Fréttablaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 22
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR 588 80 40 www.scanver.is RAFMÓTORAR – Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is Gert er ráð fyrir að 2,6 milljarðar króna verði greiddir til eignar- haldsfélagsins LBI í næsta mánuði eftir að fallið var frá málaferlum í deilu félagsins og breska kaup- sýslumannsins Kevins Stanford fyrr í mánuðinum. Stanford hafði krafið félagið, sem heldur utan um eignir gamla Landsbankans, um 11,6 milljarða króna gagnkröfur sem hann vildi að gengi upp í skuld hans við LBI. Kom málið til kasta íslenskra dómstóla, en greint var frá því í ársreikningi LBI, sem var birtur í síðustu viku, að fallið hefði verið frá málaferlunum. LBI hefur á síðustu árum staðið í málaferlum vegna innheimtu á tveimur fasteignalánum sem Stan- ford fékk hjá Landsbankanum í Lúxemborg árið 2007. Lánin voru með veði í fasteign í Kensington- hverfinu í miðborg Lundúna annars vegar og skíðaskála á Chourchevel- skíðasvæðinu í frönsku Ölpunum hins vegar. Söluandvirði eignanna var lagt inn á vörslureikning í Bretlandi á meðan beðið var niðurstöðu íslenskra dómstóla og gera stjórn- endur LBI nú ráð fyrir að 21,4 millj- ónir evra, jafnvirði um 2,6 milljarða króna, verði greiddar af reikningn- um til LBI. – kij Fallið frá málaferlum gegn LBI Kevin Stanford. Nýlegur dómur Hér-aðsdóms Reykja-víkur, þar sem felld var úr gildi ákvörðun ríkissak-sóknara sem stað- festi ákvörðun lögreglunnar um að hefja ekki rannsókn á ásökunum á hendur æðstu embættismönnum Seðlabankans, víkur frá skýru for- dæmi Hæstaréttar, æðsta dómstóls landsins, frá árinu 2008. Dómi héraðsdóms, sem kveðinn var upp í byrjun mánaðarins, hefur verið áfrýjað til Landsréttar, sam- kvæmt upplýsingum Markaðarins, og telja lögmenn sem blaðið ræddi við afar sennilegt að dómstóllinn taki hann til gagngerrar endur- skoðunar. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu árið 2008 að ákvörðun ríkissaksóknara um meðferð vald- heimilda sinna, svo sem um að hefja lögreglurannsókn, gæti eðli sínu samkvæmt ekki sætt endurskoðun dómstóla. Allar götur síðan hefur verið talið að það sé í verkahring ákæruvaldsins – ríkissaksóknara – að ákveða hvort af rannsókn verði og að það geti ekki heyrt undir dóm- stóla að endurskoða þá ákvörðun. Í dómi Héraðsdóms Reykja- víkur, sem kveðinn var upp af Skúla Magnússyni héraðsdómara, kveður hins vegar við annan tón. Segir þar að þótt ríkissaksóknari njóti sjálf- stæðis gagnvart öðrum þáttum framkvæmdarvalds og fari með endanlegt ákvörðunarvald um til- tekin efni, þá sé honum „ekki falið fullnaðarúrskurðarvald eða ákvarð- anir hans undanskildar lögsögu dómstóla með lögum“. Lögmenn sem Markaðurinn ræddi við í skjóli nafnleyndar segja mikil tíðindi felast í umræddri niður stöðu Skúla. Einn segir dóm- inn vekja furðu og telur að héraðs- dómur hafi þurft að rökstyðja þá stefnubreytingu sem felst í dómnum betur. Landsréttur, hvað þá Hæsti- réttur ef málið kemur til kasta hans, eigi trauðla eftir að fallast á „fátæk- legar“ röksemdir héraðsdóms. Gísli Reynisson, sem var einn fjór- menninganna sem ákærðir voru í Aserta-málinu svonefnda, fór haust- ið 2016 fram á að lögreglan rann- sakaði hvort æðstu embættismenn Seðlabanka Íslands hefðu borið á þá rangar sakir. Var þá einkum vísað til Más Guðmundssonar seðlabanka- stjóra, Sigríðar Logadóttur, aðallög- fræðings bankans, og Ingibjargar Guðbjartsdóttur, sem var forstöðu- maður gjaldeyriseftirlits sömu stofnunar. Fjórmenningarnir voru, sem kunnugt er, sýknaðir af öllum ákæruliðum í málinu gegn þeim. Kæra Gísla til lögreglunnar byggði á því að embættismenn Seðlabank- ans hefðu ítrekað gefið ýmist rangar Víkur frá skýru fordæmi Hæstaréttar Dómi héraðsdóms, þar sem ógilt var staðfesting ríkissaksóknara á ákvörðun lögreglu um að hefja ekki rannsókn á röngum sakargiftum stjórnenda Seðla- bankans, hefur verið áfrýjað. Dómurinn gengur gegn fordæmi Hæstaréttar. Már Guðmundsson seðlabankastjóri og fleiri embættismenn í bankanum eru sakaðir um að hafa borið á menn rangar sakir. Fréttablaðið/SteFán Augljósir almanna- hagsmunir standa til þess að handhafar rann- sóknar- og ákæruvalds saki ekki menn um refsiverðan verknað gegn betri vitund. Úr dómi Héraðsdóms Reykjavíkur eða villandi upplýsingar og komið því þannig til leiðar að hann hefði verið ranglega sakaður um refsi- verðan verknað. Lögreglustjórinn á höfuðborgar- svæðinu hafnaði hins vegar að taka meint brot embættismanna bankans til rannsóknar og í febrúar í fyrra staðfesti ríkissaksóknari þá ákvörðun lögreglustjórans. Héraðsdómur komst síðan að öndverðri niðurstöðu í byrjun þessa mánaðar, eins og áður sagði, og felldi ákvörðun ríkissaksóknara úr gildi. Var það niðurstaða héraðs- dóms að annmarkar á lagalegum grundvelli ákvörðunar ríkissak- sóknara hefðu verið svo verulegir að ekki yrði hjá því komist að fella hana úr gildi. Þó var tekið fram í dómnum að með niðurstöðunni væri engin afstaða tekin til gildis ákvörðunar lögreglustjórans um að hafna að taka meint brot stjórn- enda Seðlabankans til rannsóknar. Sú ákvörðun hefði enda ekki verið til úrlausnar í málinu. Lögmenn sem Markaðurinn ræddi við segja dóm héraðsdóms nokkuð afdráttarlausan. Þannig er nefnt í dómnum að ásökun um refsi- verðan verknað, án tillits til endan- legrar niðurstöðu málsins, kunni að vera „íþyngjandi fyrir saklausan mann“ með margvíslegum hætti, auk þess sem „augljósir almanna- hagsmunir“ standi til þess að hand- hafar rannsóknar- og ákæruvalds saki ekki menn um refsiverðan verknað gegn betri vitund. Ef Landsréttur staðfestir dóm héraðsdóms stendur ákvörðun lög- reglustjórans óhögguð að sinni, en málið fer hins vegar aftur á borð ríkis saksóknara, að sögn viðmæl- enda Markaðarins. Gísli hefur auk þess stefnt íslenska ríkinu og krafið það um skaðabætur vegna málsins. Er gert ráð fyrir að aðalmeðferð fari fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í maí. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, sem kærði einnig æðstu stjórnendur Seðlabankans til lögreglunnar, sagði í pistli á vef sjávarútvegsfyrirtækisins í síðustu viku að þótt honum hefði orðið lítið ágengt í baráttu sinni þá eygði hann enn von, sérstaklega í ljósi fyrr- nefnds dóms Héraðsdóms Reykja- víkur. Hann sakaði embættismenn- ina um að hafa borið sig röngum sökum og krafðist þess að lögreglan tæki málið til rannsóknar. Lögreglustjóri vísaði málinu hins vegar frá og staðfesti ríkissaksókn- ari þá ákvörðun. Voru rökin meðal annars þau að Samherji hefði ekki sýnt fram á að embættismennirnir hefðu haft beinan ásetning til rangra sakargifta. „Stjórnendur Seðlabankans hafa talið sig geta þaggað þetta mál niður og vonast til þess að ég gefist upp. Það mun ég ekki gera,“ skrifaði Þor- steinn Már. kristinningi@frettabladid.is Framkvæmdir á nýrri lóð útvarpshúss RÚV skýra stóraukna fjárfestingu félagsins á síðasta ári, að sögn Magn- úsar Geirs Þórðarsonar útvarpsstjóra. Samkvæmt ársreikningi RÚV keypti félagið varanlega rekstrarfjármuni fyrir um 542 milljónir króna í fyrra. Er það aukning upp á 52 prósent frá fyrra ári. Mestu munaði um auknar fjár- festingar í fasteignum. Magnús Geir segir að í framhaldi af því að RÚV seldi byggingarrétt á stórum hluta af lóð- inni við Efstaleiti hafi verið nauðsyn- legt að endurskipuleggja þá lóð sem félagið hefur til umráða eftir söluna. „Kostnaður vegna framkvæmda við endurbyggingu lóðar RÚV er meðal annars til uppbyggingar bílastæða og aðkomu að útvarpshúsinu,“ segir hann. – kij Stóraukin fjárfesting RÚV 2 8 . m a r s 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U r4 mArkAðurinn 2 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 5 -2 9 6 0 1 F 5 5 -2 8 2 4 1 F 5 5 -2 6 E 8 1 F 5 5 -2 5 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.