Fréttatíminn - 25.02.2017, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 25.02.2017, Blaðsíða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017 „Púlsinn hægist svo mikið að hann getur farið niður í 25 slög svo það er mjög mikilvægt við þessar að- stæður að panikka ekki.“ „Hver og einn hefur sínar forsendur til að stunda köfun,“ segir Sigríður, „en fyrir mér snýst þetta um að gera eitthvað sem ég er ofsalega hrædd við.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Það er ákveðið ástand sem maður kemst í við fríköfun sem er heill-andi. Þetta er eins og með öll önnur öfgasport þá snýst þetta fyrst og fremst um að skora á sjálfan sig“ segir Sigríð- ur Lárusdóttir sem prófaði fyrst að kafa í sólarferð á Krít fyrir tíu árum. Eftir að hafa upplifað dýpið ákvað hún að læra köfun og síðan hefur hún hægt og rólega skipt um starfsvettang og starfar í dag sem köfunarleiðsögumaður. Ástríða hennar er þó fyrst og fremst fríköfun. „Ég hef alla tíð heillast af vatni og sem krakki var ég stöðugt að sulla í vatni. Mig langaði alltaf til að læra að kafa en svo gleymdist það á leiðinni í gegnum lífið og ég var komin á gamalsaldur þegar ég prófaði þetta fyrst.“ Erfiðar aðstæður á Íslandi „Eftir að ég kláraði kafaranám- skeiðið skildi ég við manninn minn og þá fór ég út í þetta af full- um krafti. Ég skráði mig í Sport- kafarafélagið og bætti við mig hell- ing af viðbótarþekkingu og næsta skref er að fara til Möltu og læra að verða köfunarkennari því mig langar ekki til að vinna við neitt annað,“ segir Sigríður. Í Sport- kafarafélaginu kynntist hún Birgi Skúlasyni en hann er eini maður- inn á Íslandi sem kennir og keppir í fríköfun. Sigríður heillaðist al- gjörlega af sportinu. „Fríköfun snýst um að kafa án nokkurs búnaðar og hefur auðvit- að verið stunduð alla tíð, án þess að kallast fríköfun. Þetta er frekar Sigríður Lárusdóttir er ein fárra Íslendinga sem stunda fríköfun. Hún kafar á 30 metra sjávardýpi án nokkurs búnaðar, fyrst og fremst til að sigrast á sínum eigin ótta. Að yfirstíga óttann er mikilvægast ungt sport en það er keppt í því út um allan heim, bæði í laugum og sjó, og þá er annaðhvort keppt í að kafa djúpt á einum andardrætti eða í tímalengd á kafi. Þegar það er keppt í sjó þá er það gert á stöð- um þar sem eru náttúrulega djúp- ar holur, svokallaðar blue holes, ein sú þekktasta og þar sem keppt er á hverju ári er við Egyptaland,“ segir Sigríður sem sjálf hefur lengst verið á kafi í 5,17 mínútur og komist á 33,3 metra dýpi en það var í sjónum við Tenerife. „Það er aðeins erfiðara að kafa á Íslandi því það er svo kalt. Ég hef lent í því að vera með fólki í Silfru sem hefur kafað niður á 60 metra dýpi úti en kemst varla niður í Silfru vegna kulda. Það eru mjög harðar aðstæður hér á landi,“ segir Sig- ríður sem ferðast mikið um landið með félaginu. Þau fríkafa mikið í ferskvötnum auk þess að fara í sjó- inn við strendur Íslands. Síðasta sumar köfuðu þau í þrjá daga við Breiðafjarðareyjarnar sem Sigríð- ur segir hafa verið stórkostlegt ævintýri. Betri í að takast á við erfiðleika „Það er nauðsynlegt að undir- búa sig vel áður en farið er á kaf, fyrst og fremst með slökun og hugleiðslu til að reyna að spara alla orku. Þegar þú ert svona lengi ofan í á þetta miklu dýpi þá hægir á hjartslættinum og allri líkamsstarfsemi. Blóðið byrjar að dragast úr útlimunum og inn í kjarnann til að hlífa líffærunum og allra síðast rennur mest allt blóð til höfuðsins en það gerist ekki nema eftir langan tíma á kafi. Púlsinn hægist svo mikið að hann getur farið niður í 25 slög svo það er mjög mikilvægt við þessar að- stæður að panikka ekki. Maður þarf að vera ofboðslega þjálfaður í hugsun og hreyfingum og um það snýst þjálfunin. Að yfirstíga óttann er mikilvægast, að geta stjórnað huganum þegar aðstæður valda ótta. Það er heilmikið nám að læra að hlusta á líkamann og vita sín mörk.“ „Hver og einn hefur sínar forsendur til að stunda köfun en fyrir mér snýst þetta um að gera eitthvað sem ég er ofsalega hrædd við. Það fylgir þessu rosa- leg hugarstjórn og ég finn hvað ég er miklu betri í því að takast á við erfiða hluti í lífinu eftir að ég byrjaði í þessu,“ segir Sigríður sem stefnir á að gera lítið annað en að kafa í framtíðinni. „Það er alls ekki óraunhæfur draumur því ég er nú þegar komin með réttindi til að leiðsegja og þegar ég get líka kennt verður lítið mál að ferðast um heiminn og kafa.“ Eftir að Sigríður Lárusdóttir kláraði kafaranámskeiðið skildi hún við mann sinn og fór út í köfun af fullum krafti. Myndir | Hari Um tíu manns mæta reglulega á æfingar hjá Fríköfunarfélaginu sem kafar bæði í ferskvatni og sjó. Félagarnir voru nýverið á Ítalíu að æfa sig í 40 metra djúpri keppnislaug. Fjórir úr hópnum náðu að kafa niður á botn laugarinnar á einum andardrætti þar sem þrýstingur er fjórfaldur miðaða við yfirborðið og hefur gríðarleg áhrif á líkamann. Í sumar verður alþjóðlega köfunarmótið Nordic open haldið á Íslandi í fyrsta sinn. AUDI Q7 4,2 L QUATTRO PREMIUM Árg. 2007 , ekinn 71 Þ.km, bensín, sjálfskiptur, leður, glertoppur. Einn eigandi! TILBOÐSVERÐ 3.100.000 kr. Raðnr. 255982 AUDI A5 SPORTBACK 2 0TDI 02/2011, ekinn 154 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. TILBOÐSVERÐ 3.590.000 kr. Raðnr. 255845 TOYOTA AVENSIS S/D SOL 03/2012, ekinn 77 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. TILBOÐSVERÐ 1.890.000 kr. Raðnr. 256106 AUDI A3 SPORTBACK E-TRON 2016 ekinn 6 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Mjög vel búinn af aukahlutum! Verð 4.970.000 kr. Raðnr. 255653 CHEVROLET CAPTIVA 2 2TDI nýskr. 06/2013, ekinn 108 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, 7manna. Verð 3.490.000 kr. Raðnr. 256109

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.