Fréttatíminn - 11.03.2017, Qupperneq 40
„Við fórum í gegnum
þetta í fyrstu tilraun“
Íslandspóstur hlaut Gullmerki jafnlaunaúttektar PwC árið 2016. Þau hjá Póstinum
stóðust úttektina í fyrstu tilraun og fengu engar athugasemdir í fyrstu atrennu.
Unnið í samstarfi við Íslandspóst
Ásmundur H. Jónsson er for-stöðumaður launadeildar hjá Póstinum. Þegar hann er spurður um ástæð-
ur þess að Pósturinn fór af stað í
þessa vinnu sagði Ásmundur.
„Hvatinn að því að við fórum af
stað í þessa vinnu var áhugi hjá
forstjóranum og stjórninni.
Þannig að við getum sagt að
þetta hafi verið metnaður hjá yfir-
stjórn fyrirtækisins. Við höfðum svo
sem talað lengi um þetta og fylgst
með umræðunni hjá velferðarráðu-
neytinu og vinnunni sem var í gangi
þar. Svo náttúrulega er tíðarandinn
í samfélaginu sem hefur kveikt
áhuga á þessu.“
Var þetta mikil vinna að fara í
gegnum?
„Já, þetta var heilmikill vinna
að fara í gegnum þetta og auð-
vitað vill maður gera þetta vel og
vanda vel til verka þannig að vinnan
skili sér og gögnin sem við fáum í
hendurnar komi að gagni. Þetta er
flóknara heldur en margir halda. Þú
keyrir enga eina keyrslu í gegnum
launakerfið, heldur eru þetta svo
margar breytur sem taka þarf tillit
til. Fólk þarf að horfa í menntun,
starfsaldur, stöðu í skipuriti, starfa-
flokkun, vinnustundir og þar fram
eftir götunum og þetta þurfti allt
saman að kortleggja. Þetta var því
í heildina nokkurra vikna vinna,“
segir Ásmundur.
Hvernig var þín upplifun af því
að fara í gegnum þetta ?
„Við vorum gríðarlega ánægð
með þetta og hvernig vinnan gekk
og hvernig samstarfið við PwC
var allt saman mjög faglegt og
ánægjulegt að öllu leyti. Við sáum
um að afla gagna fyrir þá sem þeir
svo unnu úr og matreiddu svo fyrir
okkur. Við fórum í gegnum þetta í
fyrstu tilraun og það er ekkert mjög
algengt að fyrirtæki geri það,“ segir
Ásmundur.
Borgaði þessi vinna sig?
„Já, ekki spurning. Okkur fannst
þetta vera viðurkenning á því sem
við höfðum verið að gera. Þetta
voru langt frá því að vera fyrstu
skrefin sem við tökum í jafnréttis-
málum. Í gildi er jafnréttisstefna
og það hefur verið starfrækt hjá
okkur jafnréttisnefnd í mörg ár
og hún hefur unnið mjög þarft og
gott starf innan fyrirtækisins þó að
hún hafi ekki komið að launamál-
um hjá okkur. Einnig hef ég, ásamt
forstjóra farið nokkrum sinnum á
ári yfir samanburð og greiningu á
launasetningu í fyrirtækinu og bor-
ið saman við launaþróun sambæri-
legra hópa hjá öðrum fyrirtækjum.
Við höfum m.a. nýtt til þess launa-
kannanir sem við höfum tekið þátt
í hjá fyrirtækjum eins og PwC. Mín
skoðun er sú að öll fyrirtæki ættu
að fara í gegnum þetta. Þetta veitir
fyrirtækjum aðhald og þau fá mjög
góð tæki og tól í hendurnar til þess
að hjálpa sér í þessari vinnu. Ég trúi
því að innst inni vilji enginn mis-
muna, en maður verður að vita hvar
maður stendur. Við reynum alltaf að
hafa það að leiðarljósi að mismuna
ekki neinum eftir kynferði og greiða
sömu laun fyrir jafn verðmæt störf.“
Hvað starfa margir hjá Póstinum
og hvernig er kynjahlutfallið?
„Það er náttúrlega svolítið breyti-
legt eftir árstíma. Á síðasta ári vor-
um við að meðaltali um 1100 manns
sem störfuðum hjá Póstinum. Kynja-
hlutfallið í fyrirtækinu er býsna
jafnt, karlar voru 46% á síðasta
ári og konur voru 54%. Tölurnar
eru mjög svipaðar þegar kemur að
stjórnendahlutfallinu.“
En hvernig sjáið þið framhaldið
fyrir í þessum málum ?
„Við erum hvergi nærri hætt. Við
erum núna í þeirri vinnu að endur-
skoða starfsheiti, því þau verða
að endurspegla það sem fólk er
raunverulega að gera. Eðli starfa
er stöðugt að breytast,“ segir
Ásmundur.
Mín skoðun er sú að öll fyrirtæki ættu
að fara í gegnum þetta, segir Ásmundur
H. Jónsson, forstöðumaður launadeildar
hjá Póstinum. Myndir | Hari
4 LAUGARDAGUR 11. MARS 2017LAUNAJAFNRÉTTI