Fréttatíminn - 11.03.2017, Side 28
Bryndís Silja Pálmadóttir
bryndis@frettatiminn.is
Sigríður, eða Sigga eins og hún er gjarnan kölluð, hafði lokið öðru ári í sál-fræði við Háskóla Íslands þegar hún
ákvað að fara í viðtal sem
flugfélagið stóð fyrir á
Íslandi. „Ef ég hefði ekki
komist í gegn í fyrsta þá
hefði ég ekki prófað þetta
aftur.“ Sigga er búin
að koma sér vel fyrir
í Dúbaí og er ekki
viss hvenær hún ætlar
að snúa aftur heim. Dvölin
austan hafs hefur nefnilega breytt
sýn hennar á framtíðina.
Berta og Sigga voru vinkonur
áður en Sigga fór út og hún var því
sú sem hvatti Bertu til að sækja
um, en Berta lagði stund á nám í
lögfræði við Háskóla Íslands. „Ég
var ekki alveg að fíla mig í lög-
fræðinni, en var samt ekkert að
hugsa um að hætta. Þetta var mjög
„spontant“ ákvörðun. Ég var að
tala við Siggu daginn áður en við-
tölin voru og hún sagði mér bara
að skella mér. Svo
var hringt í mig og
ég bara fór út, “ segir
Berta og hlær.
Fríðindin sem
fylgja starfinu
eru töluverð.
Flugfreyj-
ur hjá
Emirates
fá til dæmis frítt
húsnæði á vegum fyrirtækisins
og ódýra flugmiða til að ferðast
um heiminn. „Svo fáum við sem
flugfreyjur reyndar fullt af afslátt-
um og aðgang í allskonar rækt-
ir, sundlaugar og strandklúbba,“
segir Sigga
Ákveðin glansmynd fylgir líka
starfinu en bæði Sigga og Berta
kveða vinnuna erfiða og ekki vera
fyrir hvern sem er. Til þess að
hefja störf hjá Emirates þarf mað-
ur til að mynda að sækja stranga
þjálfun í um tvo mánuði þar sem
þær lærðu m.a. hvernig taka ætti
á móti börnum í háloftunum og
að berjast við elda. „Ég myndi
mæla með þessari vinnu ef þú ert
tilbúinn að leggja ýmislegt á þig.
Það er ekkert auðvelt að vera frá
fjölskyldunni og fljúga á allskon-
ar tímum, jafnvel 15-16 tíma flug
og getur verið að vinna með nýju
fólki á hverjum degi,“ segir Sigga.
Berta og Sigga segjast hvorugar
vera í starfinu til þess að safna
peningum. „Fyrir fólk sem er að
koma hingað er þetta meiri upp-
lifun. Þetta er alveg frekar leiði-
gjarnt og einmanalegt ef maður
er bara hér að safna peningum.
Ég er til dæmis að fara til Mexíkó
í næsta mánuði og vil frekar gera
það en að spara,“ segir Berta og
Sigga tekur í sama streng. „Ég er
alveg sammála, ég myndi ekki
mæla með þessari vinnu fyrir þá
sem eru að safna peningum. Þá
ertu betur settur að fljúga bara á
Íslandi. Persónulega finnst mér ég
frekar hafa sparað á ferðalögun-
um og vera reynslunni ríkari. Mér
myndi finnast rosa leiðinlegt að
vera hér ef ég hefði ekki tækifæri
til þess að ferðast.“
28 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 11. MARS 2017
Kjóll
Verð: 9.590 kr PÓSTSENDUM FRÍTT HVERT Á LAND SEM ER
Opið alla virka daga frá kl. 11-18
& Laugardaga frá kl. 11-16
Fákafeni 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is
KJÓLAR FYRIR
FERMINGUNA
Skoðaðu úrvalið á curvy.is eða
kíktu til okkar í Fákafen 9
Stærðir 14-26 eða 42-54
Mikið kjöt á beinum
Sólveig Thoroddsen er myndlistarmaður,
grunnskólakennari og leiðsögumaður.
Lýsing ritstjóra Sólveigar á ljóðabók henn-
ar, Bleikrými, er því vel við hæfi. En að
sögn Sólveigar lýsti hún bókinni sem
líkamlegri með mikið kjöt á beinunum.
„Uppistaðan er kannski ástar- og sakn-
aðarljóð og inn á milli eitthvað allt
annað. Þetta eru samt engin harm-
kvæði.“ Sólveig byrjaði að semja frem-
ur seint á lífsleiðinni en elsta ljóðið í
bókinni er frá því í sláturtíð árið 2011.
„Mér fannst mjög „inspererandi“ að
vera í sláturtíð og mikið um kjöt og líf-
færi og ég skrif-
aði þá ljóð sem
heitir Slátur-
tíð.“ | bsp
Tvær nýjar ljóðabækur
Prófaði að syngja ljóðin
„Ég reyndi að hugsa mikið um hrynjandi í ljóðunum og
prófaði að syngja þau,“ segir Elfur Sunna Baldursdóttir,
höfundur ljóðabókarinnar Gárur. Elfur, sem búsett er í
Berlín, hefur lokið 7. stigi í klassískum söng frá Söngskóla
Reykjavíkur og söngurinn smitaðist því í ljóðin
„Ég er að vonast til þess að þegar fólk les verkið sé
myndmálið áberandi. Mér finnst nefnilega svo áhugavert
hvernig myndir birtast ólíku fólki á ólíkan máta. Þú lest
kannski sömu orð og manneskjan við hliðin á þér en upp-
lifunin er ólík.“
Sólveig skrifaði
bókina Bleikrými,
ritstjóri hennar var
Kristín Svava Tóm-
asdóttir. Mynd |Hari
Elfur
skrifaði
ljóða-
bókina
Gárur,
ritstjóri
hennar var
Kristín
Ólafsdóttir.
Mynd | Hari.
Í vikunni komu út ljóðabækurnar Gárur og
Bleikrými í flokki Meðgönguljóða.
Flugfreyjurnar í Dúbaí Undirbúnar fyrir allt
Berta Snædal og Sigríður Hallfreðsdóttir sögðu
báðar skilið við nám við Háskóla Íslands, fluttu
til Dúbaí og fóru að vinna fyrir flugfélagið
Emirates. En hvað er það sem dregur Íslendinga
svo langt frá heimaslóðunum og hvað er svona
heillandi við þessa vinnu?
Sigga hefur ferðast út um allan heim
sem flugfreyja.
Bæði Berta og Sigga hafa ferðast
víða í starfinu. Hér svamlar
Berta um í Zanzibar.
Sigga og Berta segja ferðalögin vera
aðal aðdráttarafl starfsins.
Allir gefa vinnu sína
Verk eftir Sigurð verður flutt í
lok tónleikanna.
Sigurður skipuleggur
stórtónleika til
styrktar langveikum
börnum.
„Þetta hefur aldrei verið eins viða-
mikið og núna og það er gífurlegur
fjöldi af listafólki sem tekur þátt,“
segir Sigurður Bragason, kórstjórn-
andi og listrænn stjórnandi Stórtón-
leika í Langholtskirkju, til styrktar
Umhyggju, félags langveikra barna,
sem fara fram í dag, laugardag.
Sigurður stendur að tónleikunum
ásamt þeim Pétri Guðmundssyni og
Þorsteini Þorsteinssyni, en þetta
eru sjöttu styrktartónleikarnir
sem þeir halda. Nýr mál-
staður er styrktur á hverju
ári en allur ágóði af tón-
leikunum rennur beint
í styrktarsjóðinn.
„Kveikjan að þessu
í upphafi var sú að það
var maður í kórnum hjá
mér sem lenti í gífurlegu slysi
og lamaðist. Hann spurði hvort
við gætum staðið fyrir styrkt-
arkvöldi fyrir hans félag. Við
gerðum það og þannig byrjaði
þetta. Síðan hafa verið hverjir
tónleikarnir af fætur öðrum,“ segir
Sigurður sem er að vonum stoltur
af verkefninu og öllum þeim lista-
mönnum sem gefa vinnu sína. „Það
er ótrúlegt að fá allt þetta fólk til að
gera þetta. Allir peningarnir fara
til Umhyggju. Við styrkjum félagið
og það útdeilir peningum til þeirra
sem þurfa mest á þeim að halda.“
Það er hefð fyrir því á tónleik-
unum að verk eftir Sigurð sé flutt í
lokin og allir kórarnir og einsöngv-
ararnir taka þátt í því. „Þetta er
gríðarleg vinna og það hefur tekið
mig ár að undirbúa þetta, að hafa
verkið tilbúið og passa að allir æfi
það. Þarna verður 220 manna kór,
bergmálskór, barnakór og
fimm einsöngv-
arar, en með-
al þeirra
sem koma
fram eru
Diddú og
Svavar
Knútur.
Tónleikarn-
ir hefjast klukk-
an 16. | slr