Fréttatíminn - 11.03.2017, Síða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 11. MARS 2017
Þrif ehf. | Lækjasmári 86 | 201 Kópavogur | Sími: 8989 566 | www.thrif.net
Fyrirtæki og húsfélög, gerum
tilboð ykkur að kostnaðarlausu
Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir
íbúðir sem eru í túristaleigu
Hefur þú þörf fyrir
þrif
Dóra Þórhallsdóttir er einn vinsælasti
uppistandari í Noregi og sýnir fyrir fullu húsi
í hverri viku, ár eftir ár. Hún fjallar um
fjölskylduna og lífið, sem fer ekki alltaf
eins og ætlað er, en grínið byggir hún
á eigin reynslu. Samhliða því sinnir
hún fjölskylduráðgjöf ásamt móður
sinni. Hún er einstæð móðir, gefur
sér tíma til að „deita“ og lifir sko
engu nunnulífi. Þrátt fyrir öll
þessi verkefni óttast hún ekki
að missa tökin. Lykillinn er að
láta ekkert sitja á hakanum.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
„HALLÓ ÍSLAND,“ heyrist hvellum
rómi hinu megin á línunni um leið
og svarað er. Þetta er uppistandar-
inn og fjölskylduráðgjafinn Dóra
Þórhallsdóttir sem talar frá Nor-
egi, þar sem hún hefur alið mann-
inn síðastliðin 40 ár, eða allt frá því
fjölskyldan fylgdi föður hennar út
í tveggja ára framhaldsnám í verk-
fræði. Árin tvö teygðust hins vegar
aðeins.
Dóra er landsþekktur uppi-
standari í Noregi og hefur slegið í
gegn á síðustu árum með raunsönn-
um og meinfyndnum lýsingum á
því hvernig lífið fer ekki alltaf eins
og ætlað er. Eins og hennar eigið líf.
Hún rekur einnig fyrirtæki ásamt
móður sinni sem sérhæfir sig í fjöl-
skylduráðgjöf, fyrirlestrum, rekstri
skóla og barnaheimilis, en þær eru
með fjórtán manns í vinnu.
Liggur í íslenska blóðinu
„Þegar pabbi lauk náminu á sínum
tíma þá bauðst honum vinna í tvö
ár og eftir það átti að flytja heim.
Þannig ég er alin upp við það að við
ætluðum alltaf að flytja heim eft-
ir tvö ár. Það var aldrei langt í að
við færum til baka. Þetta hélt svona
áfram þangað til ég var 18 ára og
þá fór árafjöldinn að verða meiri.“
Rúmum fjörutíu árum síðar er öll
fjölskyldan hins vegar enn búsett
í Noregi, Dóra, tvær systur hennar
og foreldrarnir. Þau hafa þó alltaf
talað íslensku sín á milli og Dóra
talar líka íslensku við börnin sín, 11
og 8 ára, sem reyndar svara henni
á norsku.
Tengslin við Ísland eru líka góð
Varpar kómísku
ljósi á hvers -
dags leikann
og Dóra heimsækir landið á hverju
ári. Hún er nefnilega stolt af ís-
lenska upprunanum og vill meina
að íslenska blóðið sem rennur um
æðar hennar geri það að verkum
að hún er jafn framtakssöm og
raun ber vitni. „Það eru engir aðr-
ir en Íslendingar sem byrja samtal
á þessum orðum: „Er ekki alltaf
nóg að gera hjá þér?“ Ég er voða
íslensk í mér. Það eru margir sem
spyrja mig hvernig ég geti verið í
þessu öllu og með tvö börn sem
ég er með 70 prósent af tímanum.
En þetta liggur allt í íslenska blóð-
inu. Það eru svo mörg orð til í ís-
lensku yfir að klára eitthvað fljótt,
en engin sambærileg í norsku. Það
er mjög séríslenskt að fá hugmynd
og drífa hana strax í gang. Í Noregi
fær maður hugmynd, situr og pælir
í henni í tuttugu ár, eða þangað til
það er orðið of seint að framkvæma
hana. Ég hoppa bara út í hlutina, ég
er ekkert að pæla of mikið í hvort
þetta gangi eða gangi ekki, eða
hvað öðrum finnst. Þess vegna er
alltaf nóg að gera hjá mér og ég lifi
mjög skemmtilegu lífi.“
Kann vel við athyglina
Henni finnst æðislegt að bera ís-
lenskt nafn í Noregi því það vekur
yfirleitt athygli. Sem hún kann vel
við. „Íslendingar taka svo vel eftir
nafninu og þegar ég var að byrja
í uppistandinu þá mundi fólk oft
ekkert hvað ég hét, bara að ég væri
íslenska fyndna konan. Svo er ég
alltaf að tala um Ísland þó ég hafi
alist upp í Noregi. Fólk er mjög fljótt
að vilja heyra eitthvað um Ísland og
segir mér kannski frá einhverjum
Íslendingi sem það var með í skóla
fyrir tuttugu árum og spyrja hvort
ég viti hver það er.“
Dóra fékk líka sinn skerf af
athygli þegar íslenska landsliðið í
knattspyrnu sigraði hug og hjörtu
Evrópubúa með frammistöðu sinni
á EM í knattspyrnu á síðasta ári.
Hún varð eiginlega sjálfskipaður
kynningarfulltrúi landsins í útvarpi
og sjónvarpi í Noregi. „Það vildu all-
ir tala við mig um Ísland. En ég hr-
ingdi bara í frændfólkið mitt á Ís-
land og bað þau um að segja mér frá
því sem var að gerast,“ segir Dóra
hlæjandi. Hún grínast mikið og tek-
ur sjálfa sig sjaldan mjög hátíðlega.
Grein varð að uppistandi
Það var hins vegar algjör tilviljun
að Dóra endaði sem uppistandari.
Þrátt fyrir að vera mjög opin og
hress hafði aldrei hvarf lað að
henni að feta þennan veg. „Margir
grínistar byrjuðu strax í grunnskóla
að vera trúðurinn í bekknum, en
ég var ekki þannig. Ég var reyndar
mjög félagslynd og talaði við alla.
Amma hélt alltaf að mamma gæfi
Ertu orðin leið
á blekkingum?
Dóra Þórhallsdóttir hefur
spreytt sig á ýmsum sviðum
og er þekkt í Noregi fyrir að
hafa kjark til koma til dyr-
anna eins og hún er klædd.
Fyrir tveimur árum leiddi
hún umfangsmikla herferð
í norskum fjölmiðlum gegn
skaðlegum áhrifum auglýs-
inga. Hún sat fyrir á nær-
fötum einum klæða og í
herferðinni var sýnt hvern-
ig tölvutækni er beitt til að
breyta útliti kvenna. Yfirskrift
herferðarinnar var: Ertu
orðin leið á blekkingunum?