Fréttablaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 10
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Sama hvert svar rúss- neskra yfirvalda verður við aðgerðum og þrýstingi þá er það fyrir öllu að rússneska þjóðin verði ekki látin gjalda fyrir gjörðir leið- toga sinna. Nýskipan fjármálakerfisins stendur fyrir dyrum. Trúlega verða hér aðeins tveir bankar, og jafnvel eitt erlent útibú, ef bönkum verður leyft, eins og hingað til, að veita alhliða fjármálaþjónustu. Fjármála- ráðherra verður ráðandi í öðrum bankanum og erlendir fjármálamenn í hinum. Hætt er við að þetta fákeppnis- kerfi mótist um of af stjórnmálum í annan endann og erlendri stjórn í hinn. Báðir þessir bankar verða svo kerfismikilvægir að þeir njóta ríkisábyrgðar, jafnvel þótt stjórnmálamenn og bankastjórar afneiti því meðan vel gengur. Almenningur verður látinn taka öll vandræði á sig. Þessum vanda verður að mæta strax. Tryggja verður sérgreiningu fjármálafyrirtækja, eða fullnægjandi aðgreiningu ef leyft verður að hafa ólík svið innan sama fjármálafyrirtækis. Ákvarða verður að meiri- hluti stjórnarmanna búi á Íslandi. Tryggja verður fjarlægð frá flokkshagsmunum. Vanda verður ákvæði um eigið fé, lausafé og þjóðhagsvarúð sem bönkum verður ætlað að lúta. En einnig verður að girða utan um þessa þætti hvern um sig: a) innlán og sparnað einstaklinga og fjölskyldna; b) neytendalán; c) íbúðalán; d) námslán; e) byggðalán; f) greiðslu- og uppgjörskerfi. Raunhæfar hömlur verður að setja gegn arðsókn af öllum þessum síðastnefndum þáttum og gera kröfur um þjónustu, gæði og starfshætti. Annaðhvort verður að kveða á um fullkomna aðgreiningu fjármálafyrirtækja, þannig að sparisjóður sé sér og fjárfestinga- og fyrirtækja- banki sér og svo framvegis, eða a.m.k. tryggja stjórnunar-, fjárhags- og áhættuaðgreiningu. Tryggingasjóður spari- fjár verður að vera sér og tryggingasjóður fjárfesta sér. Efla ber sjálfstæði Bankasýslu ríkisins og tryggja fjarlægð frá flokkshagsmunum. Sambærilegt á við um kosningu bankaráðs Seðlabankans og val í peninga- stefnunefnd. Styrkja verður Fjármálaeftirlitið, herða tök þess og fjölga heimiluðum aðgerðum. Ákvarða verður um hlutverk Samkeppniseftirlits og Neytendastofu. – En auðvitað hrópar það á alla að það vantar spari- sjóð, án arðsóknar, sem hafi allt landið að starfssvæði og einbeiti sér að því að þjóna heiðarlegu fólki á heiðarlegan hátt. Nýtt bankakerfi Hætt er við að þetta fá- keppniskerfi mótist um of af stjórnmál- um í annan endann og er- lendri stjórn í hinn. Jón Sigurðsson fv. skólastjóri Segðu bless við sköfuna og hitaðu bílinn með Webasto bílahitara – Webasto bílahitari -8° -6° -7° 0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 4 27.10.17 14:2 21° Tilfinning BÍLASMIÐURINN HF BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI: 567-2330 www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is Taugaeitursárásin í Salisbury fyrr í þessum mánuði var ekki aðeins til-ræði við fyrrverandi gagnnjósnara Breta hjá rússnesku alríkislögreglunni (FSB), heldur ósvífin og fordæmalaus árás gegn íbúum Evrópu. Tæplega fjörutíu manns urðu fyrir barðinu á Novichok- taugaeitrinu þegar því var sleppt í hjarta smá- bæjarins. Eitrið er, samkvæmt rússneskum vís- indamönnum, það banvænasta sem þróað hefur verið, og var það framleitt í tonnavís á seinni hluta síðustu aldar í Sovétríkjunum. Leiðtogar Evrópusambandsins tóku undir með breskum yfirvöldum að afar líklegt væri að árásin væri á ábyrgð stjórnvalda í Rússlandi, og í gær voru 140 rússneskir útsendarar og diplómatar, í 25 löndum, gerðir brottrækir. Voðaverkið í Salisbury er auðvitað ekki það eina sem skiptir máli í þessum efnum. Hafa ber í huga ólöglega innlimun Krímskaga í Rússland, tilraunir til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2016, umfangsmiklar og ríkis- studdar tölvuárásir, að ógleymdu banatilræðinu við Alexander Lítvínenko, fyrrverandi starfsmann FSB og breskan ríkisborgara, árið 2006 þar sem stórhættulegt geislavirkt efni var notað (pólóníum 210). Fyrir utan þessar árásir á fullveldi ríkja, eins og Úkraínu og Georgíu, og tilraunir til að grafa undan trausti stofnana á Vesturlöndum, ásamt aðgerðum til að raska hinu lýðræðislega ferli sem myndar grundvöll samfélags okkar, þá hafa rússnesk yfir- völd orðið uppvís að kerfisbundnum mannrétt- indabrotum sem eru allt of mörg til að tíunda hér. Vonandi er sú linkind sem þjóðarleiðtogar hafa sýnt rússneskum yfirvöldum á enda. Brottrekstur 140 diplómata er öflugt svar og sömuleiðis eru við- brögð íslenskra yfirvalda yfirveguð, viðeigandi og umfram allt uppbyggileg þar sem áhersla er lögð á að halda samskiptaleiðum milli Rússlands og Íslands opnum. Sama hvert svar rússneskra yfirvalda verður við aðgerðum og þrýstingi þá er það fyrir öllu að rússneska þjóðin verði ekki látin gjalda fyrir gjörðir leiðtoga sinna. Michael Nevin, sendiherra Bretlands á Íslandi, komst svona að orði í Frétta- blaðinu í gær: „Við eigum ekkert sökótt við rússnesku þjóð- ina, sem getur verið stolt af afrekum sínum […] En við deilum öll skyldu til að andæfa metnaði ráðamanna í Kreml til að kljúfa og veikja alþjóða- samfélagið. Í hvert sinn sem rússneska ríkiskerfið brýtur alþjóðalög, eflist hættan sem af því stafar.“ Tímabærar aðgerðir Vilja á HM Í mótmælaskyni við aðgerðir Rússa í Bretlandi munu íslenskir ráðamenn horfa á heimsmeist- aramótið í knattspyrnu í imba- kassanum. Þetta var tilkynnt í fyrradag. Hálf broslegt var að fylgjast með utanríkisráðherra gera grein fyrir aðgerðunum. Sagði hann meðal annars að svona yrði þetta að óbreyttu máli. Líkt og við var að búast brugðust Rússar ókvæða við enda viðbrögð Íslendinga algjör- lega úr hófi fram. Grey Rússarnir þurfa núna sjálfir að sjá um að sporðrenna sínum kavíar og vodka. Þá Guðna og Gulla lang- aði hvort sem er ekki neitt að fara á þetta asnalega HM. Álagið Það að vera þingmaður er tíma- frekt og oft á tíðum vanþakklátt starf. Sem betur fer geta þing- menn þó huggað sig við það að hlunnindin og fríin eru yfirleitt ágæt. Þingmenn eru núna komn- ir í tveggja vikna páskafrí og í maí bíður þeirra tveggja vikna frí vegna sveitarstjórnakosninga sem fram undan eru. Fundað er viku inn í júní en þá tekur við þriggja mánaða sumarfrí sem þó er styttra í ár en fyrri ár. Ástæðan er hátíðarfundur vegna fullveldisafmælis en sá fundur er um miðjan júlí. Vonandi er að það komi ekki í veg fyrir að þeir geti slakað örlítið á og haft það náðugt. joli@frettabladid.is 2 8 . m a r s 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U r10 s K o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð SKOÐUN 2 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 5 -2 E 5 0 1 F 5 5 -2 D 1 4 1 F 5 5 -2 B D 8 1 F 5 5 -2 A 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.