Fréttablaðið - 09.04.2018, Qupperneq 16
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Réttirnir eru allir mjög ein-faldir og þægilegt að elda þá. Hins vegar eru þeir mjög
góðir og henta fyrir alla. Lambið
svíkur ekki en meðlætið getur
auðvitað verið eins og hverjum og
einum finnst best.
Aspas með
parmaskinku
Hér er æðislegur forréttur með
aspas og þurrskinku. Berið gjarnan
fram niðursoðnar perur með
réttinum.
10 aspasstönglar
5 sneiðar af parmaskinku eða
serrano
Jómfrúrolía
pipar
Niðursoðnar perur
Stillið bakarofninn á 200°C. Skerið
hverja sneið af skinku til helminga
og rúllið í kringum aspasinn.
Leggið í eldfast mót, vætið með
olíu og piprið. Athugið að taka
neðsta hlutann af aspasinum,
þann sem er harður.
Bakið í 10 mínútur, snúið við og
bakið áfram í 10 mínútur.
Það má líka grilla aspasinn á úti-
grilli og vefja skinkunni eftir á.
Einnig má búa til hollandaise-sósu
og hafa með. Það er þó óþarfi og
mjög gott að hafa niðursoðna
ávexti.
Lamb með púrtvínssósu
Lambafillet er afbragðsmatur og
hentar vel um helgar þegar allir
vilja slappa af eða bara þegar
mann langar að gera vel við sig.
Hér er spariútgáfa með púrtvíns-
sósu. Svo má auðvitað grilla kjötið
á útigrilli í góðu veðri.
800 g lambafillet
Salt og nýmalaður pipar
1 hvítlauksrif
8 einiber
2 kvistir timían
Smjör
300 g kantarellusveppir
Kartöflu- og sellerímús
400 g kartöflur
400 g sellerírót
150 g sýrður rjómi
1 msk. smjör
Salt og pipar
Rjómi
Púrtvínssósa
1 gulrót
1 laukur
Sveppir
1 kvistur timían
1 dl púrtvín
3 dl rjómi
Kjötsoð
1 msk. smjör
Nuddið salti og pipar á lambið,
merjið einiber og timían og veltið
kjötinu upp úr blöndunni.
Brúnið kjötið í smjöri og olíu á
heitri pönnu með hvítlauk og
timían. Setjið síðan í 160°C heitan
ofn í 10-12 mínútur.
Látið kjötið hvíla í minnst 15
mínútur áður en það er skorið í
sneiðar.
Skrælið og skerið kartöflur og sell-
erírót í bita og sjóðið. Takið vatnið
frá og bætið sýrðum rjóma út í.
Maukið allt saman og bætið salti,
pipar, smjöri og rjóma saman við.
Kartöflu- og sellerímúsin er borin
fram heit með kjötinu.
Fyrir sósuna: Skerið gulrót og
lauk smátt og steikið í olíu ásamt
sveppastönglunum sem voru
skornir af þeim sem taldir voru
upp með kjötinu og timían. Bætið
púrtvíni saman við og rjóma.
Sjóðið niður um þriðjung í um
það bil 10-15 mínútur. Sigtið soðið
og bætið smjöri úti sósuna. Berið
fram með kjötinu ásamt kartöflu-
músinni, steiktum sveppum og ef
til vill soðnu grænmeti.
Ostakaka í glasi með
ferskum berjum
Þetta er fljótlagaður eftirréttur og
mjög góður. Uppskriftin miðast
við fjóra.
80 g haframjöl
40 g bráðið smjör
3 msk. sykur
1,5 dl rjómi
75 g rjómaostur
Smávegis sítrónusafi
3 msk. sykur
2 msk. flórsykur
1 tsk. vanilludropar
400 g fersk ber
Brjótið kexið niður með því að setja
það í plastpoka og berja létt á það.
Setjið í skál og blandið saman við
smjörið.
Blandið öllu öðru sem upp er talið
í uppskriftinni (nema berjunum) í
skál. Hrærið vel saman.
Skolið berin og setjið þau í aðra skál
og sykrið yfir þau.
Takið fram fjögur falleg glös, setjið
berin neðst, síðan rjómaostblönd-
una og loks kexið. Skreytið með
ferskri mintu.
Ljúffeng veislumáltíð heima
Páskar eru hátíð matar og sætinda og þótt þeir séu nýbúnir má alveg halda veislu. Það er gaman
að elda eitthvað virkilega gott og njóta með fjölskyldunni, hvort sem það er heima eða í sumar-
bústaðnum. Hér er hugmynd að þriggja rétta veislumáltíð sem boðar vorkomu og grill.
Lambakjötið svíkur ekki, hvort sem það er eldað úti á grilli eða í ofninum.
Einfaldur eftirréttur með berjum.
Aspas með parmaskinku og perum.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Föstudaginn 13. apríl mun Fréttablaðið gefa út sérblaðið
GRÆNN LÍFSSTÍLL
Í blaðinu verða umhverfismál á ýmsum sviðum í brennidepli. Ætlunin er að benda bæði
fyrirtækjum og almenning á fjölmörg skref sem auðvelt er stíga í átt að grænum lífsstíl.
Einfaldar breytingar á daglegum venjum sem geta haft afar mikil og góð áhrif á okkar nær
umhverfi með samhentu átaki almennings og fyrirtækja.
Á meðal efnistaka blaðsins er…
Endurvinnsla – pappír, plast, rafhlöður og ýmis spilliefni
Kolefnisjöfnun – hvernig geta fyrirtæki og heimili kolefnisjafnað á auðveldan hátt?
Orkugjafar framtíðarinnar – Metan, vetni eða rafmagn? Hvað mun knýja farartækin
okkar í framtíðinni
Maturinn og umhverfið – hvernig geta framleiðslufyrirtæki lágmarkað umhverfisáhrifin
og hvernig geta stuðlað að umhverfisvænni framleiðslu?
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Ólafur H. Hákonarson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 512 5433 / olafurh@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . A P R í L 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
0
9
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
1
-5
D
9
4
1
F
6
1
-5
C
5
8
1
F
6
1
-5
B
1
C
1
F
6
1
-5
9
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K