Fréttablaðið - 28.03.2018, Qupperneq 30
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429
Björn Jóhanns-
son landslags-
arkitekt hefur
teiknað garða
Íslendinga
síðustu 20
árin og mun
gera það áfram
næstu 20.
Viðhaldsfríir pallar. Skemmtilegt útsýni er úr pottinum yfir fallegt svæðið.
ingar, gróðurplan og staðsetningu
ljósa. Oft er stuðst við hugmyndir
sem garðeigandinn hefur fundið
á netinu eða jafnvel séð erlendis í
sumarfríinu.
Stofan færð út í garð
Við spurðum Björn um hvað sé
heitast í garðhönnun í dag. „Það
sem mér finnst mest áberandi
er hvað fólk er tilbúið til þess
að flytja út í garð á sumrin. Með
grillskýlum, útieldhúsum, hengi-
rúmum, sófasettum, gróðurhúsum
og litlum skálum eru margir farnir
að vera úti frá því þeir koma heim
úr vinnunni og þangað til þeir fara
að sofa. Gufuböð og eldstæði eru
nýjasta viðbótin en nú framleiða
margir og selja tilbúin gufubaðs-
hús, sem auðvelt er að reisa. Með
því að útbúa þak með góðum
geislahitara yfir dvalar- og matar-
svæðum er hægt að byrja að nota
garðinn síðla vetrar og svo langt
fram eftir hausti. Þannig
eykst í raun rými húss-
ins og margt af því
sem áður var gert
inni má nú gera
úti í garði.“
Flestum
garðeig-
endum er
einnig hug-
leikið hlutfall
þess tíma sem
fer í að njóta
garðsins og að
sinna honum.
Það er því mikil
áhersla á að garðarnir
séu viðhalds léttir. Pallar
sem ekki þarf að bera á, gróður
sem þekur vel og kemur þann-
ig í veg fyrir illgresi og grasflatir
sem auðvelt er fyrir garðsláttu-
vélmenni að slá eru mikilvægar
forsendur í hönnun garðsins.
Urban Beat sækir sínar hugmyndir
í reynslu Björns við að hanna
garða Íslendinga síðustu 20 árin
auk þess heitasta sem er að gerast
í skandinavískri hönnun. Með því
að sækja hugmyndir til Íslands
og hinna Norðurlandanna næst
skemmtilegt samspil notadrjúgra
svæða, fallegs stíls og lágmarks-
þarfar fyrir umhirðu.
Garðurinn á að vera
framhald af húsinu
Eitt það mikilvægasta við að
útbúa fallegt útisvæði er að það sé
í samræmi við húsið hvað varðar
form, liti og aðgengi. Ef aðalbygg-
ingarefni hússins er steypa og
gluggakarmar úr dökkum við má
nota annað hvort eða bæði efnin í
skjólveggi. Það sem þarf að passa
er að steyptu veggirnir tóni við
veggi hússins og að tréveggir tóni
við gluggakarma. Útivistarsvæðin
mega svo gjarnan vera aðgengileg
frá þeim herbergjum eða svæðum
hússins sem eru samnýtt garðinum
– eldhús nálægt útiborðstofunni
og baðherbergi nálægt heita
pottinum.
Frá Stokkhólmi
til Reykjavíkur
Skrifstofa Urban Beat er í Stokk-
hólmi en Björn rekur fyrirtækið
með hjálp Andrews Young, sem
er enskur landslagsarkitekt. Flest
verkefnin eru íslensk en Björn
segir að það hafi gengið ótrúlega
vel að vinna verkefnin úr fjarska
með hjálp tölvupósts, síma og
Skype. „Síðan hef ég skotist heim
til að taka fundi á eins til tveggja
mánaða fresti,“ segir Björn sem
einnig kemur heim til að kenna og
aðstoða stærri viðskiptavini sína,
eins og BYKO.“ Í haust mun Urban
Beat opna skrifstofu í Reykjavík og
mun Björn stýra henni á meðan
Andrew sér um starfsemi fyrir-
tækisins í Stokkhólmi.
Allt unnið
í þrívídd á papp-
írslausri skrif-
stofu
„Öll garðhönnun á
að fara fram í þrívídd,“
segir Björn. „Með því að teikna
allar hugmyndir upp í þrívídd geta
bæði hönnuður og viðskiptavinur
séð mun betur hvernig garðurinn
kemur til með að líta út. Hlutföll
forma sjást betur og vandamál,
sem gjarnan koma upp á seinni
stigum hönnunar sjást strax og má
því leysa fyrr. Urban Beat hefur
tekið þá stefnu að vera pappírs-
laus teiknistofa. Öll teiknivinna og
skissur eru unnar á snertiskjái og
teikningum er skilað í PDF-formi.
Eini pappírinn sem sést á skrif-
stofunni eru hönnunartímarit og
bækur um landslagshönnun og
garða.“
Leitum að góðu
starfsfólki fyrir næsta ár
„Þegar búið verður að koma upp
skrifstofunni í Reykjavík í haust
munum við byrja að ráða lands-
lagsarkitekta og stefnum að því
að vera komin með öflugt teymi
snemma næsta árs. Við erum líka
með samstarfssamning við Tema,
sem er öflugt arkitektafyrirtæki
með um 100 starfsmenn í Stokk-
hólmi. Tema vann með okkur í
þróun ferðaþjónustusvæðis, sem
mun rísa á Hellu, og mun verða
samstarfsaðili okkar í stærri
verkefnum þar sem víðtækari
þekkingar og reynslu er þörf,“
segir Björn.
Ferðaþjónustan þjónustuð
Fyrirtækið leggur áherslu á
garðhönnun en hefur einnig
sérhæft sig í verkefnum tengdum
ferðaþjónustu. Auk þess að hafa
teiknað umhverfi hótela var
Björn umhverfisstjóri hjá Ferða-
málastofu þar sem hann veitti
styrkþegum Framkvæmdasjóðs
ferðamannastaða ráðgjöf. „Við
viljum gjarnan hjálpa sveitar-
félögum og rekstraraðilum
í ferðaþjónustunni að þróa
umhverfi sitt þannig að upplifun
ferðamanna og heimamanna
verði sem skemmtilegust.“
Hægt er að ná sambandi við Björn
í gegnum heimasíðuna lands-
lagsarkitekt.is í tölvupósti bj@
landslagsarkitekt.is eða í síma
823-0001.
Gott samræmi milli húss og garðs. Veggirnir eru framhald af húsinu. Pallurinn tónar vel við klæðningu og gluggalista.
Leiksvæði við þjónustumiðstöð á Hellu í samstarfi við Tema í Stokkhólmi og Gunnar Bergmann arkitekt. Mynd/TeMA
Með því að hanna í þrívídd sést samspil allra þátta vel. Hér má sjá hvernig lýsingin á sumarhúsalóðinni er hugsuð.
Hugmyndir þurfa
að gerjast og garð-
eigandinn þarf að máta
það í huganum hvernig
lífið í nýja garðinum geti
orðið.
Björn Jóhannsson
2 KynnInGARBLAÐ 2 8 . M A R S 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RGARÐuRInn
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
5
-1
0
B
0
1
F
5
5
-0
F
7
4
1
F
5
5
-0
E
3
8
1
F
5
5
-0
C
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K