Fréttatíminn - 28.01.2017, Qupperneq 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 28. janúar 2017
Björn Þór Björnsson býr í lítilli íbúð
í Vesturbænum með kærustu sinni
og má segja að plönturnar hafi
tekið heimilið yfir. Ofan á flestum
hirslum, í öllum gluggakistum og í
hverjum einasta krók og kima, má
sjá plöntur breiða úr sér og vaxa í
allar áttir, allt frá litlum græðling-
um yfir í stærri pálma. Björn þakk-
ar fyrir að kærastan sé sátt við
áhugamálið. „Ég er
í allskyns plöntu-
hópum á Facebook
og þegar fólk er að
bjóða af leggjara þá
fer ég langar leiðir til að
sækja þá. Ég
er með fullt af
litlum krílum
við skrifborðið
mitt og hálfgerða
útungunar-
stöð, svo
jú, þetta
tekur ansi mikið
pláss.“
Áhugamálið hefur ekki
fylgt Birni alla tíð því hann
skildi ekki plöntuáhuga
mömmu sinnar þegar hann var
yngri. „Það þýddi ekkert að biðja
mig um að vökva þegar þau fóru
til útlanda, það drapst allt því ég
gleymdi því alltaf. Ætli þetta hafi
ekki byrjað þegar ég byrjaði í Lista-
háskólanum. Þá keypti ég mér eina
plöntu til að hafa á borðinu mínu í
skólanum og svo óx áhuginn rólega
yfir árin og nú er hann í algjörum
blóma.“
Þrátt fyrir alla þá ást og alúð
sem Björn gefur plöntunum
sínum þá fær garðurinn
að standa alveg óhreyfð-
ur. Áhuginn er eingöngu á
inniplöntum og
lætur Björn sér
hvorki detta í hug
að kantskera
né slá í litla
garðinum
utan við
stofu-
gluggann.
„Mér finnst að garð-
urinn og allt úti í náttúrunni eigi
bara að fá að vera alveg villt. Ég vil
hafa fullt af náttúru inni en ekkert
vera að eiga mikið við hana úti,“
segir Björn sem fjárfesti nýlega í
sérstökum hönskum og rakamæli.
„Já, þetta er komið á það stig, seg-
ir hann og hlær. Ég er samt ekki
kominn með rakamæli sem blikkar
þegar rakastigið er ekki rétt, það
er fulllangt gengið í svindlinu. Mér
finnst þetta eiga að vera eitthvað
sem maður lærir með tímanum.
Það deyja ennþá plöntur hjá mér
en ég er alltaf að læra. Plöntur gera
lífið grænna og fallegra og svo er
svo gaman að öllu dútlinu og þolim-
æðinni sem þarf í þetta. Og eftir allt
dútlið sér maður árangurinn þegar
plönturnar fara að dafna betur eða
blómstra. Allt í einu sprettur eitt-
hvað nýtt upp og svo springur það
kannski allt í einu út, þetta er svona
hasar fyrir rólyndisfólk.“
Hildur Sigurðardóttir býr með
fjölskyldu sinni í kjallaraíbúð þar
sem allskyns plöntur, blóm og
græðlingar fylla allar gluggakistur.
Hún segir plönturnar hafa það
nokkuð gott þrátt fyrir að kjallar-
inn sé ekki sá sólríkasti í bænum,
hana dreymi þó um að flytja þær
í lítið hús, með stórum garði og
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4
daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt
að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún
er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar
sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og
fallegasta borg Póllands, saga
hennar nær aftur til ársins 997.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning
og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina
að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
VERÐ FRÁ 87.900.-
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
VILNÍUS Í LITHÁEN
Vilníus er eins og margar aðrar borgir í
Eystrasaltinu frá miðöldum og glæsileg eftir
því. Upphaf borgarinnar má rekja til ársins
1330 og er gamli bærinn á minjaskrá Unesco.
Þröngar steinilagðar götur er viða að finna í
gamla bænum og gamli byggingastíllinn
blasir hvarvetna við.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
DÆMI UM BORGIR
Uppáhaldsblóm Hildar
þessa stundina er kínversk
peningaplanta.
Til er fólk sem eltir uppi fræ og græðlinga
bæinn endilangan síðla kvölds, eða nær að
láta eitt fræ úr papriku verða að stofudjásni
sem gefur ávöxt. Og til er fólk sem hefur
engan áhuga á garðrækt en elskar að halda
inniplöntur. Fréttatíminn hitti nokkur
blómabörn í borginni.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Öllum líður
betur með
plöntum
gróðurhúsi, svipuðu og hún ólst
sjálf upp í í Mosfellsbænum. „Ég
held að áhuginn hljóti að vera í
blóðinu. Mamma var alltaf með
blóm í kringum sig og garðstofu
fulla af blómum. Þegar þau seldu
húsið varð svo skyndilega algjör
kulnun gagnvart þessu því hún er
bara með gerviblóm á svölunum
og vill ekki sjá neitt lifandi. Það fór
kannski of mikill tími í þetta.“
Áhugi Hildar á blómum og
plöntum hefur þó aldrei kuln-
að heldur aukist jafnt
og þétt með árunum.
Þegar hún flutti að
heiman um tvítugt fór
hún til Danmerkur
í blómaskreytinga-
nám. „Ég hafði þá mestan áhuga
á afskornum blómum en potta-
plöntur er stór hluti af náminu
og ég féll alveg fyrir þeim,“ segir
Hildur sem hefur ekki aðeins gam-
an af því að sjá plönturnar vaxa og
dafna heldur líka að þekkja ætt-
fræði þeirra og sögu.
„Ætli elsta blómið hér sé ekki
ódrepandi friðarlilja sem hef-
ur verið skipt niður í fleiri tugi
plantna sem ganga manna á milli.
En uppáhaldsblómið mitt í augna-
blikinu er kínverska peningaplant-
an mín. Ég hef tekið eftir því að
hún er líka vinsæl hjá öðrum því ef
einhver býður græðlinga í einum
af þessum facebook hópum fyrir
plöntuáhugafólk þá verður allt vit-
laust. Ég held að ég geti staðfest að
þetta blóm er orðið alveg hámóð-
ins, segir Hildur
sem er sann-
færð um að
blóm og
plöntur
veiti
ekki
bara
ánægju heldur
bæti líka lífs-
gæði okkar.
Ég sá einu
sinni vísinda-
lega norska
rannsókn á tveimur
skólastofum, önnur
var fyllt með plönt-
um en hin ekki og niðurstaðan
var sú að það var 100% mæting í
plöntustofuna en bara
70% í þessa gróðurlausu.
Það er víst líka mjög gott
að vera með
plöntur á
vinnustöð-
um því þær
hreinsa loftið.
Það líður bara öllum betur
í kringum plöntur.“
Hildur Sigurðardóttir
blómaskreytingakona og
kötturinn Tinna innan
um græðlingana í eldhús-
inu. Plöntur hreinsa loft
og er Hildur sannfærð
um að þær hafi miklu
fleiri heilsubætandi áhrif.
Mynd | Hari
Fimm leiðir til að halda lífi í plöntu yfir veturinn
Haltu plöntunni frá dragsúg. Kaldir vindar geta hindrað blómstrandi
plöntur í að mynda knúbba yfir vetrartímann.
Vetrarmyrkrið getur verið sumum plöntum erfitt, þótt margar lifi það
af. Ef þú vilt rækta blómstrandi plöntur eða kryddjurtir yfir veturinn þá er
hægt að fjárfesta í lampa.
Passaðu að halda rakanum í moldinni yfir þurrustu mánuðina. Ef loftið er
of þurrt verða grænblöðungar brúnir og missa blöðin.
Minnkaðu vökvun yfir dimmustu mánuðina. Hægari vöxtur kallar á minni
næringu.
Fylgstu vel með litlum aðskotadýrum. Þurrt upphitað loft og lokaðir
gluggar kalla á litlar pöddur.
Hasar fyrir rólyndisfólk
Björn Þór segir friðarliljuna vera góða byrjendaplöntu. „Ekki byrja
á neinu of exótísku. Kaktusar og þykkblöðungar eru góðir og friðarliljan
er svo auðvelt því hún þarf litla birtu. Svo þarf að passa að vökva ekki of
mikið, ofvökvun er algengasta dánarorsök plantna. Langbest er að við
látum þær sem mest í friði.“
Grafíski hönnuðurinn Björn
Þór Björnsson á það til að
keyra langar vegalengdir
seint um kvöld til að elta
uppi græðlinga sem aðrir
ræktendur gefa frá sér.
Mynd | Hari