Fréttatíminn - 25.02.2017, Blaðsíða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Alda Lóa Leifsdóttir
aldaloa@frettatiminn.is
Ýmislegt bendir til þess að Trump sé að þjappa saman konum (og körl-um) gegn þeim öflum sem komu honum í for-
setastólinn fyrir nokkrum vikum.
Þann 21. janúar, daginn eftir inn-
setninguna, voru skipulögð mót-
mæli í rúmlega 60 löndum og rúm-
lega 5 milljónir manns fóru út á götu
að mótmæla. Þar á meðal í Serbíu,
Myanmar, Líbanon og Reykjavík.
Mótmælin voru ýmist skipulögð eða
haldin að frumkvæði amerísku sam-
takanna Women ś March on Was-
hington. Öflug þátttaka í Bandaríkj-
unum kom á óvart en hún var miklu
fjölmennari en búist var við í að-
draganda mótmælanna. Einkennsi-
merki andstöðunnar er bleik húfa
með kisueyrum „Pussyhat“ skírskot-
un til kvenfyrirlitningar núverandi
forseta Bandaríkjanna.
Mótmælin halda áfram
Baráttukonur í Bandaríkjunum hafa
ekki látið staðar numið og eru þegar
að skipuleggja næstu mótmæli sem
verða á alþjóðlegum baráttudegi
kvenna, þann 8. mars. Mótmælun-
um síðastliðinn janúar var beint að
Trump og setu hans í Hvíta húsinu.
Mótmælin sem verða 8. mars
eru hinsvegar samstaða við verka-
konur og konur í þjónustu- og um-
önnunarstörfum, konum í engum
störfum og konunum sem gátu
aldrei tekið þátt í rússíbanareiðinni
um best launaða starfið. Mótmælin
eru viðbragð við kapítalisma og ný-
frjálshyggju og viðbragð við femín-
isma sem þróaðist á tímum nýfrjáls-
hyggjunnar og hvatti konur áfram í
keppni um forstjórastóla frekar en
Önnur bylgja kven-
réttindabaráttu varð
til á sjöunda áratugn-
um. Markmiðið var að
draga úr áhrifamætti
feðraveldisins og
meðfæddum rétti
karlmannsins til þess
að ríkja yfir konum.
Ljósmyndin er eign
Kvennasögusafnsins
og tekin á Kvenna-
frídeginum 1975 í
Reykjavík.
Silfurhærðir femínistar snúa
aftur og blása lífi í baráttuna
Bandarískar kvenréttindarkonur biðla til
kvenna um allan heim að safnast saman 8.
mars og mótmæla. Angela Davis og Gloria
Steinem, sem voru háværar á sjöunda
áratugunum, boða 4. bylgju femínisma.
Tilefnið er að yfirgefa „Lean-in“ femínisma,
3. bylgjuna, og taka upp kvenréttindabaráttu
sem höfðar til 99% kvenna.
samstöðu gegn ofríki fyrirtækja og
hnattvæðingu.
Ákall bandaríska femínista
„Á síðustu 30 árum, hafa lífskjör
verkakvenna og fólks almennt versn-
að,“ segir í yfirlýsingu frá 8 banda-
rískum baráttukonum sem boða
4. bylgju feminisma og skrifa und-
ir yfirlýsingu sem ber yfirskriftina:
Beyond Lean-in Feminism.
Hugtakið „Lean-in“ má með-
al annars rekja til titils á einskon-
ar sjálfshjálparbók hjá sjálfskipaða
femínistanum Sheryl Sandberg,
sem er ein af stjórunum á Facebook.
Sheryl, sem er vellauðug, leggur til
að konan vinni sig upp metorðastig-
ann eins og hún sjálf gerði. Sheryl
þessi gaf út bókina Lean in: woman,
work and will to lead.
Hugmyndir hennar um kven-
frelsi eru miðaðar út frá heimi stór-
fyrirtækjanna, og þar sem konur í
þjónustustörfum, verkakonur, ein-
stæðar mæður, atvinnulausar kon-
ur, innflytjendur og blankar konur
og flestar konur hafa ekki skilyrði
til þátttöku.
Hvað er „Lean-in“ femínismi?
Hugtakið Lean-in er samofið 3.
bylgju femínisma sem að sumu leyti
endurómaði tugguna um eflingu
kvenna og þá sérstaklega um hæfni
þeirra að vinna sig upp metorða-
stiga stórfyrirtækja, lögfræðistofa,
stofnana á alþjóðlegum eða opinber-
um grundvelli. Hinn sameiginlegi
heimur og réttindi misstu vægi og
hver kona fyrir sig háði sína eigin
kvenréttindabaráttu heima hjá sér
eða í atvinnulífinu. Konur kepptust
að því að verða fullkomnar á öllum
sviðum án þess að nokkuð breyttist
í samfélaginu til þess að létta undir
með þeim.
Að sumu leyti ómur af hug-
myndum nýfrjálshyggjunnar þar
sem samstaðan splundraðist og
darwinisminn tók yfir.
Stétta- og mannréttindabarátta
Átta bandarískar kvenréttindakonur
staðfesta að nýr feminismi hafi þegar
litið dagsins ljós og sé starfandi í
heiminum. Í yfirlýsingu sinni nefna
þær í því sambandi mótmæli kvenna
í Póllandi gegn fóstureyðingarbanni,
mótmæli í Suður-Ameríku gegn of-
beldi karla á konum, fjöldamótmæli
ítalskra kvenna í nóvember á síðasta
ári og mótmæli á Írlandi og Suður-
-Kóreu um æxlunarrétt þeirra.
En það sem er til tíðinda í þessum
mótmælum, er það að þau snúast
ekki eingöngu um ofbeldi gegn kon-
um heldur er hérna víðari skírskot-
un á ferðinni þar sem verið er að
mótmæla launamisrétti og ójöfn-
uði, hatri og ómannúðlegri meðferð
og stefnum gegn samkynhneigðum,
transfólki og innflytjendum. Sem-
sagt stéttar- og mannréttindabarátta
sem konurnar átta telja vera teikn
um nýja alþjóðlega kvennahreyfingu
með breiðari boðskap sem rúmar
andspyrnu gegn kynþáttahyggju,
heimsvaldastefnu, nýfrjálshyggju
og gagnkynhneigðarhyggju.
Ni Una Menos
Konurnar sem skrifa undir yfirlýs-
inguna segjast starfa undir áhrifum
frá Ni Una Menos sem þýðir „hver
ein og einasta skiptir máli“. En það
er kvenréttindahreyfing sem á ræt-
ur sínar í Argentínu. Ni Una Menos
beinir athyglinni að því að ofbeldi á
sér margar hliðar. Heimilisofbeldi
og ofbeldi gegn konum er eitt, en
ofbeldið er til staðar víðar í samfé-
laginu. Ni Una Menos bendir meðal
annars á ofbeldið komi fram í kap-
ítalísku stjórn- og hagkerfi þar sem
konur verða undir og ofbeldi ríkisins
sem kemur fram í lagalegum mis-
mun gagnvart samkynhneigðum- og
transkonum.
Konur allra landa sameinist
Ákallið er að konur sameinist þann
8. mars og leggi niður vinnu. Þegar
hafa kvennahreyfingar í 30 lönd-
um boðað verkfall á þessum degi.
Hugmyndin er að virkja konur
og transkonur og stuðningsmenn
þeirra til að halda alþjóðlegan mót-
mæladag, fara út á götur, brýr og
torg. Ganga út og yfirgefa heimilis-
störfin, umhyggju- og kynlífsstörf.
Úthrópa kvenhatara meðal stjórn-
málamanna og fyrirtækja, og mót-
mæla í menntastofnunum. Þessar
aðgerðir eiga að leggja áherslu og
benda á þarfir þeirra kvenna sem
áttu ekki upp á pallborðið í kvenna-
baráttu síðustu þrjá tugi ára og áttu
aldrei séns í „Lean-in“ feminismann:
Verkakonur, konur í umönnunar-
störfum, atvinnulausar og konur í
viðkvæmum aðstæðum, segir í yf-
irlýsingunni. Konurnar sem kvitta
undir yfirlýsinguna eru þær, Ang-
ela Davis, Barbara Ransby, Cinzia
Arruzza, Keeanga-Yamahtta Taylor,
Linda Martín Alcoff, Nancy Fra-
ser, Rasmea Yousef Odeh og Tithi
Bhattacharya.
Stuðst við Womens Leadership
and third wave feminism eftir
Kathleen Iannello.
Pussyhat er einkennismerki 21. janúar
mótmælanna. 5 milljónir manns mót-
mæltu innsetningu Trumps um allan
heim.
Þriðja bylgja kvenréttindabaráttu
leggur áherslu á forystu- og leiðtoga-
hæfni kvenna. Barátta sem var miðuð
út frá velgengni einstaklings í stað
sameiginlegrar velferðar. Sheryl Sand-
berg hjá Facebook hefur sætt gagnrýni
fyrir femínisma sem hentar aðeins
ríkum forréttindakonum. Mynd | Reuters
3. bylgju femínismi er
stundum talinn eiga sér
bólstað í félagslegri menn-
ingu kvenna á aldrinum 15
til 30 ára en skeytti ekki
um aðstæður kvenna í
barnauppeldi á aldrinum
30 til 50 ára, hvað þá eldri
kvenna.
BELGRAD
Beint flugt i fyrsta skiptið frá Keflavík
til Belgrad höfuðborgar Serbíu
29. SEPTEMBER - 2. OKTÓBER
Belgrad er ein af elstu borgum Evrópu, hún
hefur orðið fyrir áhrifum frá fjölmörgum
þjóðum, sem gerir borgina gríðarlega
spennandi fyrir ferðmamenn. Sjá þennan
suðupott mismunandi menningar koma
saman á einum stað.
Glæsilegur arkitektur er þar að finna
frá fyrri öldum. Verðlag á mat,
drykk og í verslunum er mjög gott.
Þá er hægt að gera góð kaup á einhverjum á
Hinum mörgu mörkuðum sem eru í borginni.
VERÐ 99.800.-
per mann i 2ja manna herbergi,
innifalið er flug, hótel með morgunamat,
isl. fararstjóri rúta til og frá flugvelli.