Fréttatíminn - 25.02.2017, Síða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Heba Aljaraki beið með börnin sín tvö í sprengjuregninu í Sýrlandi á
meðan eiginmaðurinn leitaði að samastað fyrir fjölskylduna. Hún fluttist
til Íslands fyrir rúmu ári og reynir að hugsa sem minnst um dauðann.
Innflytjandinn:
Langar bara að lifa í friði
Heba Aljaraki
er sýrlenskur
lögfræðingur
með sérþekk-
ingu í réttindum
kvenna. Þegar
stríðið braust út
vann hún við að
aðstoða konur
sem misst höfðu
eiginmenn sína.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Leiðin hingað var mjög löng,“ segir Heba Aljaraki en hún fluttist til Íslands frá Sýrlandi fyrir rúmu ári.
„Maðurinn minn fór tvisvar yfir
Miðjarðarhafið frá Lýbíu en í fyrra
skiptið sökk báturinn. Báturinn
var mjög lélegur og það voru 300
manns í honum. Hann byrjaði að
leka stuttu eftir að þau voru komin
út á haf en maðurinn minn náði að
synda í land. Það voru bara nokkrir
menn sem komust í land, allar kon-
urnar og öll börnin drukknuðu.“
„Hann reyndi aftur mánuði
seinna og þá náði hann til Ítalíu
þaðan sem hann fór til Frakklands,
svo til Belgíu og svo til Hollands. Frá
Hollandi fór hann til Íslands. Þegar
hann lenti á Íslandi átti að vísa hon-
um til Ítalíu vegna Dyflinnarreglu-
gerðarinnar en hann gat ekki hugs-
að sér að fara aftur til Ítalíu því þá
hefði hann aldrei hitt okkur aftur.
Lögfræðingar Rauða krossins að-
stoðuðu hann og eftir eitt ár fékk
hann íslenska kennitölu.“
Á meðan eiginmaður Hebu
reyndi að finna henni og börnunum
þeirra tveimur samastað beið Heba
í Sýrlandi. „Það er hryllingur að ala
börn upp í stríði. Á hverjum einasta
degi hlustuðum við á sprengjurn-
ar og öskrin og ég reyndi að róa
börnin mín. Þetta var ekkert líf,“
segir Heba en næstum tvö ár liðu
frá því að maðurinn hennar fór yfir
hafið og þar til hann fékk hæli hér
á landi. Rúmu ári síðar kom Heba
með börnin til Íslands. „Það er ekki
hægt að lýsa muninum á því að vera
með börnin þar og hér. Við erum
svo hamingjusöm í dag. Börnin okk-
ar eru svo glöð hérna. Núna reyni
ég að hugsa sem minnst um dauð-
ann, mig langar bara að lifa í friði.“
Heba er lögfræðingur að mennt.
Þegar stríðið braust út ákvað hún að
nýta krafta sína í að aðstoða konur
sem misst höfðu eiginmenn sína.
„Stríðið hafði tekið mikið frá okkur
og margar konur stóðu einar eftir
með börnin sín. Sumar voru ekkjur
en aðrar höfðu misst eiginmennina
í fangelsi, oftast án dóms og laga.
Þessar konur voru án allra réttinda
því í Sýrlandi hafa konur ekki mikil
réttindi án eiginmanns. Þær þurftu
aðstoð við að finna eiginmennina
eða við að skipuleggja næstu skref,
sem oftast voru að fara,“ segir Heba
sem gat þó lítið unnið eftir að eigin-
maðurinn fór yfir hafið.
Fyrstu mánuðina eftir að Heba
kom til Íslands með börnin var
hún mest heima við, að reyna að
venjast nýju lífi. Hún segist þó ekki
hafa þolað það lengi. „Ég þráði að
vinna svo ég fór út að labba í leit
að vinnu, bara hér í hverfinu. Ég
bankaði upp á hjá allskonar fyr-
irtækjum og bað um vinnu og að
lokum fann ég þennan skóla, Lyng-
ás. Ég sá börnin og hugsaði strax
að hér langaði mig til að vinna og
svo fékk ég vinnuna,“ segir Heba
ánægð. Hún starfar bæði í eldhúsi
skólans og í umönnun barnanna og
líkar það einstaklega vel. „Ég var
hissa fyrst að sjá hvað skatturinn
hér er hár,“ segir hún og hlær. „Og
svo þurfti ég að fara í smá aðgerð og
þá var ég mjög hissa að sjá hvað það
kostar mikið að fara á sjúkrahús á
Íslandi, en ég er alin upp við það að
heilsugæsla sé ókeypis. Fjölskyldan
mín var alltaf með sama heimilis-
lækninn og það kostaði ekkert að
heimsækja hann. En það var auð-
vitað fyrir stríðið.“
„Stríðið hafði tekið mikið
frá okkur og margar
konur stóðu einar eftir
með börnin sín. Sumar
voru ekkjur en aðrar
höfðu misst eiginmennina
í fangelsi, oftast án dóms
og laga.“
GRANADA
BEINT FLUG FRÁ
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
6. - 9. október
Hin stórfenglega Máraborg, Granada er ein
allra fallegasta borg Spánar. Hún er staðsett
við rætur Sierra Nevada fjallanna í ægifögru
umhverfi. Áhrif frá tímum Mára eru þar
mjög sterk og má m.a. nefna Madraza, fyrsta
arabíska háskólann frá 13. öld og arabísku
böðin frá 11. öld.
Hæst ber þó að nefna Alhambra höllina
sem talin er ein fegursta bygging heims.
Ekki er síðra úrval verslana, veitingahúsa
og allt það sem hinn venjulegi ferðamaður
þarfnast. Meðalhiti 20°C.
VERÐ 109.900.-
per mann i 2ja manna herbergi.
Innifalið: Flug, hótel með morgunmat,
íslenskur fararstjóri, rúta til og frá flugvelli.
SÍMI: 588 8900WWW.TRANSATLANTIC.IS
9.999 kr.
ALICANTE f rá
T í m a b i l : m a í - j ú n í 2 0 1 7
5.999 kr.
LONDON f rá
T í m a b i l : m a rs - m a í 2 0 1 7
19.999 kr.
VARSJÁ f rá
T í m a b i l : j ú l í - o k tó b e r 2 0 1 7
6.499 kr.
KAUPMANNAHÖFN f rá
T í m a b i l : m a rs - m a í 2 0 1 7
9.999 kr.
LYON f rá
T í m a b i l : j ú n í & s e p te m b e r 2 0 1 7
8.999 kr.
PARÍS f rá
T í m a b i l : m a rs - j ú n í 2 0 1 7
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
*
*
*
*
*
*
Vertu
memm!