Fréttatíminn - 25.02.2017, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 25.02.2017, Blaðsíða 16
16 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017 skref. Við stoppum allavega ekki hér,“ segir Natalía, og af því málið er enn í farvegi vilja þau ekki geta skólans. „Krakkarnir hafa sumir lýst áhyggjum sínum af þessu við kennara og skólastarfsfólk, sérstak- lega stelpurnar. Ég veit að strák- arnir hafa verið skammaðir en svo ganga þeir bara á hann og spyrja af hverju hann sé alltaf að klaga. Það vita því allir af þessu en það vantar meira aðhald.“ Natalíu finnst ömurlegt að son- ur hennar geti ekki bara fengið að vera hann sjálfur. Hún biður ekki um neitt annað. „Þar sem hann er með þroskaröskun þá ættu þau líka að sinna honum sérstaklega vel og aðstoða hann.“ Stuðningur af Samtökunum Þegar Máni kom út úr skápnum leit- uðu þau mæðginin til Samtakanna 78 og fengu aðstoð og ráðgjöf. Máni ræddi meðal annars við sálfræðing sem kom svo og talaði við krakk- ana í bekknum. Að sögn Natalíu vöru þau flest mjög áhugasöm en það dugði ekki til. Bæði lofsama þau þó Samtökin fyrir sitt starf. „Það er mjög gott og öflugt ungliðastarf hjá Samtökunum og það hefur gert heilan helling fyrir hann.“ Máni kom út úr skápnum sem tvíkynhneigður en hann er ennþá að finna sig á réttum stað. „Hann er auðvitað ungur og óreyndur og það kemur bara í ljós þegar hann finnur manneskju sem hann elskar. Það liggur ekkert á,“ segir Natalía og lítur brosandi á son sinn. „Ég er alveg viss um að hann finnur sinn sálufélaga, af hvaða kyni sem er.“ Þrátt fyrir að það hafi verið erfitt fyrir ungan dreng að koma út úr skápnum þá styrkti það hann líka heilmikið. „Ég var mjög niðurdreg- inn og þungur, en þegar ég kom út þá varð ég jákvæðari og fór að blómstra,“ segir Máni og móðir hans tekur undir þetta. Breytingar á syninum hafa verið töluverðar síðasta árið. „Hann varð strax all- ur hressari og síðasta sumar var mjög gott, en það kom dálítið högg í skólanum í haust og þá dalaði það aðeins.“ Máni á rúm tvö ár eftir af grunn- skólagöngunni og Natalía segir þau einfaldlega vera að þrauka, það sé gott að sjá fyrir endann á þessu. „Það hefur komið til tals að hann skipti um skóla en okkur finnst það ekki vera lausnin. Hann á góðan vin í skólanum og kunningja. Ef við flytjum hann í annan skóla þá finnst mér eins og við séum að refsa hon- um fyrir það sem hann er að ganga í gegnum.“ Talaði um að vilja fara Natalía viðurkennir að það taki á heimilislífið að búa við stöðugan ótta um hvað gerist næst. En á hverjum morgni krossar hún fingur og vonar að sonur hennar verði lát- inn í friði þann daginn. Hún þekkir nefnilega eineltið af eigin raun og veit hvað hann er að ganga í gegn- um. „Ég varð fyrir daglegu ofbeldi og áreiti sem barn og á tímabili hugsaði ég með mér að það væri best fyrir mig að láta mig hverfa út í sjó. En fyrir vikið er ég kannski betur í stakk búin til að hjálpa syni mínum og skilja hann. Það á enginn skilið að heyra það að hann sé einskis verður og eigi helst að drepa sig,“ segir Natalía en hún þjáist af áfallastreituröskun eftir ofbeldið í æsku og hefur leitað sér aðstoðar vegna þess. „Þetta skilur eftir djúpt ör á sálinni,“ bætir hún við. „Á tímabili var ég sjálfur að hugsa um að taka mig af lífi,“ segir Máni hreinskilinn og móðir hans grípur orðið. „Hann var kominn á þann stað. Hann vildi bara vera inni í herbergi og ekki gera neitt. Hann var hættur að læra heima og hættur að hirða um sjálfan sig. Hann talaði oft um að hann vildi fara.“ Hann er sem betur fer ekki jafn þungur í dag, enda fór honum að líða ör- lítið betur eftir að hann kom út úr skápnum. En þó Máni hafi átt erfitt er hann duglegur að láta drauma sína ræt- ast. Hann tók til að mynda þátt í Ís- land Got Talent á síðasta ári og vakti töluverða athygli. Hann syngur og spilar sína eigin tónlist á gítar og þykir mjög hæfileikaríkur. „Hann stóð sig eins og hetja og það var ekki til feilnóta hjá honum,“ segir Natal- ía stolt. Þá hefur hann einnig tekið þátt í keppni ungra tónskálda. „Ég fylgi draumum mínum og vil lifa venjulegu lífi. Ég vil ekki þurfa að upplifa hindranir út af þessu áreiti,“ segir Máni ákveðinn. „Hann vill bara fá að vera til. Fá að vera í friði. Hann hefur sinn tilvistarrétt, eins og allir aðrir,“ bætir Natalía við. „Krakkarnir hafa sumir lýst áhyggjum sínum af þessu við kennara og skólastarfsfólk, sérstak- lega stelpurnar. Ég veit að strákarnir hafa verið skammaðir en svo ganga þeir bara á hann og spyrja af hverju hann sé alltaf að klaga. Það vita því allir af þessu en það vantar meira aðhald.“ 6.999 kr. STOKKHÓLMUR f rá T í m a b i l : m a rs - j ú n í 2 0 1 7 9.999 kr. BARCELONA f rá T í m a b i l : m a í - j ú n í 2 0 1 7 9.999 kr. MÍLANÓ f rá T í m a b i l : j ú n í - j ú l í 2 0 1 7 8.499 kr. DÜSSELDORF f rá T í m a b i l : m a í - j ú l í 2 0 1 7 5.999 kr. EDINBORG f rá T í m a b i l : m a rs - m a í 2 0 1 7 16.999 kr. TENERIFE f rá T í m a b i l : a p r í l - m a í 2 0 1 7 Hæ, kíktu út! *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. * * * * * * X X X X X X

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.