Fréttatíminn - 10.02.2017, Qupperneq 36
• 26.000 vörur tilbúnar til heimsendingar samdægurs
• Nýjar vörur bætast við nær daglega – vöruúrval mun aukast
gríðarlega á næstu misserum
• Heimkaup.is getur keyrt heim 1000 pakka á dag, sama dag og
þeir eru pantaðir
• Netverslun mun springa út á næstu misserum – Heimkaup.is
er tilbúið
• Helstu samkeppnisaðilar Heimkaup.is eru Amazon.com og Ali
Express
Ingi Gauti Ragnarsson tæknistjóri
hjá Heimkaup.is. Myndir | Hari
Getum sent
1000 pakka
á dag heim að
dyrum – sama
dag og þeir er
u
pantaðir.
4 FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2017NETVERSLANIR
Stærsta íslenska
netverslunin
horfir til framtíðar
Heimkaup.is er langstærsta íslenska vefverslunin,
með um 26.000 vörunúmer sem eru tilbúin til afgreiðslu strax.
Unnið í samstarfi við Heimkaup
Helstu samkeppnisaðilar Heimkaup.is eru stórar erlendar vefverslanir svo sem Amazon.com og
Ali Express. Það sem Heimkaup.is
hefur fram yfir erlendar vefversl-
anir er að það er ekkert mál að
skila eða skipta vörum. Þá fá við-
skiptavinir vörurnar sínar send-
ar heim, sama dag og pantað er á
höfuðborgarsvæðinu, og daginn
eftir út á landsbyggðina. En þrátt
fyrir að Heimkaup.is sé stærsta
íslenska vefverslunin og hafi vaxið
gríðarlega á undanförnum tveim-
ur árum er það bara byrjunin og
fyrirtækið bíður spennt eftir að
netverslun springi út eins og gerst
hefur í nágrannalöndunum.
Netverslun mun aukast
gríðarlega á næstu misserum
Netverslun hér á landi er minni en
í nágrannalöndum og því má búast
við að hún springi út fyrir alvöru
hér á landi á næstu misserum.
Heimkaup.is hefur vaxið gríðar-
lega undanfarin tvö ár og er tilbú-
ið í slíka sprengingu. Heimkaup.
is keyrði heim 534 stk. af Fifa 17
tölvuleiknum á einungis tveim-
ur klukkutímum þann 28. sept-
ember s.l. Ingi Gauti Ragnarsson,
tæknistjóri hjá Heimkaup.is segir
að slíkur árangur náist með stöð-
ugri þróunarvinnu og eftirfylgni,
með því að skoða sífellt hvernig
hlutir eru framkvæmdir og finna
leiðir til að gera betur. „Við fylgj-
umst grannt með öllum ferlum og
finnum leiðir til að fækka skref-
um – bæði hinum físísku skref-
um starfsfólksins og þó kannski
sérstaklega þeim tæknilegu. Við
höfum farið í gegnum stóra álags-
punkta sem sýna okkur að við
getum afhent gríðarlegan fjölda
pantana á skömmum tíma. Þetta
eru engir töfrar heldur einfaldlega
sú hugsun sem felst í „ýtrun“, gera
betur núna en síðast og gera betur
næst en núna. Það er alltaf hægt
að gera betur – það þarf bara að
koma auga á lausnina og búa hana
til.“
Framtíðin í netverslun –
1000 heimsendingar á dag
„Stærstu dagarnir í dag eru til
dæmis Netmánudagurinn, Cyber
Monday, og skólavertíðin en á
slíkum dögum erum við að keyra
heim þetta 1000 pakka á dag,
fyrir utan það sem fer út á
land. Við gerum ráð fyrir
að miðað við þróunina
í löndunum í kringum
okkur verði það sem við
köllum „stóra daga“ í
dag venjulegir dagar á
næstu misserum,“ segir
Ingi Gauti. Auðvitað eru Ís-
lendingar orðnir þaulvanir að
panta vörur í erlendum netversl-
unum en fólk gerir sífellt meiri
kröfur og að fá vöruna heim að
dyrum samdægurs er þjónusta
sem fólk kann að meta.
Kúnninn verður að
hafa 100% traust
Viðskiptavinir fá vöruna samdæg-
urs heim að dyrum og daginn
eftir ef þeir eru utan höfuðborgar-
svæðisins. Heimsending er frí ef
pantað er fyrir 4.000 kr. eða meira
og það gildir að sjálfsögðu fyrir
alla Íslendinga – hvar sem þeir
búa á landinu og á Heimkaup.is
er ekkert mál að skila eða skipta
vörum og vera í góðu sambandi
við þjónustuverið. Fyrirtækið veitir
líka viðgerðarþjónustu og tveggja
ára ábyrgð er á öllum raftækjum
eins og gengur og gerist í venju-
legum verslunum. Heimkaup.is
hefur lagt mikla áherslu á fram-
úrskarandi þjónustu og hefur
það skilað sér í miklum fjölda
fastakúnna. Í ágúst s.l. mældi
MMR NPS (Net Promoters
Score) 80 íslenskra fyrirtækja
og Heimkaup.is skoraði hæst af
öllum þeim fyrirtækjum sem spurt
var um í könnuninni. NPS er „með-
mælavísitala“ og er mælikvarði
á tryggð viðskiptavina við fyr-
irtæki og hversu líklegir þeir
eru til að mæla með
þjónustunni.
Mikið vöru-
úrval
Kosturinn
við erlendar
netverslan-
ir, eins og t.d.
Amazon, er ekki
síst hið gríðarlega
vöruúrval. Heim-
kaup.is horfir til slíkra
verslana. Eins og fyrr segir eru
26.000 vörunúmer á Heimkaup.is,
allt frá strokleðrum til sjónvarpa.
Nýjar vörur bætast við nánast
daglega. Á þessu ári bættust t.d.
við vörur frá Cintamani og Mörtu
Jonsson á Heimkaup.is en þar er
nú hægt að fá nýjustu vörulínur
þessara fyrirtækja. Allar vörurnar
á síðu Heimkaup.is eru í vöruhús-
inu að Smáratorgi 3 og tilbúnar
til afgreiðslu um leið og pöntun
berst. „Við horfum til Amazon og
slíkra verslana,“ segir Ingi Gauti,
„Heimkaup.is verður svona „allt
á einum stað búð“, þú átt að geta
fengið allt í einni ferð – án þess þó
að fara neitt!“