Fréttablaðið - 28.03.2018, Page 64

Fréttablaðið - 28.03.2018, Page 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Davíðs Þorlákssonar BAkþAnkAR Þingmenn eru mjög misfor-vitnir. Svo mjög að einn þeirra, Björn Leví Gunnars- son, þingmaður Pírata, hefur lagt fram 77 fyrirspurnir til ráðherra á þessu þingi, sem eru fleiri fyrir- spurnir en 41 annar þingmaður hefur lagt fram samanlagt. Þetta eru meira en tvær fyrirspurnir á hvern dag sem þingfundur hefur verið haldinn á þessu þingi. Allir hinir þingmennirnir hafa lagt fram 4,2 fyrirspurnir að meðaltali. Sá sem næstmest hefur spurt hefur lagt fram 18 fyrirspurnir. Sumar eru mikilvægar, eins og spurning um aksturskostnað þingmanna. Aðrar eru skrýtnar, eins og spurning um hversu margir atkvæðakassar hafi brotnað í hverjum alþingiskosningum síðan 2013. Enn aðrar hefði verið hægt að gúggla á nokkrum sekúndum, eins og spurninguna um hvert opinbert nafn sveitarfélagsins þar sem höfuðborg Íslands er stað- sett sé. Oft eru margar spurningar í hverri fyrirspurn. Til dæmis er fyrirspurn um rekstur háskóla í 11 liðum og hver liður getur kallað á margþætt svar eins og spurning um hver fjöldi nýnema og fjöldi útskrifaðra nemenda á hverri önn í hverri deild í hverjum háskóla fyrir sig sl. 10 ár hafi verið. Réttur þingmanna til að fá svar við fyrirspurnum sínum til ráðherra er mikilvægur hluti af aðhaldshlutverki þingsins gagn- vart ríkisstjórn og stjórnsýslunni. Svona skrípaleikur gengisfellir hins vegar þetta hlutverk og bakar mikla vinnu og kostnað. Níu þing- menn hafa ekki séð ástæðu til að spyrja að neinu á yfirstandandi þingi. Það væri áhugavert ef ein- hver þeirra myndi spyrja hver kostnaður skattgreiðenda hefur verið við að svara öllum þessum fyrirspurnum Píratans. Rassálfur á Alþingi APERITIVO OG ARMANI! MÍLANÓ FRÁ 14.999 KR.* WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS*Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. Tilboðið á aðeins við ef bókað er flug fram og til baka. Tímabil: júní–júlí og sept. Bella Italia! Komdu með okkur til Mílanó og láttu berast með menningarstraumum og tískubylgjum þessarar ótrúlegu borgar. Hér er allt til alls — myndlist, matur, tíska og hönnun á heimsmælikvarða. Mílanó er nefnilega alveg mögnuð! Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum Stendur undir nafni 2 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 5 4 -F 3 1 0 1 F 5 4 -F 1 D 4 1 F 5 4 -F 0 9 8 1 F 5 4 -E F 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.