Fréttatíminn - 25.02.2017, Síða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Máni hefur átt erfitt uppdráttar
í skólanum vegna eineltis, en að
sögn móður hans verður hann
fyrir stöðugu áreiti ákveðins hóps
skólafélaga. Hann hefur engan
áhuga á því að falla í inn hópinn
eða eiga marga vini, en þráir að
fá að vera í friði eins og hann er.
Máni er einhverfur, greindur
með add og kvíðaröskun. Hann
er öðruvísi. Síðasta sumar kom
hann út úr skápnum og móðir
hans segir áreitið þá hafa versnað
til muna.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Bernharð Máni Snædal er litrík-
ur og skemmtilegur 13 ára dreng-
ur sem kemur til dyranna eins og
hann er klæddur. Stundum með
bleikt hár, stundum með gloss og
jafnvel maskara. Hann vill bara fá
að vera hann sjálfur, en skólafé-
lagarnir gera honum erfitt fyrir,
að hans sögn. Máni, eins og hann
er alltaf kallaður, er einhverfur og
greindur með add og kvíðaröskun
sem hefur ágerst upp á síðkastið.
Fimm ára gamall var hann orðinn
að skotmarki jafnaldra sinna sem
uppnefndu hann og áreittu því
hann var öðruvísi. Og ekki batn-
aði ástandið þegar hann kom út úr
skápnum fyrir ári.
Sagt að drepa sig
Að sögn Natalíu Óskar Ríkarðs-
dóttur Snædal, móður Mána, hafa
verið tveir forsprakkar í gerenda-
hópnum og hafa þeir gengið hvað
lengst í áreitinu og ofbeldinu. „Svo
fylgja hinir því þeir eru svo töff.
Hann er með einhverfurófsrösk-
un og þetta byrjaði í tengslum við
það. Hann er öðruvísi og kannski
veikari fyrir stríðni vegna þess. Þeir
Ég fylgi
draumum
mínum og vil
lifa venjulegu lífi
Þegar Máni kom
út úr skápnum
fór honum að
líða betur, en
áreitið í skólan-
um hefur hins
vegar aukist.
Myndir | Hari
áreittu hann fyrst út af því,“ seg-
ir Natalía. Áreitið hefur svo ágerst
með árunum, en dalaði þó aðeins
þegar umræddir forsprakkar skiptu
um skóla í tvö ár. Svo komu þeir aft-
ur og þá var fjandinn laus á nýjan
leik, að sögn mæðginanna.
„Þá var komin ný ástæða því ég
var nýkominn út úr skápnum,“
segir Máni. „Þá varð þetta bara of-
beldisfyllra og andlega og líkam-
lega ofbeldið hefur verið rosalegt
síðan. Það er veist að honum og
hann kallaður öllum illum nöfn-
um. Honum er sagt að fara heim að
drepa sig. Hann fær skilaboð um að
hann eigi ekki skilið að lifa. Þetta
er orðið mjög þreytt. Hann verður
fyrir áreiti af hálfu þessara einstak-
linga hvar sem hann hittir þá. Það
er aldrei friður. Við tókum okkur
samt til í haust og „blockuðum“
ansi marga á facebook-inu hans
þegar skilaboðin fóru að berast.“
Ráðlagt að stuða ekki
Máni opnaði sig um líðan sína á
facebook nýlega eftir atvik á skóla-
skemmtun sem að hans mati var
kornið sem fyllti mælinn. Hann
segir skólafélaga hafa veist að sér
með einhverju sem brenndi hann,
líklega kveikjara. „Það var atburð-
urinn sem varð til þess að ég vildi
fella grímuna og segja frá,“ segir
Máni einlægur. Natalía styður að
sjálfsögðu son sinn í að opna um-
ræðuna, enda hefur hún barist
gegn eineltinu með honum síð-
ustu árin. „Við höfum stanslaust
reynt að uppræta þetta en það hef-
ur gengið illa,“ segir Natalía og það
fer ekki á milli mála að hún er orðin
langþreytt á ástandinu „Það hef-
ur verið talað við þessa drengi en
það gerist ekki neitt og þeir halda
áfram,“ segir Máni sem ber sig vel,
þrátt fyrir allt.
„Honum er bara sagt að passa sig.
Að hann eigi að passa hvernig hann
hagar sér og kemur fyrir. Stundum
langar hann að vera málaður en
honum er bent á að það sé kannski
betra að sleppa því. Hann fær þær
leiðbeiningar frá skólastarfsfólki.
Honum er ráðlagt að stuða ekki
krakkana,“ segir Natalía.
„Þegar ég var nýkominn út úr
skápnum þá sögðu þau að ég ætti
ekki að vera að mála mig strax. Ég
ætti frekar bíða með það. Ég vil
mála mig til að líta fallega út. Mér
er skítsama hvað þeir segja. Þetta
er óþarfa hatur,“ segir Máni.
„Hann er búinn að standa sig
ótrúlega vel þó kvíðaröskunin
hafi versnað. En hann er ekkert að
reyna að falla inn í hópinn. Hann
vill bara fá að vera hann sjálfur í
friði. Hann þarf ekkert að eiga
marga vini. Hann er ekkert að leit-
ast eftir því. Hann er bara að leit-
ast eftir því að fá að vera til og vera
með sínum vini,“ segir Natalía. „Ég
vil bara eiga gott líf,“ bætir Máni
við, en hann á einn góðan vin í skól-
anum sem hann er mikið með.
Krakkarnir hafa áhyggjur
„Þetta er rosalega ömurlegt. Mér
líður mjög illa yfir þessu. Ég er bú-
inn að hitta sálfræðing undanfarið
og er í listmeðferð. Þetta er hægt og
rólega að brjóta mig, hefur haldið
mér niðri, “ segir hann aðspurður
um eigin líðan.
„Við erum búin að fara í skóla-
stjórnendur og ræða við þá. Við
höfðum bara verið að ræða við
starfsfólk skólans og héldum að það
kæmi þessu áleiðis, en skólastjórn
kom af fjöllum. Við erum búin að
vera að reyna að uppræta ofbeldið
í mörg ár í samstarfi við starfsfólk
sem við töldum vera að koma þessu
áleiðis. En okkar upplifun er sú að
málinu hafi verið sópað til hliðar og
honum pínulítið kennt um að vera
of litríkur karakter.
Við erum búin að hafa samband
við skóla- og frístundaráð en eigum
eftir að heyra frá þeim. Við ætlum
að sjá hvernig verður tekið á þessu
núna áður en við tökum næstu
„Það er veist að honum
og hann kallaður öllum
illum nöfnum. Honum er
sagt að fara heim að drepa
sig. Hann fær skilaboð um
að hann eigi ekki skilið að
lifa. Þetta er orðið mjög
þreytt.“
www.bjarmaland.is sími 770 50 60
bjarmaland@bjarmaland.is
598 000
kr.
Gullni þríhyrningurinn+strandir GOA
339 000
kr.
161 700
kr.
Rúmenía - í fótspor Drakúla greifa
Moskva-Pétursborg
298 000
kr.
Úzbekistan og Túrkmenistan
488 000
kr.
Kákasusfjöll
379 000
kr.
HIÐ ÓÞEKKTA INDÓKÍNA
Víetnam, Kambódía+ Moskva
8. - 23. apríl I 15 nætur UM HAUST
INDVERSKT SUMAR
ÆVINTÝRALJÓMI 8 nætur
TRANSILVANÍU19. - 26. maí
GEORGIA OG AZERBÆDSJAN
9. - 19. september I 10 nætur
SILKILEIÐIN MIKLA
7. - 19. október I 12 nætur
SIGLING KEISARALEIÐIN
30. júlí - 09. ágúst I 10 nætur
11 nætur
14.-25. nóvember
ÚT Í HEIM MEÐ OKKUR!