Fréttablaðið - 28.03.2018, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —7 4 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 2 8 . M a r s 2 0 1 8
Gleðilega
páska
Opið alla
páskana frá 8–24
í Lyu Lágmúla og
Smáratorgi
Netverslun okkar er
opin allan sólarhring-
inn á ly
a.is
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Fermingarskraut!
Finndu okkur á
Fréttablaðið í dag
sport Haukar og Keflavík
mætast í oddaleik í kvöld. 18
Menning Mattheusarpassía
Bachs flutt norðan og sunnan
heiða um bænadagana. 26
lÍfið Freyr Alexandersson,
landsliðsþjálfari, hefur sett ein-
býlishús sitt á sölu. 32
plús 2 sérblöð l fólK
l garðurinn
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Verið er að rífa gamla skemmtistaðinn Nasa við Thorvaldsensstræti um þessar mundir. Nasa-salurinn var friðlýstur af forsætisráðherra í desember 2013 en hávær mótmæli urðu þess
valdandi að hætt var við að rífa bygginguna alveg eins og til stóð. Þess í stað verður salurinn endurbyggður í upprunalegri mynd í samráði við Minjastofnun. Fréttablaðið/SteFán
sKoðun Hanna
Katrín Friðriksson
leggur áherslu
á að Reykjavík
gleymist ekki
í umræðu um
náttúruvernd.
16
sKipulagsMál „Líklegt má telja
að framtíðarsvæði fyrir uppbygg-
ingu sjúkrahúss sé best komið
í Keldnalandinu,“ skrifar Eyþór
Arnalds í aðsendri grein í blaðinu í
dag. Samkvæmt Eyþóri mundi það
styrkja austurhluta borgarinnar
að flytja þangað stofnanir og fyrir-
tæki. „Landið þar rúmar jafnframt
myndarlega íbúabyggð,“ segir enn
fremur í greininni.
Eyþór fer einnig yfir
hugmyndir sínar í
húsnæðismálum,
meðal annars
um uppbyggingu
hagstæðra íbúða
við Örfirisey sem
hann kallar „Nýja
Vesturbæinn“.
– gþs /
sjá síðu 11.
Vill sjúkrahús
að Keldum
heilbrigðisMál „Við þurfum að
skoða rótina að því að fíknivandi
er að aukast, bæði félagslegar
aðstæður og forvarnarmöguleika
sem og staðreyndina sem lýtur að
offramboði geð- og verkjalyfja,“
segir Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra en biðlistar á Vogi
hafa aldrei verið lengri. Skipaður
hefur verið starfshópur til að sporna
við þessari ofnotkun lyfjanna og er
hópnum ætlað að skila ráðherra
tillögum sínum fyrir 1. maí. Nýjar
tölur SÁÁ sýna að árleg framlög
ríkisins til meðferðarþjónustu SÁÁ
eru rúmum 500 milljónum lægri en
kostnaðurinn við reksturinn. Bilið
er brúað með fjáröflunum en for-
maður SÁÁ segir það vera orðið of
mikið. – gþs / sjá síðu 4
Ráðherra hugsi
yfir stöðu
fíknimeðferðar
VelferðarMál Vöntun hefur verið á
skýrum lagaheimildum handa stofn-
unum til að hafa samskipti sín á milli
um einstaklinga sem talin er hætta á
að brjóti gegn börnum. Í nýju frum-
varpi Silju Daggar Gunnarsdóttur,
þingmanns Framsóknar, eru lagðar
til breytingar á þessu. Í því felst að
þeir sem brjóta kynferðislega gegn
börnum skuli sæta sérstöku mati.
„Það virðist stundum sem kerfið
sé þannig að hægri höndin viti ekki
hvað sú vinstri sé að gera. Hugmynd-
in með frumvarpinu er að tengja
saman stofnanir,“ segir flutnings-
maðurinn.
Séu taldar líkur á því að mati loknu
að viðkomandi brjóti af sér aftur, er
unnt að láta hann sæta sérstökum
öryggisráðstöfunum. Þær gætu
meðal annars falist í skyldu til að
leita meðferðar og eftirliti með inter-
netnotkun. Í alvarlegustu tilfellunum
er hægt að kveða á um bann við
búsetu á heimili þar sem börn dvelja.
Þá er kveðið á um að dómþola sé gert
skylt að tilkynna breyttan dvalarstað
til Barnaverndarstofu sem og nafn-
breytingar. Barnaverndarstofa geti
tilkynnt viðkomandi barnavernd-
arnefnd um flutning einstaklings í
umdæmi hennar.
„Það hefur ekki verið heimilt fyrir
stofnanir að hafa samráð við aðrar
stofnanir sem að þessum málum
koma,“ segir Anna Kristín Newton,
sálfræðingur hjá Fangelsismála-
stofnun. Þótt frumvarpið feli í sér
íþyngjandi ráðstafanir í garð dóm-
þola verði börn að njóta vafans.
Í frumvarpinu er ekki kveðið á um
að nöfn og dvalarstaðir brotamanna
séu gerðir opinberir. Anna segir
það vel. „Rannsóknir sýna að slíkt
hefur öfug áhrif. Það skapar ótta hjá
almenningi og kemur ekki í veg fyrir
frekari brot.“
„Ég fagna því að þetta sé til
umræðu. Vonandi verður niður-
staðan sú að skýrari ferlar liggja fyrir
handa lögreglu, barnaverndar- og
heilbrigðisyfirvöldum og öðrum sem
að málunum koma,“ segir Halldóra
Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri barnaverndar Reykjavíkur.
„Það hefur vantað upp á að skýrt
sé hvaða upplýsingum má deila hve-
nær og með hverjum,“ segir Sigríður
Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins. – jóe
Stofnanir geti deilt vitneskju um níðinga
Fagfólk kallar eftir því að skýrari rammi sé settur um samráð milli stofnana um einstaklinga sem hætta er talin á að brjóti gegn börn-
um. Þingmaður Framsóknar leggur fram frumvarp sem tekur á þessu og leggur til lagabreytingar svo barnaníðingar sæti sérstöku mati.
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
4
-F
3
1
0
1
F
5
4
-F
1
D
4
1
F
5
4
-F
0
9
8
1
F
5
4
-E
F
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K