Fréttatíminn - 10.02.2017, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 10.02.2017, Blaðsíða 38
6 FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2017NETVERSLANIR Tuttugu ár í próteinbransanum Ókeypis glaðningur með hverri sendingu Unnið í samstarfi við Fitnesssport Við höfum verið með net-verslunina fitnesssport.is í gangi 5 ár og hún hefur stækkað með hverjum deg- inum. Okkar viðskiptavinir kunna vel að meta að geta skoðað vörurn- ar á netinu og svo fengið vörurnar sendar til sín,“ segir Svavar Jó- hannsson, eigandi Fitness Sport. Allt fyrir heimaræktina Á fitnesssport.is er breitt úrval fæðubótarefna, próteina, kreatína og orkudrykkja sem henta jafnt hin- um almenna heilsuræktariðkanda og þeim sem lengra eru komnir í. „Svo höfum við líka verið að auka úrvalið af heilsutengdum matvæl- um og bjóðum nú upp á hnetusmjör, krydd, kaloríusnauðar sósur og próteinbættan hafragraut svo eitt- hvað sé nefnt. Fjölmargir aðhyllast líka Vegan lífsstílinn og við erum með orkustykki sem henta því mataræði mjög vel. Svo höfum við boðið upp á mikið úrval af vörum fyrir ræktina eins og t.d. úln- liðsvafninga, grifflur og belti og að sjálfsgöðu alls konar vatnsbrúsa, hristibrúsa og þess háttar vörur,“ segir Svavar og bætir við að einnig sé hægt að fá lyftingabekki, jóga- dýnur og lítil handlóð ef ætlunin er að koma sér upp æfingaaðstöðu heima. Kaupauki með hverri sendingu Fitness Sport hefur lagt mikið upp úr því að setja prufur af nýjum vör- um með í sendingarnar. „Við eigum oft alls kyns sýnishornaskammta af nýjum vörum og við setjum alltaf 4-5 skammta með í hvern pakka, vörur sem við viljum kynna fyrir fólki. Okkar viðskiptavinir hafa verið virkilega ánægðir með þenn- an kaupauka, enda eru þeir að fá kannski 2.000 króna virði af vörum frítt með hverri pöntun,“ segir Svav- ar og leggur áherslu að þetta sé alltaf í gangi. Prótein sem hentar öllum Ein af vinsælustu vörunum hjá Fitness Sport er mysupróteinið Nectar sem hefur verið vinsælasta próteinið á Íslandi undanfarin ár. „Ástæðan fyrir því að það er svona vinsælt er að það er eina próteinið sem er algerlega kolvetna- og fitu- laust, glútenfrítt og laktósafrítt. Það er líka laust við aspartam og er yfirhöfuð eitt besta prótein sem völ er á. Við erum með fjölmargar gerð- ir af próteini og þetta er það eina sem hentar öllum og líka þeim sem eru með einhvers konar fæðuóþol,“ segir Svavar. Hollt og gott próteinstykki Mörgum finnst ákaflega þægilegt að grípa sér próteinstykki þegar þeir eru á ferðinni en því miður eru þau sum uppfull af sykri eða öðr- um óæskilegum efnum. Fitness Sport flytur inn og dreifir One próteinstykkjunum sem er vinsælasta einstaka fæðubót- arefnið á Íslandi í dag. Þetta eru lágkolvetnapróteinstykki sem eru sykurlaus og ákaflega bragðgóð. „Þetta er raunar fyrsta stykkið sem er bæði hollt og bragðgott en það fer yfirleitt ekki saman,“ segir Svavar og hlær. „Pre-workout“ virkar Fólk sem hreyfir sig reglulega fær sér í flestum tilfellum eitthvað fyrir æfingu, svokallað „pre-workout“ sem inniheldur koffein, kreatín og fleiri innihaldsefni sem gera það að verkum að þú ert orkumeiri og öflugri á æfingunni. „Við erum með margar tegundir en vinsælu- stu vörurnar í þeim flokki heita C4 og Assault. Þessi Pre Workout efni eru þau vinælustu í heiminum í dag vegna þess að þau henta öllum. Jafnt þeim sem lyfta lóðum og þeim sem spila fótbolta og allt þar á milli. Íslendingar vinna myrkranna á milli og flestir eru að reyna fara fyrir eða eftir vinnu á æfingar og þá vantar oft eitthvert spark í rassinn til að koma sér af stað. Þessi efni gefa þessa aukaorku sem marga vantar til gera æfingarnar árangursríkar.“ Reynslan er dýrmæt En úrvalið hverfist síður en svo einungis um þá sem stunda lyft- ingar eða boltaíþróttir! Nýlega fékk Fitness Sport umboð fyrir merki sem heitir High5 sem er stærsta merki í Evrópu með fæðubótarefni fyrir hlaupa- og hjólreiðafólk og einnig fyrir þá sem stunda fjallgöngur og aðra útivist. Reynslan sem Fitness Sport hefur öðlast í gegnum tíð- ina skilar sér í því gæðaúrvali sem raun ber vitni. „Við erum með þeim reynslumestu í þess- um bransa hér á Íslandi og eigum einmitt 20 ára afmæli í ár.“ ONE próteinstykkin eru vinsælasta einstaka fæðubótarefnið á Íslandi. Þau eru kolvetnasnauð en bragðgóð sem er sjaldgæf blanda. C4 er öflugt Pre-Workout fæðubótarefni Nectar próteinið er vinsælasta prótein landsins. Það er laust við kolvetni, fitu, glúten og laktósa. Svavar Jóhannsson, eigandi Fitness Sport sem á 20 ára afmæli í ár.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.