Fréttatíminn - 10.02.2017, Blaðsíða 16
Innflytjandinn
Lærði að tefla í Alexandríu
Skákmeistarinn og leikskólakennarinn Omar Salama hefur búið á Íslandi í tólf ár og er hrifnastur af veðrinu.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Íslendingar eru ekki vanir að hugsa mjög jákvætt um veðrið en fyrir mér er veðrið og loftgæðin hér eitt það besta við landið,“ segir skákmað
urinn og leikskólakennarinn Omar
Salama. Omar er frá Egyptalandi en
hefur búið hér á landi síðan hann
var ráðinn þjálfari íslenska lands
liðsins í skák árið 2005.
Omar eyddi fyrstu árum ævinnar
við Miðjarðarhafið, hjá móður sinni
í Alexandríu, en frá níu ára aldri
hjá föður sínum í Kairó. „Ég bjó í
Kairo alla mína skólagöngu, alveg
þangað til ég flutti til Íslands. Þegar
maður er vanur því að búa í heitri
og mengaðri borg, en kemur svo
hingað þá er munurinn mjög mikill.
Hér er svo gott að fara út úr húsi og
bara anda. Hreint loft og ferskt vatn
er það besta sem við eigum.“
Það var í Alexandríu sem Omar
byrjaði að tefla undir handleiðslu
móðurbróður síns sem var þjálfari
egypska landsliðsins í skák. Skák
hæfileikar Omars leyndu sér
ekki og þó að faðir hans væri
ekki hrifinn af því að Omar legði
íþróttina fyrir sig byrjaði hann
að keppa í henni og kenna yngri
skákmönnum þegar hann varð ung
lingur.
„Pabbi vildi aldrei vita neitt af því
sem ég var að gera í skákinni, nema
þegar ég vann meistarmót allra há
skóla í Egyptalandi og svo meist
aramót allra háskóla Arabalanda,
þá var hann ánægður. Öllu öðru
var hann á móti. Hann var mjög
hissa þegar ég ákvað að flytja til
Íslands og gerast þjálfari þar, og
öll fjölskyldan til að byrja með,“
segir Omar en hann fékk boð um
að verða landsliðsþjálfari Íslands
þegar hann var tuttugu og fjögurra
ára. Þá var Omar orðinn landsliðs
þjálfari Egyptalands og hafði nýlega
komist í heimspressuna fyrir að
vera þjálfari nýkrýnds stórmeistara
ungra kvenna í skák, sem var ekki
nema ellefu ára gömul.
„Hún varð mjög þekkt og ég líka
þar sem ég var einkaþjálfarinn
hennar og þá var haft samband við
mig frá Íslandi. Ég vissi ekkert um
landið en þáði að koma í heimsókn
og skoða mig um þó að ég væri
dálítið hræddur við að ferðast til
Evrópu, því þetta var stuttu eftir
2001. En ég fann ekki fyrir neinni
mismunun á Íslandi og líkaði strax
vel hérna. Ég ákvað að taka boðinu
og hef verið hér meira og minna
siðan. Mér finnst ég vera 100% Ís
lendingur í dag.“
Omar er hættur að þjálfa lands
liðið en situr í stjórn Skáksam
bandsins og er formaður dómara
nefndar á Íslandi og í Alþjóðlega
skáksambandinu, Fide. Hann var
yfirdómari á Evrópumeistaramóti
landsliða í Laugardagshöllinni árið
2015, sem var stærsti skákviðburð
ur hér á landi síðan Fischer og Spas
skí háðu einvígi sitt árið 1970. Omar
ferðast mikið vegna vinnu sinnar
sem dómari en vinnur auk þess við
þýðingar, kennir arabísku í Háskóla
Íslands, les bækur á arabísku fyrir
Hljóðbókasafnið og er leikskóla
kennari á Laufásborg. „Ég hef líka
verið að vinna óformlega með önn
ur landslið, eins og í Tógó, Namib
íu og Úganda. En það eru alltaf
stuttar vinnuferðir, núna vinn ég
aðallega við að dæma og á Laufás
borg. Og svo á ég líka tvö börn sem
ég vil eyða öllum mínum tíma með.
Það er nóg að gera,“ segir hann og
hlær. „Ég byrjaði að kenna skák
fyrir Hjallastefnuna árið 2008 en
er í fullu starfi á Laufásborg í dag.
Þetta er rosalega skemmtilegt starf.
Árið 2015 fengum við hvatningar
verðalun Reykjavíkurborgar fyrir
skákkennslu í leikskólum sem ég er
stoltur af. Það er rosalega gaman að
kenna ungum krökkum skák og sjá
hvernig færnin og áhuginn þróast,
þetta er eins og að byggja hús og
því fyrr sem þau byrja að læra því
betra.“
Omar ferðast mikið vegna vinnu sinnar sem dómari en vinnur auk þess við þýðingar, kennir arabísku í Háskóla Íslands, les bækur á arabísku fyrir Hljóðbókasafnið og
er leikskólakennari á Laufásborg. Omar varð hraðskákmeistari Taflfélags Reykjavíkur árið 2016. Mynd | Hari
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. febrúar 2017