Fréttatíminn - 25.02.2017, Síða 48
Námsefni
fyrir börn um
fjármálalæsi
Með aukinni meðvitund um fjár-
málalæsi undanfarin ár hefur ver-
ið horft til grunnskólanna. Nú er
svo komið að fjármálalæsi er kom-
ið inn í aðalnámskrá grunnskóla.
Aflatún er námsefni fyrir börn á
aldrinum 6 - 14 ára sem hefur ver-
ið þróað af Háskólanum í Reykja-
vík og Stofnun um fjármálalæsi.
Sparnaður og skilningur á fjármál-
um skipa stóran sess í náms-
efninu. Einnig er rík áhersla á að
börnin öðlist þekkingu á mann-
réttindum, umhverfisvernd og
samfélagslegri ábyrgð. Þá er lögð
sérstök áhersla á frumkvæði og
meðvitund um mikilvægi nýsköp-
unar og eitt af meginmarkmiðum
er að nemendur taki sig saman og
skipuleggi og framkvæmi samfé-
lagslegt eða fjárhagslegt framtak
sem hefur jákvæðar breytingar að
leiðarljósi.
www.fe.is/aflatun
Oft getur
verið gagnlegt
að einfalda
hlutina
Þótt fólk sé langskólagengið í
hagfræði eða viðskiptafræði er
lítið sem ekkert kennt um heimil-
isbókahald eða rekstur heimilisins
í þeim fræðum. Þá er oft gott að
leita til í brunn ömmuhagfræðinn-
ar. Ekki flækja hlutina, einfalt er
oft best.
Ömmuhagfræði gengur út á að
einfalda hlutina eins og mögulegt
er og þannig að sem flestir skilji
þá.
Að eyða aldrei um efni fram,
fara sparlega með hlutina sem
maður á og umgangast hlutina af
virðingu. Aldrei að henda matar-
afgöngum, heldur nota þangað til
þeir eru fullnýtir. Lagfæra föt sem
koma göt á í stað þess að henda
þeim.
Næst þegar þú ert velta fyrir
þér þínum eigin fjármálum skaltu
hafa ömmuhagfræðina í huga og
spyrja sjálfan þig spurningarinnar.
Hvað hefði amma gert?
• Ekki eyða meiru en þú aflar.
Einfaldur sannleikur sem fellur
aldrei úr gildi.
• Losaðu þig við yfirdráttinn,
mjög óhagstæðir vextir sem
geta verið íþyngjandi.
• Haltu heimilisbókhald, það
marg borgar sig að hafa góða
yfirsýn yfir fjármálin.
• Skipulegðu matarinnkaup-
in vel, ekki fara svangur út í
búð og kauptu meira í einu og
sjaldnar.
• Hjólaðu frekar en að keyra,
það er góð hreyfing, gott fyrir
umhverfið og gott fyrir fjár-
haginn.
• Farðu vel yfir fasta útgjalda-
liði heimilisins og fáðu tilboð í
tryggingarnar þínar, farsímann
og þar fram eftir götunum.
Nokkur góð sparnaðarráð
Mikilvægi sparnaðar og þess að fylgast vel með því í hvað peningarnir mínir fara.
• Drekktu vatn, frekar en gos
eða aðra sykraða drykki. Gott
fyrir líkamlega og fjárhagslega
heilsu.
• Afþreying er oft stór útgjalda-
liður, vertu sniðug/ur og farðu
í sund, fjallgöngu eða eitthvað
sem kostar ekki mikla peninga.
8 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017FJÁRMÁLALÆSI