Fréttatíminn - 11.03.2017, Qupperneq 16
16 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 11. MARS 2017
sem hefur örugglega aldrei gert upp
á milli, hvorki fólks, né forseta. Hún
hefur einstaklega fallega nærveru.
Samvera og súpa
Súpan kostar 350 kr. og hægt er
að stinga peningunum í bauk sem
stendur á bakka með niðurskornu
brauðinu. Á bauknum er miði með
áletruninni „Samvera og súpa“. En
engum er neitað um súpuna. Ef
gestirnir geta ekki borgað fyrir sig
þá er það í góðu lagi. Reglan er bara
sú að borga ef þú getur borgað. Ágóð-
inn og það fé sem safnast er notað í
vorferðalagið sem er farið í maí.
Einu sinni fengum við góðan styrk og
þá var súpa tvisvar í viku. Við gætum
þetta ekki án þess að fá styrk sem við
sækjum til Reykjavíkurborgar og Ör-
yrkjabandalagsins. Við höfum eldað
súpu á fimmtudögum en það er bara
þegar við fáum aukastyrk til dæmis
frá Sorpu, Pokasjóði eða Góða hirðin-
um.
Breiðholtsbrúin
Jóna hljóp í skarðið
kvöldið áður og eldaði
súpu fyrir Breiðhyltinga
í s a mba nd i v ið
Breiðholtsbrúna sem
er nýtt samvinnu-
verkefni Hjálp-
arstarfs kirkjnn-
ar, Hverf isráðs
Breiðholts, sókn-
anna í Breiðholti
og Pepps á Íslandi.
Það er mikil spenn-
ingur fyrir þessu
verkefni sem á fyr-
irmynd í Glasgow
og kallast þar á bæ
„Bridge the Gap“.
Breiðholtsbrú-
in er tengibrú á
milli fólks í hverf-
inu og upphaf-
lega hugmyndin,
eins og hún var
hugsuð í Glasgow,
var að brúa bilið
milli íbúa hverfis-
ins, innlendra og útlendinga. „En
aðallega voru þetta Íslendingar
sem komu gær, hátt í 80 manns og
prestinum var boðið líka,“ segir Jóna
sem eldaði sveitasúpuna sína handa
fólkinu Breiðholtskirkju. Í sveitasúp-
una notar Jóna kjöthakk, grænmeti,
tómatpasta og smá rjóma. „Hún er
rosalega góð,“ segir Jóna.
Breiðholtsbrúin er haldin fyrsta og
þriðja mánudag í hverjum mánuði
- alla jafna í Fella- og Hólakirkju og
byrjað að borða kl. 11.30 og þeir sem
vilja hjálpa til mæta kl. 10
Eldaði fyrir Kaupþing
Jóna sem hefur meirihluta starfsævi
sinnar unnið í eldhúsi er haldin fötl-
un sem hún hefur átt í síðan hún lenti
í slysi 15 ára gömul. „Ég er með mjög
slæmar axlir og get ekki lyft höndum
upp i efri skápana, ég veit ekki hvort
að það sé hægt að kalla þetta lömun.“
Hún lá þrjá mánuði á spítala, og gat
ekki staðið í fæturna. „Og svo stóð
ég upp og fór bara heim í sveitina og
gekk í störfin þar. Sveitin mín er rétt
hjá Ísafirði og heitir
Arnardalur.“
„Ég hef alltaf eld-
að mikið í mötu-
neytum og eld-
húsum. Ég eldaði
lengi fyrir aldr-
aða í Árskógum
og svo eldaði ég
ofan í bankafólk-
ið á Hlemmi þegar
bankinn hét enn-
þá Kaupþing. Þá
var aðaleldhúsið
í Borgartúni og ég
var á Hlemmi. Ég
fékk matinn send-
an og fulleldaði
hann og sá um að
koma þessu í fólk-
ið og vaska upp á
eftir. Þetta stóð í 60
manns. Þar var svo
margt i matinn og gott
og oftast boðið upp á
grænmetisrétti. Súpa á
föstudögum og salatb-
ar og helgarmatur á fimmtudögum.
En ég missti vinnuna í hruninu 2008,
orðin 62 ára gömul og ekki auðvelt
að finna neitt á þeim aldri, segir Jóna
sem hefur hinsvegar staðið í eldhús-
inu í Sjálfsbjörg á hverjum þriðjudegi
og tekið á móti gestum sínum og gefið
þeim súpu og hlýjar móttökur.
Súpuborgin
Víða um borgina er hægt að fá ódýr-
an eða ókeypis mat að borða. Hérna
eru nokkrir staðir nefndir: Hlut-
verkasetrið býður upp á súpu í há-
deginu á miðvikudögum. Nunnurn-
ar af reglu Maríu Teresu bjóða upp
á morgunmat á hverjum degi í húsa-
kynnum sínum í Ingólfstræti. Hjálp-
ræðisherinn í Mjódd býður í mat síð-
asta föstudaginn í mánuði hverjum.
Kaffistofa Samhjálpar, Borgartúni 1
(Guðrúnartúnsmegin), er fyrir utan-
garðsfólk og aðra aðstöðulausa. Af-
greiðslutími hennar er á milli kl. 10
og 14 alla virka daga. Kaffistofan er
einnig opin um helgar en þá er opið
á milli klukkan 11 og 14.
Súpugerðar
meistarinn og sjálf
boðaliðinn Jóna
Marvinsdóttir stendur
við pottana á hverjum
þriðjudegi og tekur á
móti gestum sínum
í félagsheimili Sjálfs
bjargar.
Í súpu hjá Jónu á þriðjudögum
Alda Lóa Leifsdóttir
aldaloa@frettatiminn.is
Síðan ég missti vinnuna árið 2008 hef ég komið hing-að á hverjum þriðjudegi og eldað súpu í hádeginu,“ segir Jóna Marvinsdóttir
matreiðslukona og sjálfboðaliði hjá
Sjálfsbjörg í Hátúni 12, nánar tiltek-
ið Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu.
„Ég reyni að hafa þær góðar,“ bætir
hún við og blítt brosið breiðist yfir
andlit hennar. „Þetta eru um það bil
tíu mismunandi súpur sem ég rótera
með. Fjórar súpur geri ég frá grunni:
íslenska kjötsúpu, sveitasúpu og sjáv-
arréttasúpu ef ég næ í góðann fisk og
gamla brauðsúpan sem er voða vin-
sæl, og svo er auðvitað baunasúpan
á sprengidaginn. Síðan er ég með
nokkrar súpur þar sem ég bæti ein-
hverju eins og blómkáli, sveppum,
og kryddi í grunna sem ég kaupi til-
búna. Ég set súpu dagsins inn á feis-
búkkið kvöldið áður. Í dag er ég með
sveppasúpu.“
Gerir ekki upp á milli
„Þetta er ósköp blandaður hópur
sem kemur hingað í súpu fatlaðir og
ekki fatlaðir,“ segir Jóna og eys súpu
fyrir einn gestinn sem vill fá súpuna
í kaffimál en ekki í súpudiskinn. Fólk
utan úr bæ og svo íbúar hérna úr
blokkunum í kring koma í súpuna.
Þetta er ætlað þeim sem eiga lítinn
pening. Í súpuna í dag mættu um
það bil 25 manns. Það er frekar fá-
mennt en stemmningin er náin og
„Ég hef alltaf eldað mikið í
mötuneytum og eldhús-
um. Ég eldaði lengi fyrir
aldraða í Árskógum og svo
eldaði ég ofan í bankafólk-
ið á Hlemmi þegar bank-
inn hét ennþá Kaupþing.“
Gestum sem eru aflögufærir
er boðið að borga 350 kr. fyrir
súpu og brauð. Ágóðinn rennur í
vorferðina.
Jóna Marvinsdóttir hefur eldað súpur fyrir fólk með litla peninga milli handanna síðan hún missti vinnuna í eldhúsinu hjá Kaupþingi árið 2008. Mynd | Hari
Styrkirnir eru ætlaðir til niðurgreiðslu á kostnaði
vegna kaupa á ljósmyndum til birtingar frá
Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Styrkirnir eru vegna útgáfu bóka og annars efnis
sem kemur út á árinu 2017 eða í ársbyrjun 2018.
Tilgangur styrkveitinganna er að hlúa að varðveislu
menningararfleifðar Reykjavíkur og miðlunar
hennar í fjölbreyttu formi. Þriggja manna dómnefnd
skipuð tveimur starfsmönnum Borgarsögusafns
Reykjavíkur og skrifstofustjóra menningarmála
metur umsóknir.
Í umsókn komi fram nauðsynlegar upplýsingar um
umsækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu
og verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur
vegna afgreiðslu ljósmynda í höfundarétti sem
bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins.
Umsókn merkt ,,Myndrík miðlun/útgáfa“
berist á netfangið menning@reykjavik.is.
Umsóknir berist í síðasta lagi
í dagslok þriðjudaginn 2. maí.
Reykjavíkurborg
Styrkir fyrir sérstaklega
myndríka miðlun/útgáfu tengda
sögu og menningu í Reykjavík
hlýleg. En það fjölgar alltaf þegar fer
að líða á mánuðinn, þegar nær dreg-
ur mánaðamótum. Síðast allavega
var fullt út af dyrum en það var nær
mánaðamótum og forsetinn kom í
heimsókn. „Hann er svo alþýðlegur,
hann talaði við alla. Hann er svo ólík-
ur hinum forsetanum sem kom líka í
heimsókn á sínum tíma. En þeir eru
báðir ágætir á sinn hátt,“ segir Jóna