Fréttablaðið - 28.03.2018, Page 34
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Síðumúla 31 • 08 Reykjavík • S. 5 20 • 84 0470 • www.parketverksm djan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Síberíulerki
- Aldrei að bera á
Í kjarnvið síberíulerkis er náttúruleg
fúavörn. Því þarf aldrei að bera fúavörn
á viðinn.Viðurinn er sterkur, endinga-
góður og þolir afar vel íslenska veðráttu.
Veggklæðningar og pallaefni
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Það er fallegt að hafa blóm og matjurtir í pottum.
Vilmundur Hansen, grasa-
og garðyrkjufræðingur,
heldur úti vinsælli síðu
á Facebook þar sem
ýmis góð ráð um
garðyrkju koma fram.
Vilmundur Hansen heldur úti vinsælli síðu á Facebook sem nefnist Ræktaðu
garðinn þinn – Garðyrkjuráðgjöf
með yfir 30 þúsund fylgjendum.
Sjálfur starfar hann við garðyrkju-
ráðgjöf jafnt fyrir einstaklinga og
fyrirtæki. Þegar hann er spurður
hvernig mold sé best að nota í
pottana segist hann velja potta-
mold sem fáist í garðyrkjustöðv-
unum. „Sú mold hefur reynst mér
vel. Síðan má nota moltu sem
íblöndunarefni ef maður vill en
ekki nota hana eingöngu. Það
þarf samt ekkert að gera við þessa
venjulegu pottamold fyrstu tvö
árin. Nauðsynlegt er að hafa gat
undir pottinum en ef hann er
mjög djúpur er gott að setja vikur
í botninn, akrýldúk þar ofan á og
síðan moldina.“
Pottar er mismunandi og það
getur verið flókið að velja þann
eina rétta. Vilmundur segir að
potturinn þurfi að vera frostfrír.
„Leirpottar og harðplastpottar eiga
það til að springa yfir veturinn en
ef valdir eru frostfríir pottar endast
þeir í nokkur ár. Plastpottar
eru léttir og þægilegir.
Það má setja þá ofan
í leirpott sem síðan
er tekinn inn yfir
vetrarmánuðina.“
Vilmundur
segir að um
þessar mundir
fáist ericur í
blómabúðum
sem sé fallegt
að setja í potta
áður en tími sumar-
plantnanna hefst. „Þær
geta vel staðið fallegar fram á
sumar. Þetta eru duglegar plöntur.
Yfirleitt er best að kaupa
sumarblóm þegar þau eru
auglýst til sölu. Það þýðir að
þeirra tími sé kominn. Ef fólk er
að rækta blóm sjálft er rétt að bíða
með að setja út þangað til fullvíst
er að ekki komi næturfrost. Það er
að verða í síðasta lagi að sá fyrir
sumarblómum þessa dagana. Svo
má rækta alls kyns kál og salat í
pottum. Venjulega þarf að sá fyrir
matjurtum sex vikum áður en
þær fara út í garð. Best er að rækta
blaðsalat, erfiðara að ræka það sem
vex niður,“ segir Vilmundur. „Það
er hægt að rækta næpur en gul-
rætur og gulrófur þurfa meiri dýpt.
Mjög sniðugt er að rækta aspas
í pottum, sömuleiðis klettasalat
og spínat. Ég get mælt með njóla
sem er góður í salat. Fullt af kryddi
vex vel á Íslandi, til dæmis blóð-
berg (timían), steinselja, óreganó,
sítrónumelissa og minta. Kryddið
þarf þó gott skjól.“
Vilmundur segir að þegar fólk
sé með matjurtagarð þurfi hann
hvíld á fjögurra ára fresti. Gott er
að setja þurrkaðan hænsnaskít í
garðinn til að gefa honum áburð.
Það er ekki ákjósanlegt að rækta
alltaf það sama í garðinum, betra
er að vera með skiptiræktun, eitt
árið með rótargrænmeti en blað-
salat á móti. Svo er hægt að hvíla
reitina til skiptis ef þeir eru fleiri
en einn. Þá er alltaf einhver ræktun
í gangi. Byrjendur í matjurtarækt
ættu að byrja á einhverju einföldu,
til dæmis grænkáli, kartöflum, gul-
rófum og mintu.“
Þegar hann er spurður um
áburðargjöf, svarar hann: „Það er
að öllu leyti best að nota lífrænan
áburð. Maður fær kannski ekki
eins mikla uppskeru en í mínum
huga er betra að fá bragðgott kál
heldur en fljótsprottið. Lífrænn
áburður er matur fyrir plönturnar
en tilbúinn er vítamín.“
Einfalt að rækta í útipottum
Margir kjósa að hafa plöntur í pottum á veröndum eða svölum. Vilmundur Hansen
garðyrkjufræðingur segir vel hægt að hafa sumarblóm, kryddjurtir og matjurtir í pottum.
6 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . m A R s 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RGARÐuRINN
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
5
-0
1
E
0
1
F
5
5
-0
0
A
4
1
F
5
4
-F
F
6
8
1
F
5
4
-F
E
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K