Fréttatíminn - 10.02.2017, Síða 23
| 23FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. febrúar 2017
P40 4400mAh
FERÐARAFHLAÐA
2.490
10. Febrúar 2017 • Birt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabreng • Tölvutek er stæ
rsta sérhæ
fða tölvuverslun landsins í ferm
etrum
verslunarrým
is talið, sam
kvæ
m
t niðurstöðu Neytendastofu þann 10.05.2016
• 7’’ IPS fjölsnertiskjár 1280x800
• Quad Core 1.0GHz Allwinner örgjörvi
• Mali 400MP 1080p 3D skjákjarni
• 8GB flash og allt að 32GB microSD
• 300Mbps WiFi n þráðlaust net
• Li-Polymer rafhlaða allt að 5 tímar
• Tvær vefmyndavélar 2MP FHD og 0.3MP
• Silicon varnarhlíf og Bluetooth heyrnartól
• Android 5.1 Lollipop og fjöldi forrita
14.990
FRÁBÆR FYRIR KRAKKANA;)
MOBII P748
ÞRÁÐLAUSHEYRNARTÓLFYLGJA
SILICON
BUMPER
VARNARHLÍF
3.990
IPX5 VOTTUÐ RAKAVÖRN
• Hágæða Bluetooth 4.1 heyrnartól
• Kristaltær hljómur og djúpur bassi
• Hnappar til þess að stjórna tónlist
• Hleðslurafhlaða spilar 4 klst. af tónlist
• Innbyggður hljóðnemi og svarhnappur
• Er með IPX5 vottaðri rakavörn
• Koma með 3 stærðum af töppum
SENFUS
ÞRÁÐLAUSIR TAPPAR!
22.990
• Telur skref, vegalengdir, kaloríubrennslu
• Tengist þráðlaust við flest alla snjallsíma
• Fylgist með hvenær og hversu vel þú sefur
• Númerabirtir, skilaboð ofl. á skjá
• Frábær rafhlöðuending, allt að 5 dagar
• Hægt að stjórna tónlistinni úr símanum
• Vatnsþolið að 50 metra dýpi, 50 ATM
VIVOSMART
HÁGÆÐA GARMIN HEILSUÚR
FULLKOMINN FÉLAGI Í RÆKTINA;)
FRÁBÆRTAPP Í FLESTASNJALLSÍMA
79.990
LÚXUS SKJÁR FRÁ ACER!
32”WQHD
KRISTALTÆR IPS QHD SKJÁR
EB321HQU
Lúxus QHD skjár frá Acer með IPS myndtæk-
ni ásamt Acer CrystalBrite sem tryggir ótrúleg
myndgæði, skarpari liti og hærri skerpu ásamt
178°sjónarhorni og Blue Light Filter tækni.
• 32’’ IPS WQHD 2560x1440 skjár
• 1000:1 Native skerpa og True 10-bit litir
• 4ms GtG viðbragðstími fyrir leikina
• Flicker-less og Blue Light Filter tækni
• 178° True to Life Ultra Wide sjónarhorn
• HDMI 1.4, DisplayPort 1.2 & DVI tengi
• DisplayPort og DVI kaplar fylgja með
• 100% Pixla ábyrgð í Tölvutek
QHD
2560x1440
IPS
YFIRBURÐIR
Í SKERPU
True 10-bit
LITADÝPT
SNJALLARI
GRÆJUR
ÚRVALIÐ ER Í STÆRSTU TÖLVUVERSLUN LANDSINS*
69.990
• AMD Dual Core E1-7010 1.5GHz
• 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni
• 256GB SSD ofur hraður diskur
• 15.6’’ HD LED AntiGlare 1366x768
• 4GB AMD R2 128GCN DX12 skjákjarni
• 2.0 hljóðkerfi með góðum hátölurum
• 867Mbps Dual WIFI AC, BT 4.0, USB 3.0
• 720p Crystal Eye HD Skype vefmyndavél
• Windows 10 64-bit, hlaðið nýjungum
25SD
5
FLOTT VÉL MEÐ 256GB SSD
ES1-523
60GB 14.900 | 240GB 36.900
229.990
FYRSTIR KOMA FYRSTIR FÁ!
40ÞÚSUND AFSLÁTTURFULLT VERÐ269.990
Einn öflugasti Kaby lake leikjaturninn í dag með
nýjustu kynslóð öflugustu leikjaskjákorta í heimi,
nettur og fullkominn á lanið eða með í bústaðinn;)
• Thermaltake Suppressor F1 leikjaturn
• Intel Core i5-7600 Quad 4.1GHz Turbo
• GIGABYTE Z170N-Gaming 5 móðurborð
• 8GB DDR4 2400MHz hágæða minni
• 512GB SSD M.2 Plextor M7V diskur
• 8GB GTX 1070 G1 Gaming leikjaskjákort
• 7.1 Sound Core3D THX TruStudio Pro
• USB 3.1 Type-C & Type-A og M.2 tengi
• Windows 10 64-bit, hlaðið nýjungum!
ÖRFÁ EINTÖK KEPPNISTÖLVA FRÁ
ÍSLANDSMEISTARA
MÓTI OVERWATCH
KEPPNISTÖLVA ÍOVERWATCH
ITX OVERWATCH TILBOÐ
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
Virka daga
10:00 - 18:00
Laugardaga
11:00 - 16:00
OPNUNARTÍMAR
500KR
HRAÐSEN
DUM
ALLAR VÖ
RUR HEIM
SAMDÆGU
RS*
* GILDIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ALLT AÐ 10KG • EF PANTAÐ ER FYRIR KL. 15:00;)
1TB FERÐAFLAKKARI
1TB EXPANSION
9.990
4TB
24.990
2TB
14.990 29.990
GEAR4U
LEIKJASTÓLAR
PS4 VR
49.990
PS4 VR GLERAUGU
1STK
Á MANN:)
Ég spái oft í það hvernig við-
brögðin hefðu verið ef ég hefði
sett fram þessa mynd og sagt að ég
hefði orðið fyrir ofbeldi. Og áverk-
arnir væru svona. En af því ég set
þessa mynd fram og segist hafa
orðið fyrir nauðgun, þá finnst mér
áverkarnir verða minna merkileg-
ir. Þetta er alveg tvennt ólíkt fyrir
sumum nefnilega. Ég fékk alveg að
heyra að sumum þætti gott að láta
bíta sig.“
Eltihrellir var með lykil að íbúðinni
Ofbeldið hafði eðlilega mikil áhrif á
Elmu og fyrsta árið eftir atvikið var
henni sérstaklega erfitt. „Ég var
svolítið „fuckt up“ í hausnum og
glímdi við mikla áfallastreiturösk-
un. Ég gat ekki farið í sturtu heima
nema einhver væri hjá mér. Ég átti
erfitt með heyra ekki hvað var að
gerast frammi.“
En það var fleira sem kom til
og ýtti undir þessa vanlíðan og
óþægindatilfinningu sem hafði
tekið sér bólfestu í huga Elmu.
Hún varð fyrir þeirri hræðilegu
lífsreynslu að vera með eltihrelli
um tíma, sem komst inn í íbúðina
hennar og hótaði að vinna henni
mein.
„Ég man þegar ég áttaði mig á
því sem var að gerast, þá hugs-
aði ég að svona gæti ekki gerst í
Hafnarfirði. En það bankaði upp
á hjá mér ókunnugur maður eitt
kvöld þegar ég var nýkomin inn
heima og sagðist vilja hitta mig. Ég
fékk strax mikla ónotatilfinningu.“
Elma fann að hann var mjög
áfjáður í að komast inn í hús-
ið en hún fór út og sagðist geta
talað við hann fyrir utan. „Í þess-
um göngutúr okkar kom í ljós að
hann hafði verið að fylgjast með
mér. Hann hafði verið inni í íbúð-
inni minni, hann vissi hvað var
á náttborðinu mínu, hvaða bæk-
ur ég hafði verið að lesa, hvar ég
ynni, hvaða daga, hvenær ég var
búin að vinna og hvaða strætó ég
tæki. Hann sagði mér líka að hann
væri sendur til mín af djöflinum
og að hann ætti að drepa mig. Þá
hugsaði ég með mér að vondar bíó-
myndir væru ekki einu sinni svona
slæmar.“
Elma reyndi að losa sig við
manninn með því að segja honum
að fara heim að leggja sig. Innst
inni var hún virkilega hrædd en
henni fannst þetta samt svo fá-
ránlegt að hræðslan náði ekki al-
mennilega tökum á henni strax.
Þegar hún meinaði honum inn-
göngu í annað sinn fór hann í vas-
ann, náði í lykil og opnaði dyrn-
ar sjálfur. Hann var með lykil að
heimilinu hennar. „Þá missti ég
málið og bilaðist. En ég náði að
hringja í vinkonu mína sem var að
vinna á næturvakt þar sem voru
öryggisverðir og hún kom strax
með einn með sér.“ Maðurinn
komst hins vegar undan og Elma
sá hann ekki aftur fyrr en ári síðar
þegar hann kom í vinnuna til henn-
ar og stóð og horfði á hana í smá
stund, áður en hann fór.
„Mér datt ekki einu sinni í hug
að hringja í lögregluna, mér fannst
þetta svo fáránlegt. Ég áttaði mig
ekki almennilega á því sem hafði
gerst.“
Sagan af eltihrellinum kemur
reyndar ekki fyrir í verkinu en
Elma útilokar ekki að bæta henni
og fleiri sögum við síðar. Og halda
þannig verkinu lifandi.
Minningar um vanlíðan tveggja ára
Flestir útskriftarnemarnir taka fyr-
ir ákveðið málefni og setja mynd-
ir upp á vegg eða í bækur, verk-
efni Elmu er hins vegar í möppu
sem liggur á borði. En hvað varð
til þess að hún ákvað að fara þessa
óhefðbundnu leið? „Það heillaði
mig mest að vera einlæg. Ekki búa
eitthvað til. Og þegar ég ákveð að
vera einlæg þá þarf ég að segja
hlutina eins og þeir eru. Ég get ekki
reynt að fegra hlutina eða sleppt
einhverju því þá er ég farin að rit-
skoða sjálfa mig. Mér finnst það
ekki nógu einlægt,“ segir hún til
að útskýringar.
„Þegar ég er búin að leggja þetta
á borð þá sjá allir inn í sálina mína.
Það er ekkert eftir. Sem er eigin-
lega bara frábært. Ég hélt að það
yrði mjög óhugnanlegt, en það
er alls ekki þannig. Það er engin
skömm að þessu. Það eru svo
margir sem burðast með skömm.
Það sem ég var helst að burðast
með voru miklir fordómar fyrir
fólki eins og mér, fólki sem hefur
lent í allskonar áföllum.“
Sem barn þjáðist Elma af mikl-
um kvíða, af ýmsum ástæðum.
Það voru erfiðleikar á heimilinu,
mamma hennar vann mikið og
hafði ekkert bakland. Pabbi henn-
ar yfirgaf fjölskylduna þegar hún
var ung, en hún eignaðist svo
yndislega stjúppabba sem var á sjó
og því mikið fjarverandi. „Þetta allt
bitnaði svolítið á okkur. Ég á minn-
ingar um vanlíðan frá því ég var
tveggja ára. Ég var með mjög mik-
il einkenni kvíða. Það var alltaf
Gestir ljósmyndasýningarinnar geta
skoðað brot úr læknaskýrslum Elmu,
sem hafa að geyma mjög persónulegar
upplýsingar.
„Mér datt ekki einu sinni í
hug að hringja í lög-
regluna, mér fannst þetta
svo fáránlegt. Ég áttaði
mig ekki almennilega á
því sem hafði gerst.“