Fréttatíminn - 10.02.2017, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 10.02.2017, Blaðsíða 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. febrúar 2017 Guðlaug Fríða og Ragnheiður María eru bestu vinkonur og skipa jafnframt hljómsveitina RuGl. Þær stöllur hafa á einu ári sankað að sér töluverðri reynslu í tónlistarbransanum með dyggri aðstoð helstu aðdáendanna, foreldra sinna. Vináttan: Nafnið varð til í heimilisfræðitíma Bryndís Silja Pálmadóttir bryndis@frettatiminn.is Foreldar okkar beggja eru með puttana í öllu sem við gerum en þau fá bara bjór-miðana okkar í staðinn fyr-ir allt skutlið,“ segja hinar 15 ára Guðlaug Fríða Helgadóttir Folkmann og Ragnheiður María Benediktsdóttir sem skipa hljóm- sveitina RuGl. Þær stöllur urðu að eigin sögn bestu vinkonur eftir að hafa kynnst í 7. bekk. „Við höfðum báðar verið að spila og semja tón- list. Þegar Fríða flutti til Íslands urðum við strax óaðskiljanlegar og áttum saman í gegnum tónlistina,“ segir Ragnheiður um upphaf vin- áttu þeirrar Fríðu, eins og Guðlaug Fríða er gjarnan kölluð. Hljóm- sveitin RuGl var þó ekki stofnuð fyrr en stelpurnar voru í 9. bekk, þegar þær kepptu í söngvakeppni Hagaskóla og síðar í Músíktilraun- um. „Fríðu langaði að taka þátt og spurði hvort ég vildi gera þetta með henni. Við lentum í öðru sæti og ákváðum að taka þátt í Músíkt- ilraunum. Við vorum langyngstar, vorum ekkert að búast við neinu en við komumst áfram.“ Nafnið varð til í heimilisfræði Nafn hljómsveitarinnar, RuGl, varð til í leiðinlegum heimilis- fræðitíma í Vesturbæjarskóla. „Nafnið var þá frekar í tengslum við vináttuna þar sem við fórum að rugla saman stöfum. Ef við tók- um fyrsta stafinn í mínu nafni og annan í Fríðu, G úr mínu nafni og fjórða úr Fríðu þá kom upp RuGl,“ segir Ragnheiður. „Það var samt ekki fyrr en nóttina sem við sótt- um um Músík tilraunir sem við ákváðum að festa þetta vináttu- nafn við hljómsveitina okkar.“ Að sögn Fríðu snýst vinátta þeirra nú að miklu leyti um hljómsveitina. „Vináttan verður eiginlega meira vinnuverkefni af því að við erum „buisness partners.“ Nú tölum við ekki um mikið annað en hljóm- sveitina.“ Semja um Skam Ragnheiður og Fríða segjast ekk- ert endilega vera að skilgreina tónlistina sem þær semja. „Okkur finnst tónlistin mótast eftir tilfinn- ingu og veðri. Hún er til dæm- is mun glaðværari yfir sumarið heldur en á veturna.“ Hljómsveitin RuGl semur texta sína gjarnan á ensku en hefur gert eitt lag á dönsku, en Fríða er hálf-dönsk og Ragnheiður elskar að eigin sögn dönsku. „Við vildum ekki vera gagnrýndar fyrir að semja bara á ensku. Bubbi var til dæmis geð- veikt pirraður út í okkur á Airwa- ves fyrir að semja alltaf bara á ensku,“ segja stelpurnar og skella upp úr. „Öll lög sem ég hlusta á eru á ensku, ég kann eiginlega ekki að semja á íslensku,“ útskýrir Fríða. Lagið sem RuGl hefur samið á dönsku fjallar um norska sjón- varpsþáttinn Skam, en stúlkurnar eru að eigin sögn miklir aðdáend- ur. „Versin fjalla um persónurnar í þáttunum en viðlagið er um Osló.“ Spila á Airwaves í annað sinn Fríða og Ragnheiður útskrifast úr Hagaskóla í vor og Fríða ætlar að halda í svokallaðan „efterskole“’ í Danmörku. Ragnheiður hef- ur hinsvegar ekki enn ákveðið hvaða stefnu hún tekur. Hljóm- sveitin RuGl mun samt sem áður stíga á stokk á tónlistarhátíðinni Airwaves í haust. „Það er búið að kaupa miðann handa mér og ég kem þremur dögum fyrir hátíð- ina,“ segir Fríða. Hljómsveitin er í augnablikinu að vinna að svokall- aðri IP-plötu sem er væntanleg á næstu mánuðum. „Við erum að klára upptökur í lok febrúar en vitum ekki hvað tekur langan tíma að mixa og svona, foreldrar okkar eru að sjá um allt aukalega og við spilum bara. Foreldrar helstu bakhjarlar Að sögn stúlknanna eru foreldrar þeirra í rauninni umboðsmenn, rótarar, bakraddir, ritarar og allt þar á milli. „Foreldrar okkar verða að vera í góðum samskiptum og þau hittast alltaf á Kaffi Vest og ræða málin. Stundum komum við með en þegar það eru fundir um peningamálin þá megum við ekki koma.“ Það getur verið flókið að vera 15 ára tónlistarmaður en þeim stöllum hefur til dæmis verið meinaður aðgangur að skemmti- staðnum Húrra þegar þær áttu að spila. Málið leystist þó um leið og þær útskýrðu mál sitt. „Við meg- um vera áfram á öðrum tónleik- um eftir að við spilum ef foreldrar okkar eru þar og vinir okkar hafa stundum fengið að koma og hlusta á boðsmiðum þrátt fyrir að hafa ekki aldur til þess.“ Fríða og Ragnheiður skipa hljóm- sveitina RuGl. Mynd | Hari Zootopia Teikni- myndin kom út í fyrra og féll svo sannarlega í kramið hjá bæði börnum og fullorðnum. Þetta er klárlega teiknimynd sem gaman er að horfa á með afkvæminu. Myndin gerist í útópíu þar sem dýrin búa í sátt og samlyndi. Teiknimyndir eru fyrir alla Teiknimyndir þurfa ekki eingöngu að vera efni fyrir yngri kynslóð ina. Til eru ótal teiknimyndir sem geta skemmt bæði börn- um og fullorðnum á sama tíma. Svo eru líka til teiknimyndir sem einungis eru fyrir þá fullorðnu. Bryndís Silja Pálmadóttir bryndis@frettatiminn.is Rick og Morty Þættirnir eru virkilega góð skemmtun fyrir fullorðið fólk með dökkan húmor. Þessir óvið- eigandi þættir fjalla um hinn sí-ropandi vísindamann Rick og barna- barnið hans Morty sem ferðast milli ólíkra heima. Howl’s Moving Castle Falleg og hugljúf mynd úr smiðju Hayao Miyazaki um unga konu sem festist í líkama gamallar kerlingar. Þar koma fyrir fljúgandi kastalar og galdranornir í ævintýra- legum heimi. The Wanted 18 Teiknimyndin er palestínskt - kanadískt samstarf. Myndin er byggð á sönnum at- burðum og því einung- is teiknuð að hluta. Myndin fjallar um Palestínumenn á 8. áratugnum sem verða sér úti um 18 kýr og vandræði þeirra vegna hernámsins.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.