Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.04.2018, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 09.04.2018, Qupperneq 38
Bláhærður Pogba sneri Manchester-slagnum Manchester United kom í veg fyrir að grannarnir í Manchester City fögnuðu Englandsmeistaratitlinum með 2-3 endurkomusigri í leik liðanna á laugardaginn. fótbolti Í hálfleik benti ekkert til annars en að Manchester City myndi fagna Englandsmeistaratitl- inum í leikslok, fyrir framan granna sína í Manchester United. City var 2-0 yfir og það eina sem United gat huggað sig við var að munurinn var ekki meiri. Leikurinn var jafn fram að fyrsta markinu sem Vincent Kompany skoraði með þrumuskalla eftir hornspyrnu Leroys Sané á 25. mín- útu. Fimm mínútum síðar sneri Ilkay Gündogan listilega á Nemanja Matic og skoraði framhjá David De Gea. City fékk frábær færi til að auka muninn á síðustu 15 mínútum fyrri hálfleiks. Raheem Sterling slapp tvisvar sinnum einn í gegn en hitti ekki markið og Gündogan skallaði beint á De Gea í upplögðu færi. Allt kom þó fyrir ekki og staðan því 2-0 í hálfleik. José Mourinho vann fyrir kaup- inu sínu í hálfleik því United kom ákveðið til leiks í seinni hálfleik. Og aðalmaðurinn í endurkomunni var leikmaður sem er reglulega gagn- rýndur fyrir frammistöðu sína í stóru leikjunum: Paul Pogba. Svaraði fyrir sig Frakkinn hefur verið mikið milli tannanna á fólki að undanförnu. Fréttir hafa borist af meintu ósætti hans og Mourinhos og svo er fjöl- mörgum umhugað um hárið á Pogba. Daginn fyrir leik greindi Pep Guardiola, knattspyrnustjóri City, svo frá því að félaginu hefði boðist að kaupa Pogba í janúarglugganum. Pogba, sem var með bláa rönd Leikmaður helgarinnar Danny Welbeck var í aðalhlutverki þegar Arsenal bar sigurorð af Southampton, 3-2, á Emirates í gær. Wel- beck skoraði tvö marka Arsenal og lagði það þriðja upp fyrir Pierre-Emerick Aubameyang. Welbeck hefur ekki beint verið iðinn við kolann síðan hann kom til Arsenal frá Manchester United 2014. Hann er kominn með fimm deildarmörk á þessu tímabili sem er það mesta sem hann hefur gert síðan hann gekk í raðir Arsenal. Welbeck hefur einnig skorað samtals fjögur mörk í öðrum keppnum í vetur. Welbeck var valinn í enska landsliðið fyrir vin- áttulandsleikina gegn Hollandi og Ítalíu og vonast til að góð frammistaða á lokaspretti tímabilsins skili honum í HM-hóp Englands. Sigurinn í gær var sá sjötti í röð hjá Arsenal sem virðist ætla að enda vel, enn eitt tímabilið. Skytturn- ar eru komnar með annan fótinn í undanúrslit Evr- ópudeildarinnar en sigur í henni gefur sem kunnugt er sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. – iþs Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Manchester United sló fagnaðarlátum Manchester City á frest með 2-3 sigri í stórleik helgar- innar. Þetta var fyrsti sigur United á Etihad síðan 2012. United er nú svo gott sem öruggt með 2. sæti deildarinnar en liðið hefur ekki endað svo ofarlega síðan 2013. Hvað kom á óvart? Newcastle gerði góða ferð á King Power völlinn og vann 1-2 sigur á Leicester. Þetta var þriðji sigur Newcastle í röð og liðið er nú 10 stigum frá fallsæti. Vel af sér vikið hjá Rafa Benítez miðað við þann mannskap sem hann er með í höndunum. Mestu vonbrigðin Chelsea komst yfir gegn West Ham á heimavelli en náði ekki að landa sigri. Lærisveinar Antonios Conte hafa aðeins unnið tvo af síðustu átta deildarleikjum sínum og vonin um Meistaradeildarsæti er nánast að engu orðin. Mikil vonbrigði fyrir Englandsmeistarana. í hárinu að þessu sinni, minnkaði muninn í 2-1 á 53. mínútu eftir lag- lega sókn gestanna. Tveimur mín- útum síðar jafnaði Pogba svo metin með skalla eftir frábæra sendingu frá Alexis Sánchez. Þetta voru fyrstu mörk Pogba í ensku úrvalsdeildinni síðan 18. nóvember á síðasta ári. „Ég og allir vitum að hann átti nokkra leiki þar sem hann spilaði ekki eins vel og hann getur. En hann er að bæta sig. Ég var ánægður með frammistöðu hans gegn Swansea og í dag voru hann, Nemanja Matic og Ander Herrera frábærir í 90 mínút- ur,“ sagði Mourinho eftir leikinn. Á 69. mínútu kom sigurmark United. Sánchez tók þá aukaspyrnu og sendi boltann inn á vítateiginn á Chris Smalling sem skoraði með góðu skoti. Sluppu með skrekkinn City þjarmaði að United það sem eftir lifði leiks. Ashley Young slapp á einhvern óskiljanlegan hátt við að fá á sig vítaspyrnu, De Gea varði meistaralega frá Sergio Agüero og Sterling skaut í stöngina af stuttu færi. En inn vildi boltinn ekki og United fagnaði sigri. Hann kemur ekki í veg fyrir að City-menn verði Enska úrvalsdeildin Staðan Úrslit 33. umferðar 2017-18 Everton - Liverpool 0-0 Stoke - Tottenham 1-2 Mame Biram Diouf - Christian Eriksen 2. Leicester - Newcastle 1-2 Jamie Vardy - Jonjo Shelvey, Ayoze Pérez. Brighton - Huddersfield 1-1 Jonas Lössl, sjálfsmark - Steve Mounie. Rautt spjald: Davy Propper, Brighton. Watford - Burnley 1-2 Roberto Pereyra - Sam Vokes, Jack Cork. Bournemouth - C. Palace 2-2 Lys Mousset, Joshua King - Luka Milivojevic, Wilfried Zaha. West Brom - Swansea 1-1 Jay Rodriguez - Tammy Abraham. Man. City - Man. Utd. 2-3 Vincent Kompany, Iklay Gündogan - Paul Pogba 2, Chris Smalling. Arsenal - So’ton 3-2 Danny Welbeck 2, Pierre-Emerick Auba- meyang - Shane Long, Charlie Austin. Chelsea - West Ham 1-1 César Azpilicueta - Javier Hernández. FÉLAG L U J T MÖRK S Man. City 32 27 3 2 90-24 84 Man. Utd 32 22 5 5 63-25 71 Liverpool 33 19 10 4 75-35 67 Tottenham 32 20 7 5 64-27 67 Chelsea 32 17 6 9 54-31 57 Arsenal 32 16 6 10 61-43 54 Burnley 32 13 10 9 31-28 49 Leicester 32 11 10 11 48-45 43 Everton 33 11 8 14 38-53 41 Newcastle 32 10 8 14 33-41 38 B’mouth 33 9 11 13 41-53 38 Watford 33 10 7 16 42-59 37 Brighton 32 8 11 13 29-43 35 West Ham 32 8 10 14 40-58 34 Swansea 32 8 8 16 26-45 32 Huddersf. 33 8 8 17 26-54 32 C. Palace 33 7 10 16 33-52 31 S’oton 32 5 13 14 31-50 28 Stoke 33 6 9 18 30-63 27 West Brom 33 3 12 18 26-52 21 Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum í Englandi Everton Gylfi Þór Sigurðsson Lék ekki með Everton í markalausu jafntefli við Liverpool vegna meiðsla. Hefur misst af síðustu þremur leikjum. Cardiff City Aron Einar Gunnarsson Lék allan leikinn þegar Cardiff tapaði 0-1 fyrir Wolves. Náði í víti sem nýttist ekki. Reading Jón Daði Böðvarsson Lék fyrstu 72 mínúturnar í 1-0 heimasigri á Preston. Lagði sigurmarkið upp. Aston Villa Birkir Bjarnason Var í byrjunarliði Aston Villa og lék allan tímann í 3-1 tapi fyrir Norwich á útivelli. Bristol City Hörður B. Magnússon Gat ekki tekið þátt í 2-0 tapi Bristol City fyrir Mill- wall vegna hnémeiðsla. Chris Smalling og Paul Pogba skoruðu mörk Manchester United í sigrinum á Manchester City, 2-3, á Etihad á laugardaginn. Þeir félagar voru í vandræðum í fyrri hálfleik en vöknuðu til lífsins í þeim seinni, líkt og allt United-liðið. - Burnley Jóhann Berg Guðm. Er meiddur og var fjarri góðu gamni þegar Burnley vann Watford, 1-2. Þetta var fjórði sigur Burnley í röð. 9 . a p r í l 2 0 1 8 M Á N U D a G U r14 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð 0 9 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 1 -3 F F 4 1 F 6 1 -3 E B 8 1 F 6 1 -3 D 7 C 1 F 6 1 -3 C 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.