Fréttatíminn - 11.03.2017, Síða 47

Fréttatíminn - 11.03.2017, Síða 47
· Stofnuð í júní 1991 og er í eigu hagsmunasamtaka í íslensku atvinnulífi. · Hlutverk að veita íslensku atvinnulífi hagkvæma vottunarþjónustu. · Sérhæfir sig í vottun stjórnunarkerfa samkvæmt alþjóðlegum stöðl- um. · Hefur vottað stjórnunarkerfi tæplega 100 fyrirtækja og stofnana. Vottunarstofan Vottun hf. Andri Ómarsson er verkefnastjóri hjá Hafnarfjarðarbæ. Kjartan J. Kárason, framkvæmdastjóri Vottunar hf., segir að íslensk fyrirtæki séu misjafnlega í stakk búin til að gangast undir jafnlaunavottun. Mynd | Hari Embætti tollstjóra hlaut fyrir skemmstu vottun á jafnlaunakerfi sitt hjá Vottun hf. Á myndinni eru Kjartan J. Kárason, framkvæmdastjóri Vottunar hf., og Snorri Olsen tollstjóri. Mynd | Björn Guðmundsson Jafnlaunaráð var skipað í byrjun árs 2016. Í ráðinu sitja Lúvísa Sigurðardóttir gæðastjóri, Haraldur Eggertsson verkefnastjóri, Berglind G. Bergþórsdóttir mannauðsstjóri og Andri Ómarsson verkefnastjóri. Hafnarfjarðarbær var fyrst íslenskra sveitarfélaga til að innleiða samskiptamiðilinn Workplace by Facebook fyrir sína starfsmenn. 11 LAUGARDAGUR 11. MARS 2017 LAUNAJAFNRÉTTI „Hafnarfjarða rbær hefur á tímabi linu mótað launast efnu, uppfært jafnré ttisáætlun og látið gera g reiningu á launum karla og kvenna “ Ætlum að útrýma óútskýrðum launamun Hafnarfjarðarbær hefur verið þátttakandi í tilraunaverkefni fjármála- og velferðarráðuneytis um innleiðingu jafnlaunastaðals síðan 2013 en markmiðið er að eyða óútskýrðum launamun og uppfylla lagaskyldu atvinnurekenda um að greiða konum og körlum jöfn laun og tryggja að þau njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Unnið í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ. Í upphafi var ráðinn verkefnastjóri sem sinnti áætlanagerð vegna innleiðingar, en eftir að ýmsum hindrunum hafði verið rutt úr vegi tók stýrihópur, svokallað jafn- launaráð, til starfa í byrjun árs 2016. „Innleiðingin felst að mestu leyti í því að skjalfesta það verklag sem hefur verið viðhaft hingað til. Hér eru engar kollvarpanir á ferð en þessi vinna hefur leitt af sér ýmis umbóta- verkefni,“ segir Andri Ómarsson verkefnastjóri hjá Hafnarfjarðarbæ. Hafnar- fjarðarbær hef- ur á tímabilinu mótað launa- stefnu, uppfært jafnréttisáætlun og látið gera grein- ingu á launum karla og kvenna. Samkvæmt staðlin- um skal umfang kerfisins ná til alls starfsfólks en hjá Hafnarfjarðarbæ starfa að jafnaði um 1.800 starfs- menn á 70 starfsstöðum. „Þar sem Hafnarfjarðarbær er stór vinnu- staður verða ýmis verkefni risastór og tímafrek. Menntun er t.d. einn þáttur sem hefur áhrif á laun og því þótti mikilvægt að skrá menntun starfsfólks. Ég held að það hafi tekið okkur um þrjá mánuði að fara í gegnum skjalaskápa og skrá menntun allra í mannauðskerfið. En það þýðir að við getum reiknað fyrir áhrifum menntunar og fleiri þátta í jafnlaunaúttekt til þess að finna þann launamun sem eingöngu verður rakinn til kyns,“ segir Andri. Gæðastjóri var ráðinn til Hafnar- fjarðarbæjar í upphafi árs sem meðal annars kemur sterkur inn í þetta umfangsmikla ver- kefni. Fyrstu niður- stöður jafn- launaúttektar benda til þess að allt sé á réttri leið og eru markmið Hafnarfjarðar- bæjar á þessu sviði háleit. Verið er að rýna ferla, skilgreina og flokka störf og bregð- ast við frávikum með það fyrir augum að útrýma óútskýrðum launamun. „Þegar við teljum okkur hafa innleitt staðalinn með full- nægjandi hætti munum við leita til vottunarstofu til að fá staðfestingu á því að unnið sé eftir þeim kröfum sem staðallinn setur og hljóta jafn- launamerki velferðarráðuneytis,“ segir Andri að lokum. Eina íslenska vottunarstofan Vottun hf. framkvæmir jafnlaunavottun fyrir fyrirtæki og stofnanir. Unnið í samstarfi við Vottun hf. Við skynjum mikinn áhuga um þessar mundir. Sum fyrirtæki og stofnanir eru búin að vinna lengi í þessu og vilja gjarnan klára málin áður en holskeflan kemur,“ segir Kjartan J. Kárason, fram- kvæmdastjóri Vottunar hf., sem býður upp á jafnlaunavottun fyrir fyrirtæki og stofnanir. Ráðherra félags- og jafnréttis- mála hefur boðað frumvarp sem festir í lög jafnlaunavottun. Það nær til allra fyrirtækja með 25 starfsmenn og fleiri. Það má því búast við miklum önnum hjá Kjartani og kollegum í Vottun hf. Reyndar er vottunarstofan þegar komin af stað því Embætti toll- stjóra hlaut fyrir skemmstu vottun á jafnlaunakerfi sitt hjá Vottun hf. Vottun hf. var stofnuð árið 1991 af hagsmunaaðilum í íslensku atvinnulífi og er eina íslenska vottunarstofan sem sérhæfir sig í vottun stjórnkerfa samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Þegar jafn- launavottun ruddi sér til rúms hér á landi lá beint við að Vottun tæki að sér að annast framkvæmd hennar. „Íslenskur staðall, ÍST 85, um jafnlaunakerfi kom út árið 2012 og síðan var farið í undirbúnings- vinnu í velferðarráðuneytinu. Út úr því kom reglugerð 929 frá 2014. Með henni eru gerðar ákveðnar kröfur til þeirra sem eru í jafn- launavottunum. Það lá vel fyrir okkur þar sem við erum með fag- gildingu fyrir aðra staðla að fara inn á þetta svið, þetta er náskylt,“ segir Kjartan. Hvernig er ferlið þegar fyrir- tæki eða vinnustaðir óska eftir jafnlaunavottun? „Þetta hefur yfirleitt einhvern aðdraganda. Oft byrjar það á einhverjum þreifingum og upp- lýsingagjöf. Ef fyrirtækið hefur ákveðið að fara í vottun þá þarf að sækja um og í framhaldinu fær það sjálfsmatslista til að meta hvar það stendur. Við fáum svo sjálfsmatslistann afhentan og gögn sem honum fylgja og skipu- leggjum síðan úttekt í fyrirtækinu. Þar er farið yfir alla þessa þætti sem staðallinn fer fram á. Stóri pakkinn er auðvitað launagrein- ingin. Þá þarf að verðmeta störfin og flokka þau í ákveðna flokka og þá á maður að geta séð hvort það sé einhver óútskýrður launamun- ur á milli kynja, að ekki sé verið að mismuna öðru hvoru kyninu. Það að átta sig á stöðu mála er mikil- vægur áfangi.“ Kjartan segir að misjafnt sé hversu langan tíma taki að fram- kvæma úttektir sem þessar. „Sum fyrirtæki og stofnanir eru með vottun samkvæmt einhverjum al- þjóðlegum stöðlum og þá eru auð- vitað ákveðin samlegðaráhrif. Svo er auðvitað misjafnt hvernig fyrir- tæki eru undir þetta búin, sum eru með mjög góðar bókhaldsupplýs- ingar og eiga auðvelt með að gera þetta. Önnur virðast eiga erfiðara með þetta og þá tekur þetta meiri tíma.“ Mesta vinnan og kostnaður- inn við jafnlaunavottun liggur í að koma á stjórnunarkerfi sem upp- fyllir kröfur staðalsins. „Margir spyrja hvað það kosti að fá vottun. Það átta sig ekki allir á því að þeir þurfa kannski að inna af hendi tífalt meiri vinnu en nemur okkar kostnaði. Þeir sem eru á byrjun- arreit þurfa stundum að átta sig á því að þessi innanhúss vinna er stærsti kostnaðarliðurinn,“ segir Kjartan en kostnaður við vottun ræðst af fjölda starfsmanna, mis- munandi starfa og kjarasamninga. Það þarf að reikna út fyrir hvert fyrirtæki og stofnun fyrir sig. Helstu verkþættir eru vottunin sjálf, sem samanstendur af yfir- ferð gagna og úttekt í viðkomandi fyrirtæki eða stofnun. Síðan eru árlegar úttektir til að fylgjast með stöðu mála. Kjartan segir að þó hann og kollegar hans séu bundnir trúnaði um viðskiptavini sína geti hann þó upplýst um eitt sem hafi komið í ljós. „Það hallar ekki alltaf á konur – stundum hallar á kallana líka,“ segir hann sposkur. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni, www.vottunhf.is.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.