Fréttablaðið - 28.03.2018, Síða 2
Veður
Austan og norðaustan 13-20 m/s
í dag, en 20-25 m/s á Suðaustur-
landi og undir Eyjafjöllum. Rigning,
slydda eða snjókoma á austanverðu
landinu, en þurrt að kalla vestan til.
sjá síðu 22
Matvælastofnun hefur gefið eigendum Dýraríkisins frest til 4. apríl til að aflífa 358 fugla sem fluttir voru til landsins frá Hollandi vegna sníkjudýrs
sem fannst í einum þeirra. Fuglarnir hafa verið í sóttkví frá komu þeirra. „Við erum að fá rosaleg viðbrögð, Páfagaukaspjallið á Facebook logar yfir
málinu,“ segir Þórarinn Þór hjá Dýraríkinu. Þórarinn segir þetta óásættanlegt en hægt sé að meðhöndla fuglana með lyfjum. Fréttablaðið/Þórarinn
P Á S K A E G G
með fylltum lakkrís
Hafnarfjörður „Það slær okkur
ekki vel að það sé haldinn fundur
sem við vitum ekki af en lesum um
hann í fjölmiðlum og svo kemur í
ljós að þar hafa setið embættismenn
bæjarins og fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins; ekki bara bæjarfulltrúar
heldur líka þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins,“ segir Gunnar Axel Axels-
son, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
í Hafnarfirði.
Fundurinn sem Gunnar vísar til var
boðaður í kjölfar þess að úrskurðar-
nefnd umhverfis- og auðlindamála
felldi úr gildi framkvæmdaleyfi fyrir
Lyklafellslínu 1, sem er að sögn bæjar-
yfirvalda í Hafnarfirði forsenda þess
að unnt verði að fjarlægja gamlar
línur sem standa byggingafram-
kvæmdum á Völlunum í Hafnarfirði
fyrir þrifum.
Fundinn sátu helstu embættis-
menn bæjarins og forsvarsmenn
Landsnets auk Ólafs Inga Tómas-
sonar, Sjálfstæðisflokki, sem er for-
maður skipulags- og byggingaráðs
og Jóns Gunnarssonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins.
„Jón Gunnarsson hefur nákvæm-
lega ekkert umboð til að sitja fund-
inn og ekkert erindi heldur. Ég á
hins vegar fullt erindi á hann. Ég hef
umboð frá bæjarbúum til að stýra
bæjarfélaginu ásamt tíu öðrum bæj-
arfulltrúum og sit í bæjarráði sem er
pólitísk framkvæmdastjórn sveitar-
félagsins,“ segir Gunnar.
Bæjarstjórinn, Haraldur L. Haralds-
son, segir hins vegar að það eina sem
vaki fyrir honum sé að þetta mál
vinnist sem best. „Og ég fagna öllum
sem eru tilbúnir til að koma að mál-
inu og veita okkur aðstoð,“ segir Har-
aldur. Aðspurður segir hann hvorki
Bærinn sé ekki deild í
Sjálfstæðisflokknum
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði er ósáttur við að hafa ekki verið
boðaður á fund bæjaryfirvalda um Lyklafellslínu. Bæði bæjarfulltrúi og þing-
maður frá Sjálfstæðisflokki sátu fund embættismanna bæjarins með Landsneti.
beðið hefur verið lengi eftir flutningi á raflínum sem standa byggingafram-
kvæmdum á Völlunum í Hafnarfirði fyrir þrifum. Fréttablaðið/Daníel
þingmanninn né bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins hafa verið boðaða til
fundarins. Klukkutíma áður en fund-
urinn átti að hefjast hafi umræddur
bæjarfulltrúi, sem er formaður skipu-
lags- og byggingaráðs bæjarins, óskað
eftir því að fá að sitja fundinn og bar
þá einnig fram ósk frá Jóni Gunnars-
syni um að fá að sitja hann líka.
Gunnar gefur ekki mikið fyrir
skýringar bæjarstjórans. „Ég held að
þarna séu menn bara hættir að gera
greinarmun á Sjálfstæðisflokknum
og sveitarfélaginu Hafnarfirði og
eru farnir að líta á sveitarfélagið sem
deild í flokknum.“ Hann segir að um
gríðarlega stórt hagsmunamál sé að
ræða fyrir bæjarbúa. Það hafi verið
í ferli í tvö kjörtímabil og um það
hafi verið þverpólitísk samstaða að
mestu leyti. „En í staðinn fyrir að
vinna málið áfram í þverpólitískri
samstöðu og sátt þá er þessi leið farin
og það hugnast okkur mjög illa,“ segir
Gunnar um fundinn.
Haraldur segist lítið geta sagt um
næstu skref að svo stöddu en ljóst sé
að flutningur á línunum muni tefjast
og til greina komi að fara í bráða-
birgðaflutning á þeim samhliða
skoðun á lausn málsins. Fundað verði
um málið með bæjarráði á fimmtu-
daginn í næstu viku.
adalheidur@frettabladid.is
Gunnar axel
axelsson.
Viðskipti Knattspyrnusamband
Íslands sendi nýlega inn beiðni um
stjórnsýslulega niðurfellingu á vöru-
merkjaskráningu Húh!. Í tilkynn-
ingu á vef Knattspyrnusambands-
ins segir að með þessu sé ætlunin
að koma í veg fyrir að utanaðkom-
andi aðilar geti hagnast á auðkenni
landsliða Íslands.
Beiðnin sem KSÍ sendi er tvíþætt,
í fyrsta lagi að fyrrnefnd skráning
verði felld úr gildi þar sem merkið
hafi ekki að bera nægileg sérkenni
til að auðkenna vörur eða þjónustu
eins aðila frá öðrum sem er skilyrði
þess að hægt sé að skrá vörumerki.
Telji skráningaryfirvöld hins vegar
að orðið húh sé skráningarhæft, þá
fer KSÍ til vara fram á að sambandið
eigi meiri rétt á þeirri skráningu á
grundvelli notkunar. – jhh
KSÍ vill ekki
að húh-ið verði
skráð merki
Viðskipti Nýlegur dómur Héraðs-
dóms Reykjavíkur, þar sem felld var
úr gildi ákvörðun ríkissaksóknara
sem staðfesti ákvörðun lögregl-
unnar um að hefja ekki rannsókn
á ásökunum á hendur æðstu emb-
ættismönnum Seðlabankans um
rangar sakargiftir, víkur frá skýru
fordæmi Hæstaréttar.
Dómnum hefur verið áfrýjað til
Landsréttar og telja lögmenn sem
blaðið ræddi við afar sennilegt að
dómstóllinn taki hann til gagn-
gerrar endurskoðunar.
Niðurstaða héraðsdóms var að
annmarkar á lagalegum grund-
velli ákvörðunar ríkissaksóknara
hefðu verið svo verulegir að ekki
yrði hjá því komist að fella hana úr
gildi. Í dómnum segir að augljósir
almannahagsmunir standi til þess
að ákæruvaldið saki ekki menn
um refsiverðan verknað gegn betri
vitund. – kij / sjá Markaðinn
Víkur frá
skýru fordæmi
Hæstaréttar
Páfagaukaspjallið á Facebook logar
HEiLBriGðisMáL Sex hafa látist eftir
að hafa undirgengist magaermiað-
gerðir hjá lækninum Auðuni Sig-
urðssyni. Þetta kom fram í frétta-
skýringaþættinum Kveik í gærkvöldi.
Magaermaraðgerð minnkar magann
um 75 til 80 prósent. Maginn verður
eins og ermi eða banani í laginu.
Fjórar konur hafa látist í Bretlandi
en tvær á Íslandi. Auðun hefur fram-
kvæmt 250 magaermiaðgerðir á
Íslandi en hann heldur úti skurð-
stofunni Gravitas sem starfar frá
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Aðgerðirnar í Bretlandi eru mun
fleiri. Birgir Jakobsson landlæknir
gagnrýndi í þættinum skort á undir-
búningi sjúklinga fyrir aðgerðirnar
og skort á eftirfylgni. – gþs
Sex látnir eftir
magaaðgerðir
2 8 . M a r s 2 0 1 8 M i ð V i k u D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
4
-F
8
0
0
1
F
5
4
-F
6
C
4
1
F
5
4
-F
5
8
8
1
F
5
4
-F
4
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K