Fréttatíminn - 11.03.2017, Qupperneq 14
14 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 11. MARS 2017
S Ó F A D A G A R
3
Helgi Hrafn Jónsson er tónlistar-
maður sem er kannski ekki ýkja
áberandi í tónlistarlífi Íslands
en hefur nóg að gera á erlendri
grund. Hann er samt búinn að
senda frá sér fimm plötur með
tónlist sinni, þrjár stórar plötur og
þrjár EP-plötur og síðsumars er ný
breiðskífa á leiðinni. Helgi Hrafn
leikur líka og syngur með eigin-
konu sinni, hinni dönsku Tinu
Dickow, sem er einhver alskærasta
poppstjarna heimalandsins. Þau
vinna náið saman og ferðast reglu-
lega um Evrópu og Bandaríkin til
tónleikahalds. Fréttatíminn hitti
Helga til að hlera um líf tónlistar-
mannsins sem nú er komið í fastar
skorður eftir veikindi.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Huldumaður í íslensku tónlistarlífi
– Nóg að gera í Evrópu
Tónlistarmaður-
inn Helgi Hrafn
Jónsson hefur
á síðustu árum
ferðast víða um
lönd með tónlist
sína. Hann undir-
býr nú ferðalög
vorsins auk
þess sem hann
vinnur jafnt og
þétt í sinni sjöttu
plötu.
Mynd | Hari
„Hjá mér er lífið eiginlega þrískipt
þegar kemur að vinunni,“ segir
Helgi Hrafn Jónsson þegar hann er
beðinn um að lýsa sínum daglega
veruleika. „Fyrir utan fjölskyldulífið
snýst þetta eiginlega allt um tónlist,
frítíminn er eitthvað takmarkaður.
Ég spila og syng í tónlist konunnar
minnar, Tinu Dickow, og hún spil-
ar í minni tónlist. Síðan hef ég verið
að vinna að mjög spennandi tónlist-
arverkefnum í leikhúsi í Þýskalandi
meðfram því. Þetta gengur bara vel,
ég næ að lifa af tónlistinni og þá er
maður auðvitað búinn að „meika“
það í þessum bransa, ef svo má
segja. En okkur gengur auðvitað
fyrst og fremst svona vel af því að
konan mín er poppstjarna, með
mikla reynslu og klók í sínum við-
skiptum. Hún gefur út sína tónlist
sjálf og hefur meira en nóg að gera.
Ætli það sé ekki rétt að líta á mín eig-
in tónlist frekar sem einhvers kon-
ar samfélagsverkefni,“ segir Helgi
Hrafn og hlær.
Norræn samvinna
Allt virkar þetta vel saman. Helgi er
klókur lagasmiður og hljóðheimur
tónlistarinnar er útpældur og vand-
aður. Eiginkonan, Tina Dickow, hef-
ur notið mikilla vinsælda í heima-
landinu og gefið út tíu plötur með
sinni tónlist. Þau Helgi kynntust
fyrst árið 2008 en það var þriðji
tónlistarmaðurinn, hinn færeyski
Teitur, sem kynnti parið þegar þau
spiluðu öll saman á tónleikaferða-
lagi Færeyingsins. „Ætli það megi
ekki segja að þetta hafi verið nor-
ræn samvinna að bestu gerð,“ seg-
ir Helgi brosandi. Þau Tina gengu
í hjónaband 2014, gera í dag út frá
Seltjarnarnesi þar sem þau hafa
búið frá 2011 og eiga saman þrjú ung
börn, það nýjasta er aðeins mánaðar
gamall drengur.
„Það er svo skemmtilegt að laga
sig að rödd annars einstaklings
og ég fæ mikið út úr því að syngja
með konunni minni,“ segir Helgi
Hrafn. „Auðvitað er óvenjulegt að
vera svona tónlistar-par sem kropp-
ar í tónlist hvors annars. Við erum
eiginlega alltaf saman. Munurinn
er kannski bara sá að ég er meira í
stúdíóinu á meðan vinna Tinu fer
meira fram í huganum. Hún tengir
einhvern veginn ótrúlega vel milli
heilahvela og á mjög auðvelt með að
sjá heildarmyndina.
Það er mjög ólíkt hvernig við nálg-
umst hlutina eftir því hvort við erum
að vinna að minni tónlist eða tónlist
Tinu. Ég er kannski í meira þjónandi
hlutverki í hennar tónlist en ég nýt
þess í botn að syngja með henni.
Útrás mín fyrir sköpunarþörfina
er hins vegar allt önnur þegar kemur
að minni tónlist. Hún stendur mér
nær og ég er feimnari við að setja
hana fram enda er maður að sýna
betur inn í kjarna á sér. Ég verð að
segja að ég mjög viðkvæmur þegar
kemur að minni tónlist. Þá er allt
persónulegra. Sköpunin er mér mik-
ilvæg og ég nýt hennar en hún er í
raun og veru alveg nóg, ég þyrfti svo
sem ekkert að ganga lengra en það.“
Evrópa
Samt fer Helgi Hrafn lengra með
sína eigin tónlist en bara í hljóðver-
ið. Hann flytur hana á tónleikum
víða um lönd, þó að Þýskaland og
þýskumælandi löndin þar í kring séu
megin leikvöllurinn.
„Þjóðverjar eru langt komnir
í tónleikahaldi. Í hverri smáborg
er frábær tónleikastaður, falleg
hús með góðum áheyrendum sem
kunna að fara á tónleika. Ég fæ lang
mest út úr tónleikahaldi og það er
gaman að spila í Þýskalandi. Mér
finnst alltaf frábært þegar einhver
galdur verður til í salnum og Þjóð-
verjar hlusta vel. Fólkið í salnum
leggur alveg jafn mikið til tónleik-
anna og við á sviðinu.“
Helgi Hrafn er menntaður
básúnuleikari en hann flutti til Aust-
urríkis nítján ára gamall til að læra á
það hljómfagra hljóðfæri og bjó í átta
ár í Graz. Básúnuna notar hann enn í
tónlistina, þó hann leiki mest á gítar
og píanó í dag. Tónleikahaldið hefur
meira og minna farið fram erlend-
is. „Það er skiljanlegt að fólk upplifi
mann sem dálítinn huldumann í ís-
lensku tónlistarlífi. Þetta hefur bara
æxlast svona, að ég hef verið meira
erlendis. Það tengist árunum í Aust-
urríki og svo fór ég á tónleikaferða-
lög með Sigur Rós og Teiti hinum
færeyska. Síðan þá hefur verið nóg
að gera erlendis, en inn á milli hef
ég skotið inn litlum tónleikum hér
og þar hér heima.“
Síðan er það leikhúsið sem Helga
Hrafni þykir spennandi. Hann hefur
unnið náið með þýska leikskáldinu
og leikstjóranum Falk Richter sem
er risanafn í þýskum leikhúsheimi.
Helgi hefur komið að verkefnum
Richter í Borgarleikhúsinu í Frank-
furt og Þjóðaróperunni í Berlín og
framundan er annað spennandi
verkefni leikhúsmannsins í Stokk-
hólmi á næsta ári í þjóðarleikhús-
inu Dramaten. Í sýningunum hef-
ur tónlist Helga leikið stórt hlutverk
og hann leikið og sungið lög sín á
sviðinu auk þess sem hann leggur
til tónlist sem fylgir framvindu leik-
verkanna.
„Að vinna með Falk Richter hefur
verið alveg mögnuð reynsla. Þarna
er maður eflaust að vinna með ein-
hverjum mesta fagmanni leikhús-
heimsins alls. Hann er á svakalegu
flugi og verkefni hans vekja mikla
athygli og aðdáun.“
Hneig niður á sviði
Það var síðasta vor sem Helgi Hrafn
var að spila á tónleikum í Hannover
í Þýskalandi þegar hann hneig
skyndilega niður á sviðinu. Þegar
heim til Íslands var komið tók við
aðgerð á hjarta, sem átti að vera lítil
og létt, en reyndist alvarlegri þegar
til kom. „Ég var á leiðinni á tónleik-
ana með Radiohead daginn eftir
og var alveg harður á því að fara á
þá. Svæfingin átti að vera 2-3 tím-
ar en varð hins vegar ellefu tímar.
Aðgerðin var meiriháttar og við tók
langt bataferli. Ég var ljónheppinn,
til dæmis með það að fá yfir höfuð að
fara á Reykjalund í endurhæfingu.
Það var alveg magnað og að mörgu
leyti er þetta hálfgerð endurræsing á
lífinu að fá að halda áfram og byggja
sig upp.“
Helgi Hrafn er ekki frá því að veik-
indin hafi aukið með sér hugrekkið
sem hann segir að þurfi að vera til
staðar fyrir listamenn. „Ætli þetta
hafi ekki sett gildi mín í meira sam-
hengi í huga mér og slegið dálítið á
hégómann hjá mér og viðkvæmni
mína við því að setja fram það sem
ég er að hugsa í tónlist minni.“
Það er auðvitað hægt að syngja
um allt milli himins og jarðar og
þegar kemur að textasmíðum leit-
ar Helgi Hrafn oft til Tínu, enda
nálgast þau tónlistarsköpun sína á
ólíkan hátt. Textarnir eru að verða
fjölbreyttari. „Á næstu plötu er til
dæmis lag sem undirstrikar að við
erum öll saman á þessum sökkvandi
báti sem jörðin er í dag. Íslendingar
telja sér til dæmis trú um að þeir
séu svo „græn“ þjóð, en raunin er
önnur. Við erum ægilegir sóðar og
sóunin er langt í frá minni hér en
hjá nágrannaþjóðunum. Síðan er
þarna hálfgerður baráttusöngur
líka, þannig að yrkisefnin eru því
misjafnlega myrk. Það má kannski
segja að pólitíkin sé alltaf að læðast
meira og meira inn í hjá mér enda
hef áhuga á henni, eins og maður
verður eiginlega að hafa eins og stað-
an er í dag.“
Helgi Hrafn Jónsson undirbýr
ferðalög sín í Evrópu í vor og sumar
en hann ætlar að hita upp fyrir þau
ferðalög með tónleikum í Kaldalóni í
Hörpu 22. mars næstkomandi.
„Þjóðverjar eru langt
komnir í tónleikahaldi. Í
hverri smáborg er frábær
tónleikastaður, falleg hús
með góðum áheyrendum
sem kunna að fara á tón-
leika. Ég fæ lang mest út
úr tónleikahaldi og það er
gaman að spila í Þýska-
landi.“
Tónlistin hjá
Tinu og Helga
er oft mikið
rödduð, söngstíl-
inn fallegur og
útsetningarnar
mikið raddaðar.
Hjá tónlist-
arhjónun-
um Tinu
Dickow og
Helga Hrafni
Jónssyni snýst
allt meira
og minna
um tónlist.
Seltjarnarnes
hefur verið
heimavöllur
þeirra síðustu
ár en tónlistin
fer víða.