Fréttablaðið - 28.03.2018, Qupperneq 38
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Það er ekki oft sem fjölskyldan fær frí saman og tækifæri til að skemmta sér. En um þessa
páska fá margir ágætis frí, svo það
gefst bæði tími til að varpa öndinni
og hvíla sig og til að gera alls konar
skemmtilega hluti saman. Hér eru
nokkrir hlutir sem fjölskyldan
getur gert saman í fríinu.
Fjölskyldu- og húsdýragarður-
inn býður sígilda skemmtun fyrir
fjölskylduna og þar verður opið
frá klukkan 10 til 17 alla daga yfir
páskana. Að vísu verða ekki öll
tækin opin, en það er stefnt á að
hafa bæði Lestina og Hringekjuna
opna. Það er hins vegar verið að
setja saman nýjan Fallturn sem
verður ekki opnaður fyrr en 1.
júní. En síðasta föstudag fæddust
kiðlingar í garðinum, haförninn
er enn þar og um jólin var sett upp
maurabú í Skriðdýrahúsinu, svo
það er nóg að sjá.
Öll kvikmyndahúsin verða opin
yfir alla páskana, nema Bíó Para-
dís, sem verður lokað á páskadag.
Sem stendur er gott úrval kvik-
mynda fyrir alla fjölskylduna í
boði, þar á meðal tvær íslenskar
fjölskyldumyndir, Lói – Þú flýgur
aldrei einn og Víti í Vestmanna-
eyjum.
Það er misjafnt eftir sundlaugum
hvort það sé opið um páskana, en
víða verður hægt að fara í sund í
páskafríinu. Margar sundlaugar
eru lokaðar á föstudaginn langa
og páskadag, en flestar eru opnar á
skírdag, laugardag og annan í pásk-
um. Það verður opið alla páskana í
nokkrum laugum, en langflestum
verður samt ekki lokað seinna en
kl. 18 á páskadag. Það er hægt að
athuga hvort sundlaugin sem á
að heimsækja sé örugglega opin á
sundlaugar.is.
Einar Bjarnason, rekstrarstjóri
hjá Bláfjöllum, segir að það sé
stefnt á að hafa opið þar eins og
venjulega yfir alla páskana, þann-
ig að borgarbúar geti átt gleði-
lega páska á skíðum. Það er spáð
björtu veðri og sól á fimmtudag og
spáin er góð fyrir helgina, þann-
ig að það ætti að vera vel hægt
að fara á skíði í páskafríinu. Svo
kemur tilkynning frá skíðasvæð-
inu um veður aðstæður og opnun
á hverjum morgni og ef eitthvað
breytist verður látið vita af því.
Það verður hægt að kíkja á lista-
safn í fríinu, því Listasafn Reykja-
víkur verður opið alla páskana,
nema á páskadag, en þá verður
lokað í Hafnarhúsi, Ásmundarsafni
og á Kjarvalsstöðum.
Skemmtigarðurinn er opinn eins
og venjulega alla páskana, þannig
að hópar sem vilja heimsækja
hann geta haft samband til að
skipuleggja skemmtun.
Það verður hægt að fara út að
borða saman í fríinu, en opnunar-
tími veitingastaða er misjafn.
Flestir veitingastaðir verða opnir
yfir páskana, en sums staðar er
lokað á páskadaginn sjálfan.
Veitingastaðir á hótelum verða svo
almennt opnir eins og venjulega.
Þeir sem vilja versla í fríinu geta
farið í Kringluna og Smáralind. Þar
verður opið á skírdag og á laugar-
dag, en lokað á föstudag, sunnudag
og mánudag.
Síðast en alls ekki síst er spáin
góð, þannig að það stefnir í að það
verði hægt að nýta fríið í alls kyns
útivist.
Fjölskyldufjör um páskana
Það er um að gera að nýta páskafrí fjölskyldunnar til að gera eitthvað saman. Það er ýmislegt um
að vera yfir páskahelgina, svo að það er engin ástæða til að sitja bara heima og borða súkkulaði.
Það verður mikið opið í sundlaugunum í páskafríinu. MYND/GVA
Spáin er ágæt,
svo það gæti
verið sniðugt
að fara á skíði
í páskafríinu.
MYND/VILHELM
Fréttablaðið eykur þjónustu sína.
Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á eftirfarandi stöðum víðsvegar um landið:
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . M A R S 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
5
-2
9
6
0
1
F
5
5
-2
8
2
4
1
F
5
5
-2
6
E
8
1
F
5
5
-2
5
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K