Fréttatíminn - 11.03.2017, Qupperneq 30
30 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 11. MARS 2017
Skrautleg sambúð á HoltsgötunniGrínistinn á Gaza
Reham er 19 ára grínisti á Gaza.
Mynd | Aljazeera.
Ein af þeim er hin 19 ára Reham
al-Khalout sem er ein af fáum
kvenkyns grínistinn á Gaza.
Reham lætur sig dreyma um að
ferðast til Egyptalands og leika
þar, en það getur verið erfitt fyrir
ungt fólk á Gaza að ferðast yfir
landamærin. Reham hefur dyggan
stuðning fjölskyldu sinnar, en
margir hafa verið á móti því að
hún leiki. Reham var til dæmis
trúlofuð en unnusti hennar vildi
að hún hætti að leika, Reham
hætti því við að giftast hon-
um. | bsp
Hópur palestínskra
grínista á Gaza býr til
skemmtiefni og birtir á
veraldarvefnum.
Kúbupartí og
ítalskar pítsur
Bryndís Silja Pálmadóttir
bryndis@frettatiminn.is
Þær Una, Fríða, Auður og Svandís voru góðar vinkonur þegar þær ákváðu að taka íbúð á leigu saman. Una, Fríða
og Svandís voru þá í mannfræði-
deild Háskóla Íslands en Auður í
sálfræðideildinni. Sambúðin hef-
ur verið blómleg og skemmtileg
enda eru þær sammála um að þær
hefðu drepist úr leiðindum við að
búa einar.
Þessa dagana er Svandís á
ferðalagi um Suður-Ameríku og
hún lánaði því hinni grísku Irini
herbergið sitt á meðan hún ferð-
ast. Sambúðin er því sérstaklega
alþjóðleg þessa dagana, enda flutti
hinn ítalski Filippo inn fyrir sex
mánuðum.
Félagsskapurinn ómetanlegur
„Það er geggjað að geta verið að
„chilla“ saman og elda. Svo er
kannski bara þriðjudagskvöld og
við ákveðum að setjast niður með
rauðvín saman,“ segir Auður. „Já,
þú þarft aldrei að pæla í félagslíf-
inu, það er bara heima hjá þér,“
bætir Una við. Það er þó mikil-
vægt að vera sveigjanlegur og
tillitssamur að mati sambýling-
anna enda bjuggu þær saman á
lokaspretti grunnnámsins þegar
enginn nennti að þrífa.
„Þetta var hræðilegt, þegar við
vorum að skrifa BA,“ rifjar Una
upp með hlær og hinar taka í sama
streng. „Þá var allt viðbjóðslegt
hérna, ég man að ég hugsaði á
hverjum degi, oj hvað gólfið er
ógeðslegt.“ En á endanum útskrif-
uðust þær allar. Þá var líka haldið
heljarinnar teiti á Holtsgötunni og
dansað fram á rauða nótt.
Ítalía ber á dyr
Hinn ítalski Filippo Riviera flutti
inn í október, en hann og Fríða
felldu hugi saman þegar hún var í
skiptinámi í Frakklandi. Á síðasta
ári pakkaði því þessi ítalski verk-
fræðinemi saman föggum sínum
og elti ástmey sína til Íslands, þar
sem hann flutti inn til Fríðu og
vinkvenna hennar þriggja. Filippo
er góð viðbót í líflegt heimilislíf-
ið enda er hann frábær kokkur
og reiðir reglulega fram glæsilega
ítalska rétti fyrir sambýlinga sína.
Í áramótateiti, sem sambýlingarn-
ir héldu, eldaði hann til dæm-
is lasagna fyrir mannfjöldann.
„Ég fæ oft skilaboð frá Filippo,
„pítsa í kvöld“ og svo þegar ég
kem heim glorsoltin og held að
ég fái pítsu eru kannski þrír eða
fjórir klukkutímar í hana,“ segir
Auður áköf. „Það tekur náttúru-
lega fimm klukkutíma fyrir deigið
að hefast og sósan þarf að malla í
marga klukkutíma.“ Vinkonurnar
skellihlæja svo þegar Filippo bætir
við sallarólegur: „Þannig á þetta
að vera.“
Castro kaka í Kúbupartíi
Ein af eldri hefðum vinkvennanna
er hið árlega Kúbupartí sem haldið
er hvert sumar. Teitið, sem var
fyrst haldið árið 2013 á heimili
móður Fríðu, verður stærra með
hverju árinu og fylgja því ýms-
ar reglur. „Þessi hefð byrjaði því
við höfum allar komið til Kúbu
eða Suður-Ameríku og við vildum
halda partí þar sem við gætum
dansað salsa og drukkið mohito,“
útskýrir Fríða spennt. „Það eru
ákveðnar kröfur um klæðaburð og
allir verða að koma með vindil. Í
fyrra héldum við veisluna reynd-
ar óvart á 90 ára afmæli Fidels
Castro þannig að við pöntuðum
risa köku með mynd af honum og
sungum afmælissönginn.“ Þær
stöllur eru nú þegar byrjaðar að
leggja á ráðin fyrir næsta teiti en
mikil leynd liggur yfir dagskránni
sem virðist ætla að verða enn mik-
ilfenglegri en síðustu ár.
Fyrir einu og hálfu ári tóku fjórir háskólanemar
snotra íbúð á Holtsgötunni á leigu. Síðan hafa
sambýlingarnir kvatt Háskóla Íslands og bætt
einum ítölskum kærasta í lífsglaða hópinn á
Holtsgötunni.
Sambýlingarnir á Holtsgötu. Þessa dagana býr hin gríska Irini í herbergi Svandísar, en það er allt í lagi því það er stór mynd af
Svandísi inni í stofu. Mynd | Hari.
Aðdáendur norsku unglinga-
þáttanna Skam er löngu farið
að lengja eftir nýrri þáttaröð.
Mikil leynd hvílir yfir fjórðu
þáttaröðinni og höfundar hafa
ekki enn gefið upp hver verður
aðalpersónan að þessu sinni.
Langþreyttir aðdáendur geta
stytt sér stundir með því að
skoða persónurnar á samfélags-
miðlum, til dæmis á Instagram.
Vilde
Vilde gengur undir nafninu @
ellevillevillde á Instagram en hef-
ur ekki verið dugleg að pósta þar
í gengum tíðina. Þar má þó finna
skemmtilegar sjálfur af henni,
myndir af Evu og mat.
Eva
Evu finnst gaman að djamma og
djúsa og endurspeglar instagram
hennar það, enda hefur hún verið
nokkuð virk. @evamohn2
Isak
Á síðu Isaks má finna ást. Kossar á
kinn, vinir og svo bara strákarnir
saman. @isakyaki
Sana
Töffarinn Sana er sérstaklega óvirk
á veraldarvefnum. Það þýðir þó
ekki að ekki sé vert að kíkja á
síðuna hennar. @sana_bakkoush
Noora
Hin pólitíska Noora póstar
myndum af kaffinu sínu, vinum
í þynnku og að sjálfsögðu smá róm-
antík. @loglady99
Chris
Á Instagrami Chris má finna grín og
glens, djammið og myndir af Sönu.
Þar er meðal annars myndin fræga
úr annarri seríu þar sem Sana held-
ur á bjór. @stas_a_vaere_chris
Jonas
Instagram Jónasar er
@jonas9000. Þar má
finna ýmsar myndir
af genginu í skól-
anum, vinum hans
og nokkrar gamlar
krúttlegar myndir af
honum og Evu.
Ertu í SKAM-fráhvörfum?
Í nútímasamfélagi hefur myndast
sá siður að prýða hvern dag ársins
með ótal titlum og hátíðarhöldum.
Í dag er til að mynda alþjóðleg-
ur dagur pípulagna, en hann er
runninn undan rifjum Alþjóðlega
pípulagnasambandsins. Dagurinn
er haldinn til þess minna á mikil-
vægt hlutverk öruggra pípulagna
í lýðheilsu og þægindum almenn-
ings. Sambandið starfar auðvitað
allt árið um kring við að tala fyrir
öruggum pípulögnum en í nokkur
ár hefur verið haldinn einn sér-
stakur dagur að fagna lögnunum
sem liggja um hús okkar. Út um
allan heim eru því skipulagðir við-
burðir og hátíðir í kringum þenn-
an dag, 11. mars. | bsp
Eru pípulagnirnar í lagi?