Fréttatíminn - 10.02.2017, Page 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. febrúar 2017
inn sem breyti ákvæðum hans til
verri vegar fyrir neytandann.
„Það sem í grunninn er að hér
á landi, er að við erum með lög í
landinu og með Hæstarétt sem fer
ekki að lögum,“ segir Hafþór. „Þrí-
greining ríkisvaldsins gerir ráð fyr-
ir að dómsvald og löggjafarvald sé
aðskilið en allt of algengt er að lög-
menn segi umbúðalaust að hæsti-
réttur setji lög með dómum sínum.
Það auðvitað stenst ekki skoðun,
hann hlýtur fyrst að eiga að fara
eftir ríkjandi lögum.“
Jafnræði
Þau Ásta og Hafþór segja ómögu-
legt fyrir fólk að standa í stappi við
fjármálakerfið á jafningjagrundvelli
„Þegar maður ber upp umkvörtun-
arefni sín við lögfróða einstaklinga
og embættismenn er okkur oft sagt
að það sé ekkert hægt að gera í
þessu því það brjóti gegn jafnræðis-
reglunni. Jafnræðið sem okkur er
þá sagt standa til boða er að fara í
mál gegn bankanum og það sjá nú
allir jöfnuðinn í því. Í þessu tilviki
er síðan sjálfur Hæstiréttur Íslands
gerandi í málinu. Rétturinn gerði
lagasetninguna mögulega á sínum
tíma og því vart hægt að treysta
honum. Ólíklegt að slík mistök verði
viðurkennd,“ segir Ásta.
Hafþór bendir á að vissulega hafi
enginn beinlinis verið að breyta
lánasamningnum þeirra. „Ég viður-
kenni það vissulega að það kom
enginn í heimsókn til okkar, tók
upp tippex og fór að breyta samn-
ingnum okkar, en því var hins vegar
klárlega breytt hvernig hann var
fullnustaður. Og það er aðalatriðið,
í því felst eignaupptakan.“
Glataður tími
„Refsiraminn á Íslandi er sextán ár
fyrir alvarlegustu ofbeldisglæpi,“
bendir Ásta á. „Við erum búin að
sitja í okkar deilum í heil níu ár.
Þetta er einn fimmti af lífi mínu og
einn þriðji af okkar hjónabandi. Svo
fylgist maður með dómsmálum yfir
hrunverjum þar sem allur vafi er
reiknaður þeim í hag, enda lög-
mannaher að baki þeim. Afskriftir
þeirra eru himinháar og refsingu
- þegar þeir eru dæmdir til hennar
- taka þeir út að einum þriðja hluta.
Maður spyr sig: Hvað gerðum við af
okkur? Jú, við keyptum hús og tók-
um lán fyrir rétt rúmlega helmingi
kaupverðsins,“ segir Ásta.
Hafþór tekur undir að þessi ár
sem farið hafi í stapp og deilur komi
ekki aftur. „Þetta eru árin sem við
hefðum átt að vera að byggja upp
fyrir okkar eftirlaunaaldur, árin þar
sem við hefðum átt að gera hluti
með strákunum okkar sem nú eru
orðnir fullvaxnir karlmenn, en í
staðinn hefur orkan farið að mest
öllu leyti í þetta,“ segir Hafþór.
Hafþór vill meina að samtrygging
stjórnkerfisins og fjármagnsaflanna
sé algjör. „Aftur og aftur rekum við
okkur á að bankarnir fara sínu fram
og gera það sem þeir vilja. Þeir eru
síðan bakkaðir upp af kerfinu með
athafnaleysi embættis- og stjórn-
málamanna. Í raun og veru ætti
jarðýtan að vera búin að valta yfir
okkur fyrir löngu, en af ýmsum
ástæðum hafa þau þrjú uppboðs-
ferli sem farið hefur verið í gegn
okkur runnið út í sandinn. Við vit-
um svo sem ekki hvernig tekst til
hjá þessum öflum næst, en á meðan
munum við rexa og pexa yfir þessu
og bíða eftir því að einhver fari
vakna upp og gera eitthvað í þeim
órétti sem þessi hópur lántakenda
hefur mætt í gegnum árin.“
Ásta bendir á að baráttan snúist
ekki bara um líf þeirra hjóna heldur
afkomu fjölda fólks, þúsunda fjöl-
skyldna sem margar hafa nú misst
eignir sínar. „Maður verður hins
vegar var við einbeittan brotavilja
í kerfinu og hræðslu við að taka
á þessum órétti. Það er augljóst
hvernig hagsmunum lántakenda er
kastað út og allt snýst um að vernda
fjármagnið og bankana. Það fer
lítið fyrir réttlæti í íslensku sam-
félagi en samt vill maður trúa því
að það leynist bak við sjónarrönd.
Þingheimur getur komið sér saman
um að endurskoða „Árna Páls lög-
in“ og stöðvað aðfarir að eignum
fólks á grundvelli þeirra á meðan.
Það var hægt að setja á þessi órétt-
mætu lög á sínum tíma og það segir
manni að það hljóti að vera hægt að
endurskoða þau. Auðvitað er það
hægt. Við auglýsum því núna eftir
ráðherrum og þingmönnum með
réttlætiskennd.“
Þó þau hjón, Ásta og Haffi, telji að lítið hafi farið fyrir réttlæti í íslensku samfélagi í kjölfar hrunsins vilja þau samt trúa því
að það leynist bak við sjónarrönd. Óréttmæt lög sem stangist á við eignarétt stjórnarskrár og neytendarétt hljóti að vera
hægt að nema úr gildi, rétt eins og þeim var komið á.
„Þetta eru árin sem við
hefðum átt að vera að
byggja upp fyrir okkar
eftirlaunaaldur, árin þar
sem við hefðum átt að
gera hluti með strákunum
okkar sem nú eru orðnir
fullvaxnir karlmenn, en í
staðinn hefur orkan farið
að mest öllu leyti í þetta.“
SJÓNMÆLINGAR
Tímapantanir:
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811