Fréttatíminn - 25.02.2017, Blaðsíða 42
Margeir Gunnar Sigurðsson
margeir@frettatiminn.is
Fjármálalæsi miðar að því að almenningur nái utan um eigin fjármál, átti sig á mikilvægi þess að halda heimilisbók-
hald. Fjármálalæsi miðar líka að
því að einstaklingar öðlist getu til
þess að taka meðvitaðar og upp-
lýstar ákvarðanir í eigin fjármál-
um. Með auknu fjármálalæsi hefur
fólk tækifæri til þess að móta fjár-
hagslega framtíð sína. Fjármála-
læsi stuðlar einnig að gagnrýnni
og upplýstri umræðu fjármál og
fær fólk til þess að hugsa betur og
meira um fjármál sín.
Breki Karlsson, forstöðumaður
Stofnunar um fjármálalæsi, hefur
rannsakað fjármálalæsi frá árinu
2005 og er sá maður sem er ábyrg-
ur fyrir því að kynna þetta hugtak
fyrir Íslendingum.
Það fór ekki framhjá nokkrum
manni þegar sjónvarpsþættirin-
ir Ferð til fjár voru sýndir í Ríkis-
sjónvarpinu. Þættirnir voru í umsjá
Breka Karlssonar og Helga Seljan.
Þegar Breki er inntur svara við
því hvort þættirnir hafi haft áhrif
og orðið þess valdandi að ákveðin
hugarfarsbreyting hafi átt sér stað
meðal landsmanna, segir Breki.
„Það er kannski erfitt að mæla það,
það var náttúrlega fleira fólk sem
stoppaði mann út á götu og vildi
ræða þetta. En ég tel að þáttur-
inn hafi tvímælalaust haft áhrif og
kveikt áhuga hjá fólki og vakið fólk
til umhugsunar um þessi mál.“
Rannsóknir um fjármálalæsi
Stofnun um fjármálalæsi hef-
ur gert rannsóknir á fjármálalæsi
Íslendinga á þriggja ára fresti. Sú
fyrsta var framkvæmd í desember
2008. Það stendur svo til að fjórða
rannsóknin verði framkvæmd í des-
embermánuði nú í ár.
„Í þessum rannsóknum kemur
fram að það hefur ýmislegt breyst
til batnaðar. Eitt af því ánægju-
legasta er að tvö-
falt f leiri Ís-
lendingar
halda nú
heimilis-
bókhald
en gerðu
árið 2008.
Sem er mik-
il breyting
til
Fjármálalæsi og mikilvægi
þess fyrir almenning
Breki Karlsson,
forstöðumaður Stofn-
unar um fjármálalæsi,
leggur ríka áherslu á
að fólk haldi heimilis-
bókhald. Mynd | Hari
Vitundarvakning hefur orðið meðal þjóðarinnar
um fjármál og einföld atriði eins og halda heim-
ilisbókhald hefur stórbatnað hjá Íslendingum frá
hruni. Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar
um fjármálalæsi, hefur rannsakað fjármálalæsi
hér á landi í rúman áratug og segir hann að
margt hafi breyst til batnaðar á þeim tíma. Í fjár-
málalæsisviku í næsta mánuði verður sérstök
áhersla lögð á ungt fólk.
batnaðar. Árið 2014 var talan svo
komin upp í 30% af Íslendingum
sem halda heimilisbókhald, þannig
að það eru ennþá mikil tækifæri til
þess að sækja fram í þessum efn-
um.“
Mikilvægi heimilisbókhalds
Breki leggur ríka áherslu á það að
sem flestir tileinki sér þann einfalda
en mikilvæga sið að halda heimilis-
bókhald.
„Við hugsum aðeins meira um
fjármál en við gerðum hér áður fyrr
sem er mjög ánægjulegt. Eina leiðin
til þess að vita nákvæmlega hvernig
þú ert að verja peningum þínum er
að halda heimilisbókhald. Þá sjáum
við það að næstum tveir þriðju hlut-
ar af Íslendingum halda ekki heim-
ilisbókhald. Ávinningurinn af því
að halda heimilisbókhald er tölu-
verður, rannsóknir sýna að ef þú
heldur heimilisbókhald þá getur þú
aukið ráðstöfunartekjur þínar um
3%. Sem er um 80 þúsund krónur
á ári fyrir meðalfjölskyldu. Það má
nú ýmislegt gera við þá fjármuni.
Fólk getur því litið á það þannig að
það sé að sækja sér launahækkun
með því að halda heimilisbókhald.
Þetta er því einföld og áhrifarík leið
til þess að auka ráðstöfunartekjur
heimilisins.“
Leggja áherslu á ungt fólk
Alþjóðleg fjármálalæsisvika verð-
ur haldin í ár, 27. mars - 2. apríl. Að-
spurður segir Breki að aðaláherslan
í ár verði á ungt fólk.
„Aðaláherslan í ár er á börn og
ungmenni, á sparnað ungs fólks
og gildi þess að spara. Ekki bara
að spara peninga heldur á sparnað
í víðara samhengi. Ætlunin er að
reyna að vekja ungt fólk til aukinn-
ar meðvitundar um umhverfið og
öll þau gæði og auðlindir sem við
erum svo rík af og opna augu ungs
fólks fyrir því að margt af þeim
gæðum sem umlykja okkur eru
auðlindir sem eru takmarkað-
ar og þarf að umgangast með
þau sjónarmið að leiðarljósi,“
segir Breki.
Heilræði Breka til fólks
er: „Að geta tekið meðvit-
aðar og upplýstar ákvarð-
anir í fjármálum. Þannig að
maður sé ánægður með þær
ákvarðanir og viti hvað maður
er að gera. Sá einfaldi sannleikur
fellur aldrei úr gildi.“
2 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017FJÁRMÁLALÆSI
Útgefandi: Morgundagur ehf. Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300
Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga
heldur námskeið fyrir sjóðfélaga* um lífeyrisréindi
við starfslok.
Þar verður svarað helstu spurningum sem vakna hjá fólki
þegar það íhugar starfslok:
Hvar finn ég lífeyrisréindin mín?
Hverjar verða tekjur mínar?
Hvernig á að sækja um?
Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðin
er á heimasíðunni liru.is
Næsta námskeið verður miðvikudaginn 15. mars
hjá Brú lífeyrissjóði, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
– Starfslok úr B-deild: kl. 16.30
– Starfslok úr A-deild: kl. 17.30
– Starfslok úr V-deild: kl. 18.30
LÍFEYRISRÉTTINDI
við starfslok
Sigtúni 42 I 105 Reykjavík I sími 540 0700 I liru@liru.is
* Sjóðfélaga í Brú lífeyrissjóði,
í A-, V- og B-deild og sjóðfélaga í
Lífeyrissjóði starfsmanna
Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóði
starfsmanna Kópavogsbæjar.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
7-
05
58
„Aðaláherslan
í ár er á börn
og ungmenni, á
sparnað ungs fólks
og gildi þess að
spara. Ekki bara að
spara peninga heldur
á sparnað í víðara
samhengi.