Fréttablaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 46
Umboðsaðili Jeep - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.jeep.is
www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
FLAGGSKIPIÐ FRÁ JEEP
GRAND CHEROKEE SUMMIT
DÍSEL 3.0L V6 250 HÖ.
8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
®
JEEP GRAND CHEROKEE SUMMIT VERÐ FRÁ 11.490.000 KR.
Hátt og lágt drif, loftpúðafjöðrun, fjarlægðarstilltur hraðastillir, 20” álfelgur, 8,4” snertiskjár, lykillaust aðgengi og ræsing, rafdrifin
sportsæti frammi í með hita og kælingu, sjálfvirk tveggja svæða miðstöð með loftkælingu, upphitaðir hliðarspeglar, regnskynjari,
panorama opnanlegt glerþak, leðurinnrétting, rafdrifinn afturhleri, íslenskt leiðsögukerfi, akgreinavari, árekstrarvari, blindhornsvörn,
leggur sjálfur í stæði, Harmon Kardon hljómflutningstæki, 19 hátalarar o.fl.
Umfram í SUMMIT SIGNATURE: Platinum útlit, dökk gráar Gunmetal álfelgur, upplýst Summit merki í hliðarfölsum, Platinum
grill og afturljós, Signature lúxusinnrétting, Blue-Ray DVD með 2 skjáum aftur í, 2x þráðlaus heyrnartól og fjarstýring.
VERÐ FRÁ: 12.790.000 kr.
®
GRAND CHEROKEE
FRÁ KR. 8.690.000
CHEROKEE
FRÁ KR. 6.390.000
COMPASS
FRÁ KR. 5.490.000
RENEGADE
FRÁ KR. 4.390.000
WRANGLER
Markaðurinn
Miðvikudagur 28. mars 2018fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
instagram
fréttablaðsins
@frettabladid
Stjórnar-
maðurinn
@stjornarmadur
frettabladid.is
23.03.2018
Höft, hvort heldur innflæðis-
höft eða útflæðishöft, geta
aldrei verið til lengri
tíma hluti af einhverju
hagstjórnartæki.
Óli Björn Kárason, for-
maður efnahags-
og viðskipta-
nefndar
Alþingis
Stjórn veitingahúsakeðjunnar Gló og Petrea
Ingileif Guðmundsdóttir framkvæmda-
stjóri hafa komist að samkomulagi um
að hún láti af störfum hjá félaginu, sam-
kvæmt heimildum Markaðarins. Petrea
var ráðin framkvæmdastjóri Gló í ágúst á
síðasta ári.
Petrea annaðist daglegan rekstur Gló hér
á landi en í tilkynningu vegna ráðningar-
innar í fyrra kom fram að áhersla yrði lögð
á að sækja aukinn vöxt og auka arðsemi félagsins.
Petrea hefur lengst af starfað á sviði fjar-
skipta og afþreyingar en hún hefur meðal
annars verið framkvæmdastjóri Tals og
gegnt stjórnunarstöðum hjá Símanum, 365
og Skjánum.
Gló er í meirihlutaeigu Eyju fjárfestinga-
félags, sem er í eigu hjónanna Birgis Þórs Bielt-
vedt og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur, en auk
þess eiga meðal annars hjónin Sólveig Eiríks-
dóttir og Elías Guðmundsson og fjárfestirinn
Ólafur Steinn Guðmundsson hlut í Gló. – kij
Hætt sem framkvæmdastjóri Gló
Petrea Ingileif
Guðmundsdóttir.
RÚV birti ársreikning sinn fyrr í
vikunni. Af ýmsu er að taka þótt
blaðamenn virðist engan áhuga hafa
á öðru en launatékka útvarpsstjóra.
Þannig má sjá að tekjur RÚV vegna
almannaþjónustu, það er skatt-
tekjur, jukust um hátt í tíu prósent á
árinu. Tekjur vegna auglýsingasölu
jukust sömuleiðis eða um tæpar 100
milljónir.
Athygli vekur að gjöld vegna
almannaþjónustu eru tæpir 5,2
milljarðar, eða með öðrum orðum
þeir ríflegu 4 milljarðar sem RÚV fær
árlega í forgjöf frá ríkinu duga ekki
fyrir rekstri fjölmiðlaþjónustu félags-
ins. Það sem upp á vantar fæst með
þátttöku RÚV á auglýsingamarkaði í
samkeppni við einkaaðila. Þrátt fyrir
þessa miklu meðgjöf bæði frá skatt-
greiðendum og þátttöku á auglýsinga-
markaði með tilheyrandi tjóni fyrir
keppinautana, nemur rekstrarhagn-
aður eftir að leiðrétt hefur verið fyrir
einskiptiskostnaði tæpum hálfum
milljarði. Langtímaskuldir RÚV nema
sex til sjöfaldri þeirri upphæð og því
ljóst að stofnunin telst óhemju skuld-
sett í öllum samanburði.
Í skýrslu stjórnar RÚV segir að rekst-
urinn hafi verið endurskipulagður
undanfarin ár og að umtalsverður
viðsnúningur hafi orðið. Hið rétta er
að sú rekstrarbót sem orðið hefur er
nær einungis vegna sölu á lóðarétt-
indum sem RÚV fékk í vöggugjöf.
Ef nánar er að gáð virðist alls ekkert
aðhald vera í rekstrinum. Eins og
áður sagði jukust skatttekjur félags-
ins um tæpan tíunda hlut. Á sama
tíma jókst launakostnaður um tæpar
70 milljónir og stöðugildum fjölgaði.
RÚV keypti sömuleiðis varanlega
rekstrarfjármuni fyrir ríflega 540
milljónir! Hið síðastnefnda ætti í raun
að vera sérstakt rannsóknarefni.
Því virðist sem eina aðhaldið í rekstri
RÚV á árinu hafi falist í hækkun
álagna á almenning. Ljóst er að allir
þeir tíu stjórnarmenn RÚV sem skrifa
undir ársreikninginn þurfa að hugsa
sinn gang. Kannski væri fyrsta skrefið
að leggja niður störf að minnsta kosti
helmings þeirra.
Löngu er tímabært að stjórnvöld
taki á málefnum RÚV. Hver mennta-
málaráðherrann á fætur öðrum hefur
drepið málinu á dreif. Nú síðast
með skipan nefndar um annars
ágæta niðurstöðu annarrar nefndar.
Ársreikningur RÚV er lifandi dæmi
um hættu þess að vera með tekjur
í áskrift. Óráðsían með almannafé
er allt að því áþreifanleg, og tjónið
sem stofnunin veldur keppinautum
sínum löngu þekkt stærð.
Ekkert aðhald
2
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
5
-1
0
B
0
1
F
5
5
-0
F
7
4
1
F
5
5
-0
E
3
8
1
F
5
5
-0
C
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K