Fréttablaðið - 28.03.2018, Síða 26

Fréttablaðið - 28.03.2018, Síða 26
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 , Það er einfalt og skemmti-legt að búa til heimagert páskaegg en kostar svolítinn tíma, dund og þolinmæði,“ segir Júlía Sif Ragnarsdóttir þar sem hún dundar sér heima í eldhúsi við gerð dýrindis páskaeggs. Páskaegg Júlíu er fyrir græn- kera og í skálum má sjá litríkt og freistandi úrval af vegan sælgæti; lakkrís, brjóstsykur, hlaup og súkkulaði. „Úrval vegan sælgætis hefur aldrei verið meira og allt er það hvað öðru gómsætara, en það var alveg ágætt þegar framboðið var minna því þá borðaði maður ekki eins mikið af nammi,“ segir Júlía hláturmild og stingur upp í sig vinsælli hauskúpu sem lengi hefur fengist á nammibörum landsins en fæstir gert sér grein fyrir að sé vegan. „Íslenskur lakkrís er flestur vegan en ekki íslenskt hlaup sem inniheldur gelatín úr dýraafurð- um. Það kemur mörgum á óvart hvað innflutt vegan-hlaup er ljúf- fengt, sem og súkkulaði úr hrís- mjólk eða annarri jurtamjólk og er rjómakennt og bráðnar eins og hefðbundið súkkulaði,“ útskýrir Júlía í páskaeggjagerðinni. Snæddi frekar bolinn sinn Júlía hefur verið grænkeri í fimm ár og heldur úti vefsíðunni Veganistur.is með eldri systur sinni, Helgu Maríu. „Ég hef alltaf litið upp til Helgu og gert allt eins og hún,“ segir Júlía um tilurð þess að hún gerðist grænkeri. „Helga veiktist af ein- kirningasótt og var lengi lasin og eftir sig vegna hennar. Við systurnar höfðum ekki einu sinni heyrt hugtakið vegan þegar við duttum niður á myndband um vegan fæði og Helga ákvað að láta á það reyna sér til heilsubótar, með góðum árangri. Ég ákvað því að prófa að gerast grænkeri eins og Helga og sé ekki fyrir mér að Júlía hefur gert páskaegg úr hreinu súkkulaði, hvítu- og núggatsúkkulaði og vitaskuld passar aðferð hennar við hefðbundin páskaegg líka . MYND/ERNIR Vegan páskaegg 4 plötur Ichoc Classic súkkulaði (Fæst í Nettó) Nammi sem hugurinn girnist. Júlía notaði eftirfarandi: Bubs-hlaup (fæst í Krónunni), Biona-hlaup (fæst í Nettó), Brak dökkt (fæst í Iceland), Lakkrís Svartur brjóstsykur Hjúplakkrís sem Júlía hjúpaði með Classic-súkkulaðinu (Athugið að flestur lakkrís er vegan nema fylltur lakkrís og lakkrískonfekt. Mjólkursýra er líka vegan og ekki unnin úr kúamjólk.) Temprið ⅔ af súkkulaðinu yfir vatnsbaði og hrærið í á meðan. Þegar súkkulaðið er bráðið er það tekið af hitanum og restinni, sem var tekin frá (⅓), bætt út í og hrært þar til allt er bráðnað. Hellið vel af bræddu súkkulaði í páska- eggjaform og veltið um í góða stund. Leggið formin á hvolf yfir skál í allt að 10 mínútur. Endurtakið þrisvar eða þar til þykkt lag af súkkulaði hefur myndast í formunum. Gætið þess að brúnirnar séu einn- ig þykkar svo auðvelt sé að festa eggin saman. Ef setja á lakkrískurl eða Rice Krispies út í súkkulaðið er best að setja fyrst eitt lag af súkkulaði í formin, áður en kurlinu er bætt saman við. Formin þurfa að sitja í frysti í minnst 30 mínútur eða þar til súkkulaðið hefur losnað frá plastinu. Þegar form er lagt á hvolf á eggið að detta auðveldlega úr því. Til að festa eggjahlutana saman er best að tempra súkkulaði og láta það kólna við stofuhita þar til það verður ágætlega þykkt. Munið að fylla eggin með sælgæti, málshætti eða öðrum glaðningi áður en því er lokað! ég snúi nokkurn tímann til baka, bæði vegna heilsufarslegs ávinn- ings en ekki síður vegna dýra- og umhverfissjónarmiða, sem okkur finnst skipta mjög miklu máli.“ Áður hafði Júlía verið heilluð af kjötréttum en Helga ekki. „Sem barn var ég strax orðin mikill matgæðingur og ætlaði að verða kokkur. En eftir að gerast grænkeri fer maður að líta dýraafurðir öðrum augum og sér þær ekki lengur sem valkost í mat. Ég æti því sennilega bolinn minn frekar en kjöt héðan af,“ segir Júlía. Hún segir grænkera geta notið sældar- og sælkeralífs um páska og nóg sé til af góðu hráefni. „Ég er dugleg að bjóða vinum mínum og ættingjum í vegan mat og bakstur til að sýna þeim fram á hvað grænkerafæði er gómsætt og gott í maga. Þá kemur fólki alltaf jafn mikið á óvart hvað grænkerar borða ljúffengan og fjölbreyttan mat. Margir mikla svo grænkera- matseldina fyrir sér en hún er alls ekki eins mikið mál og margir halda,“ segir Júlía. Í vinahópi Júlíu og Helgu hafa margir gerst grænkerar og græn- metisætur eftir gómsæt veganboð. „Þeir hafa séð ávinning þess að snúa baki við neyslu dýraafurða þegar við höfum opnað augu þeirra fyrir umhverfis- og dýra- vernd. Þegar öllu er á botninn hvolft missa þeir heldur ekki af neinu né sakna úr dýraríkinu,“ segir Júlía. Vegan Wellington á páskum Júlía er alin upp við fagurskreytt heimili foreldra sinna á páskum og ætlar að heiðra móður sína með því að prýða heimili sitt með blómum og páskaskrauti yfir hátíðina. „Ég verð í mat hjá mömmu á páskadag og við ætlum að hafa vegan hátíðarmat. Við vorum með vegan jólamat sem féll vel í kramið hjá fjölskyldunni og allir eru spenntir að setjast að vegan hátíðarborðinu aftur. Í stað páskalambsins verðum við með Oumph!-sojakjöt sem við útbúum eins og Wellington-steik, innbakað í smjördegi með sveppasósu og brúnuðum kartöflum. Það sló í gegn á jólunum og má sjá upp- skriftina á heimasíðunni okkar,“ útskýrir Júlía sem lærir viðskipta- fræði við HÍ en Helga systir hennar nemur mannfræði í fjarnámi frá Svíþjóð. „Þeir grænkerar sem ekki hafa tíma til að búa til páskaegg geta fundið vegan páskaegg í flestum matvöruverslunum. Nói Síríus er með vegan egg í umbúðum með grænum miða og allt súkkulaði og sælgæti í egginu er vegan. Þá fást innflutt og gómsæt vegan egg í Krónunni og Heilsuhúsinu. Það þarf ekki að vera flókið að gleðja sælkera á páskum og líka hægt að kaupa súkkulaði og sætindi og setja í fallega öskju eða páskaeggja- box til að njóta.“ Skoðið gómsæta veganrétti systr- anna Júlíu og Helgu á veganistur.is. K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D Komdu og fáðu glaðning Full búð af nýjum vörum 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . M A R S 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R 2 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 5 -3 8 3 0 1 F 5 5 -3 6 F 4 1 F 5 5 -3 5 B 8 1 F 5 5 -3 4 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.