum
greinum við ekki orðaskil
vegna hávaðans.“