Fréttatíminn - 10.02.2017, Blaðsíða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. febrúar 2017
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Ég hugsaði með mér, guð minn góður, af hverju get ég ekki bara verið með mynd á vegg eins og aðrir. Af hverju þarf
ég alltaf að vera með eitthvað
svona ógeðslega skrýtið,“ segir
Elma Karen Sigþórsdóttir sem var
að útskrifast úr Ljósmyndaskólan
um og ákvað að fara nokkuð hefð
bunda leið í lokaverkefninu sínu
en sýning á verkum útskriftar
nemanna stendur nú yfir í Lækn
ingaminjasafninu á Seltjarnarnesi.
Elma, sem er fertug þriggja
barna móðir, segir sína eigin sögu
í verkinu. Sögu af þrúgandi upp
eldi og djúpstæðum áföllum sem
hafa mótað allt líf hennar. Meðal
annars er um að ræða ágengar ljós
myndir og brot úr læknaskýrslum
þar sem fram koma mjög persónu
legar upplýsingar um andleg og lík
amleg veikindi hennar.
Markmið hennar með verkinu er
að sýna hvernig hægt er að nota
ljósmyndaformið á mismunandi
hátt til að skapa list. En hún er ekki
spennt fyrir hefbundum uppstillt
Elma Karen fór óhefðbunda leið í lokaverkefni sínu í Ljósmynda-
skólanum, en hún ákvað að segja sína eigin sögu. Segja frá áföllum
sem hún hefur orðið fyrir, andlegum og líkamlegum veikindum og
kynferðisofbeldi. Í verkið notar hún meðal annars ágengar ljósmyndir
og brot úr læknaskýrslum. Hún óttaðist að upplifa sig sem annars flokks
með því að opna sig með þessum hætti, en sá ótti var óþarfur.
um ljósmyndum
sem teknar eru
upp í stúdíói.
Hún er skapandi
og fer gjarnan
ótroðnar slóðir.
Það er ekki endi
lega ásetningur
hennar, það ger
ist bara.
Endurgerði
áverka eftir
nauðgun
Ein ljósmyndin
í verkinu sýnir
ber kvenmannsbrjóst alsett bitsár
um en konan á myndinni hefur
augljóslega orðið fyrir einhvers
konar ofbeldi. Þó að myndin sé
sviðsett er hún byggð á raunveru
legri reynslu Elmu af nauðgun sem
hún varð fyrir þegar hún var 23
ára. „Þetta er eitt af því sem gerist
þegar konur verða fyrir kynferðis
ofbeldi,“ segir hún hreinskilin en
örlítið varfærnislega. „Ég endur
gerði áverkana sem ég varð fyrir,
eins og þeir eru í minningunni. Ég
er ekki með nein gögn um þetta í
höndunum lengur, því ég eyðilagði
þau. Þetta voru einu gögnin sem ég
gat ekki haldið upp á. Mér fannst
þetta svo ömurleg lesning.“
Það var kunningi hennar sem
beitti hana ofbeldinu. Elma kærði
manninn til lögreglu, en málið var
fellt niður. Að hennar sögn var
umræddur maður vel tengdur inn
í rannsóknarlögregluna, án þess
þó að hafa verið lögreglumaður.
„Ég upplifði það rosalega fljótt
að ég hefði aldrei átt að kæra
nauðg un. Ég hefði átt að kæra lík
amsárás. Ég hugsa að það hefði
verið tekið miklu harðar á því.
Ég upplifði mig bara sem enn eitt
nauðgunarmálið. Enn eitt fórn
arlambið. En það er langt síðan og
ég veit að þetta er ekki svona í dag.
Ef þetta hefði gerst í dag hefði mál
ið líklega ekki verið látið falla nið
ur, enda var það mjög borðleggj
andi og sönnunargögnin skýr.
Þetta er eitt af því sem gerist þegar
kona verður fyrir kynferðisofbeldi
Elma varð fyrir kynferðisofbeldi þegar hún var 23 ára og endurgerði áverkana fyrir lokaverkefnið.
Elma var með fordóma
gagnvart fólki eins og sér
og hefur þurft að yfirstíga
þá með ýmsum hætti.
Mynd | Atli Már Hafsteinsson
Sögurnar sem Elma
segir eru ekki bara
sögurnar henn-
ar, heldur sögur
margra annarra.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfjanna. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf
á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á wwww.serlyfjaskra.is
Fyrir þig í Lyfju
Verð: 1.506 kr.
Verð áður: 1.883 kr.
Verð: 537 kr.
Verð áður: 671 kr.
Naso-ratiopharm
Nefúði við nefstíflu, t.d. vegna kvefs.
Nasofan
Bólgueyðandi steri í nefúða,
- við ofnæmi.
fluticasonprópíónat
50 µg/sk – 60 skammtar
xylometazolinhýdróklóríð.
0,5 og 1 mg/ml – 10 ml
Nefstífla
Nefrennsli
Kláði í nefi
Hnerri
afsláttur
Gildir út f
ebrúar
20 %