Fréttablaðið - 28.03.2018, Page 12

Fréttablaðið - 28.03.2018, Page 12
Skýrsla Ríkisendurskoðunar, Sjúkratryggingar Íslands sem kaupandi heilbrigðisþjónustu og kynnt var í síðasta mánuði, leiðir í ljós að ekki hefur verið gætt hlut­ lægni í kaupum og sölu á heilbrigðis­ þjónustu. Samningar hafi verið gerðir og þjónusta seld út og suður eftirlits­ lítið og engin yfirsýn um hvort fagleg markmið hafi náðst og hvort þjón­ ustan standist í raun kröfur um hag­ kvæmni og verðlagningu. Kostnaðargreining Skýrslan sýnir fram á veikburða við­ leitni til samanburðar á kostnaði milli stofnana, sennilega til að varpa ljósi á mikilvægi þess að öll heilbrigðis­ þjónusta sé vel kostnaðargreind en það er eins og margt annað í skötu­ líki á Íslandi. Við vitum harla lítið um hvað hin einstöku viðvik sem unnin eru í heilbrigðiskerfinu kosta í raun og hvar hagkvæmast sé að inna þau af hendi, hvort það sé í einkageiranum, á minni sjúkrahúsum eða hinum stærri. Stjórnvöld hafa í áraraðir ekkert frum­ kvæði haft að vandaðri greiningu á þessum mikilvægu þáttum. Á meðan dynur á okkur pólitískt trúboð og órökstuddar bábiljur. Drepið er niður fæti í endurhæf­ ingargeiranum og því varpað fram að mikill munur sé á kostnaði við rekst­ ur endurhæfingarmiðstöðvarinnar á Reykjalundi og á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Þarna finnst mér Ríkisendurskoðun fatast nokkuð flugið því þessi samanburður er ekki raunhæfur, þessar stofnanir eru ekki sambærilegar. Það þarf ekki annað en að skoða samsetningu fagfólks til að sjá að meðferðarstarfið er mjög ólíkt. Heilsustofnun NLFÍ gegnir vissulega mikilvægu hlutverki fyrir þá ein­ staklinga sem nýta sér meðferðina þar. Reykjalundur veitir hins vegar mjög sérhæfða þjónustu sem er ein­ stök á Íslandi. Ef raunverulegur vilji er til að bera kostnað við endurhæf­ ingu á Reykjalundi saman við sam­ bærilegar stofnanir, þá þarf að leita lengra. Þannig er t.d. kostnaður við hvern einstakling sem endurhæfður er á Sunnås í Noregi tvöfalt hærri en á Reykjalundi en það er mun sam­ bærilegri stofnun. Það hefði hugsan­ lega verið nærtækara og einfaldara að bera saman raunkostnað á þremur sjúkrahúsum á Íslandi við tilteknar og vel afmarkaðar aðgerðir, t.d. lið­ skiptaaðgerðir á Landspítala, Akra­ nesi og Akureyri. Þar hefðu fengist býsna fróðlegar niðurstöður. Vinnu­ brögð í hálfkæringi eru ekki viðun­ andi í svo mikilvægum og dýrum málaflokki. Opinberar heilbrigðisstofnanir Viðmót Sjúkratrygginga Íslands gagn­ vart opinberum heilbrigðisstofn­ unum hefur líka verið með hreinum ólíkindum, ekki síst á landsbyggðinni þar sem ríkt hefur verulegt ógegnsæi. Við eigum líklega um 20.000 fer­ metra af vel búnu húsnæði, bara hér á suðvesturhorninu sem eru algjör­ lega vannýttir, húsnæði sem við eigum sjálf, kaupandi þjónustunnar, seljandinn og greiðandinn. Við erum engu að síður teymd, villuráfandi inn á markaðstorg viðskiptanna og vitum harla lítið hvað við fáum fyrir pening­ inn, aðgangur að sjúkraskráningu er brotakenndur og takmarkaður. Hér þarf að snúa við blaðinu, við eigum að fela okkar eigin stofnunum hlut­ verk við hæfi. Hugur ráðherra Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavars­ dóttir, hefur viðurkennt að það ríki talsverður glundroði í kerfinu og lík­ lega er hann hvergi jafn sláandi og gagnvart Sjúkratryggingum Íslands. En stofnuninni er þrátt fyrir allt nokkur vorkunn. Leiðarljós í starf­ seminni ætti auðvitað að vera stefna heilbrigðisráðherra um heilbrigðis­ þjónustu. Gallinn er bara sá að heild­ stæð stefna í þeim anda sem lög um heilbrigðisþjónustu kveða á um og lög um sjúkratryggingar vísa til hefur hreinlega aldrei verið sett fram, svo ekki er von á góðu. Heilbrigðisráðherra hefur lýst því yfir að hún muni beita sér fyrir stefnumörkun í sátt við þing og þjóð, sem er mikil áskorun en grundvallar­ atriði. Í því mun hún eiga stuðning Samfylkingarinnar vísan sem talar fyrir öguðu frjálsræði og skilvirkni í kerfinu. Sú endurskoðun sem fram fer hlýtur að leiða hugann að því, hvort ekki sé nauðsynlegt að endurmeta frá grunni hlutverk og starfsemi Sjúkra­ trygginga Íslands, þessarar spilaborg­ ar ákafra sjálfstæðismanna. Skýrsla Ríkisendurskoðunar vitnar um að sú spilaborg er hrunin. Sjúkratryggingar Íslands Guðjón S. Brjánsson alþingismaður Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar­innar er stefnt að kolefnishlut­lausu Íslandi árið 2040. Ríkis­ stjórnin samþykkti nýlega að setja Stjórnarráðinu loftslagsstefnu og útbúa aðgerðaáætlun sem hefur það að markmiði að gera starfsemi ráðuneyta Stjórnarráðsins kolefnis­ hlutlausa. Verkefnisstjóri mun leiða þessa vinnu og jafnframt veita stofn­ unum hins opinbera fræðslu og ráð­ gjöf í þessum efnum. Með ákvörðun sinni sýnir ríkisstjórnin gott fordæmi í loftslagsmálum, en aðgerðin er hluti af heildaraðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum sem kynnt verður síðar á árinu. Aukið magn gróðurhúsaloftteg­ unda í andrúmslofti, þar með talið koltvísýrings, veldur hlýnun jarðar og loftslagsbreytingum. Spáð er mjög neikvæðum áhrifum á lífríki og efna­ hag þjóða heims ef ekki verður gripið til aðgerða. Markmiðið um kolefnis­ hlutleysi er því skýr skilaboð um að Ísland ætlar að skipa sér í framvarðar­ sveit í loftslagsmálum. Til að ná kolefnishlutleysi og leggja þannig drjúgan skerf til umhverfis­ mála þarf annars vegar að draga eins mikið og hægt er úr útlosun gróður­ húsalofttegunda frá öllum geirum samfélagsins með hugviti og tækni­ framförum, grænni nýsköpun og umhverfisvænni neysluvenjum. Hins vegar, til að koma útlosuninni í núllið (kolefnishlutleysi), þarf að ráðast í aðgerðir sem tengjast ekki beint við­ komandi geira eða starfsemi. Slíkar aðgerðir eru til dæmis landgræðsla og skógrækt því þar er koltvísýringur bundinn í gróðri og jarðvegi með ljóstillífun plantna. Það að moka ofan í skurði og koma þannig í veg fyrir útlosun koltvísýrings er önnur leið. Aðgerðir sem þessar geta jafn­ framt náð fram öðrum markmiðum í umhverfismálum og náttúruvernd, s.s. endurheimt birkiskóga, votlendis og annarra landgæða. Það er auðvitað sérlega jákvætt. Stjórnvöld munu aldrei leysa áskoranir í loftslagsmálum ein og sér, en þau þurfa að sýna frumkvæði, kjark og elju. Frumkvæði nokkurra sveitarfélaga, fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka sem hafa tekið upp stefnu um kolefnishlutleysi er til mikillar eftirbreytni. Ég vonast til að þessi ráðstöfun ríkisstjórnarinnar komi Stjórnarráðinu fljótt og örugg­ lega í hóp þeirra metnaðarfyllstu og við munum styðja við stofnanir okkar í þessari sömu viðleitni. Saman þarf svo samfélagið að leggjast á árarnar og róa í takt. Ég hlakka til að vinna að því markmiði með sem flestum. Kolefnishlutlaust Stjórnarráð Í síðustu viku snupraði Einar K. Guðfinnsson í grein í þessu blaði Jón Þór Ólason, formann Stangaveiðifélags Reykjavíkur, fyrir að taka ekki mark á því sem Einar kallaði „staðreyndir“. Svo óheppi­ lega vill þó til fyrir Einar að vís­ indamaðurinn sem hann vitnaði til kannast alls ekki við að þær „stað­ reyndir“, sem Einar vill heimfæra upp á Ísland, eigi við um Ísland. Þvert á móti reyndar. Einar hefði hæglega getað komist að þessu með því að hafa samband við umræddan vísinda­ mann. Ef hann hefði gert það þá hefði hann komist  að raun um að skilningur hans var rangur. En mögulega var það ekki það sem Einar vildi heyra? Við hjá Icelandic Wildlife Fund tókum ómakið af Einari og settum okkur í samband við doktor Kevin Glover. Einar benti í grein sinni á niðurstöður doktors Glovers og félaga um að lítil blöndun eldislax við villilaxastofna hefur takmörk­ uð áhrif villtu stofnana, samkvæmt líkani sem vísindamennirnir hafa útbúið. Einar lét þess hins vegar ógetið að þessi rannsókn fór fram í Noregi þar sem notaður er norskur lax í eldinu. Í Noregi er stranglega bannað að nota eldislax sem er ekki norskur að uppruna. Hér á Íslandi er hins vegar alinn norskur eldislax í sjókvíum og áhættan þegar kemur að erfðablöndun því allt önnur, eins og doktor Glover staðfesti í svari sínu til IWF: „Eldi á norskum ræktuðum laxi á Íslandi felur í sér aukaáhættu vegna við­ bótar erfðafræðilegra þátta sem ekki er tekið tillit til í líkaninu.“ Einar á að vita að norskur eldis­ lax er aðskotadýr í íslenskri nátt­ úru. Þegar eldislax af norskum stofni var fyrst fluttur til Íslands var það gert með þeim skilyrðum að hann yrði eingöngu notaður í landeldi og færi aldrei í sjó við Ísland. Það var mikið ógæfuspor þegar fallið var frá því skilyrði árið 2003. Ástæða er til að velta fyrir sér hvort þessi rangi málflutningur Einars, sem er formaður stjórnar Landssambands fiskeldisstöðva, sé byggður á þekkingarleysi eða ásetningi. Hver svo sem skýringin er, þá er staðreyndin sú að líkan dokt­ ors Glovers snýst eingöngu um norskan eldislax og norskan villi­ lax. Ekkert líkan er til um áhrif erfðablöndunar norsks eldislax við íslenska villilaxastofna. Icelandic Wildlife Fund hafnar því alfarið að sú tilraun fari fram í íslenskri náttúru. Ásetningur eða þekkingarleysi Einars K. Ingólfur Ásgeirsson einn af stofnendum Icelandic Wild- life Fund Guðmundur Ingi Guð­ brandsson umhverfis- og auðlinda- ráðherra Stjórnvöld munu aldrei leysa áskoranir í loftslagsmálum ein og sér, en þau þurfa að sýna frumkvæði, kjark og elju. Frumkvæði nokkurra sveitarfélaga, fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka sem hafa tekið upp stefnu um kolefnishlutleysi er til mikillar eftirbreytni. Heilbrigðisráðherra hefur lýst því yfir að hún muni beita sér fyrir stefnumörkun í sátt við þing og þjóð, sem er mikil áskorun en grundvallar atriði. Í Havarti pipar er piparkornum bætt í ostinn og kallast piparinn og milda ostabragðið skemmtilega á. Havarti pipar passar vel á hamborgarann eða með grófu brauði og kexi og er jafnframt frábær viðbót við ostabakkann. HAVARTI PIPAR GLETTILEGA GÓÐUR www.odalsostar.is PIPAR 2 8 . m a r s 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U r12 s K o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð 2 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 5 -1 A 9 0 1 F 5 5 -1 9 5 4 1 F 5 5 -1 8 1 8 1 F 5 5 -1 6 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.