Fréttablaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 52
Dans Hin lánsömu HHHH Íslenski dansflokkurinn Borgarleikhúsinu Hugmynd og handrit: Anton Lachky Danshöfundur: Anton Lachky í samvinnu við dansara Dansarar: Einar Anton Aas Nikke- rud, Elín Signý Weywadt Ragnars- dóttir, Hannes Þór Egilsson, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Sigurður Andrean Sigurgeirsson, Tanja Marín Friðjóns- dóttir og Þyri Huld Árnadóttir Ljósahönnuður: Björn Bergsteinn Guðmundsson Búningahönnuður: Júlíanna Lára Steingrímsdóttir Hljóðmynd: Baldvin Magnússon Í ár eru 45 ár síðan Íslenski dans- flokkurinn tók til starfa en fyrsta sýning hans var vorið 1973 í sam- komuhúsinu Borg í Grímsnesi. Fyrsta frumsýning flokksins þetta afmælisár er dansverkið Hin lán- sömu eftir Anton Lachky en hún fór fram á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 27. apríl 2018. Verkið fjallar um átta systkini, þau ríkustu í heimi, sem lifa í endalausri hamingju og velmegun á heimili sínu. Sá bögg- ull fylgir þó skammrifi að til þess að það ástand haldist þurfa þau að fylgja settum reglum, þar á meðal að yfirgefa ekki heimilið. Systkinin birtust áhorfendum á sviðinu í formi fimm ungra vel þjálf- aðra kvendansara og þriggja vel þjálf- aðra karldansara. Búningarnir voru samkvæmisklæðnaður sem undir- strikaði vel ríkidæmið og umgjörð verksins, sem eingöngu var búin til með lýsingu, skapaði draumkenndan veruleika sem bar auðnum vitni. Dansinn, ótrúlega hraður og kraft- mikill, var tjáningarmáti þeirra nema að einn bræðranna skar sig úr í bæði klæðaburði og hlutverki en hann stjórnaði greinilega öllum hinum. Þessi karakter hafði rödd og var eins konar sögumaður. Hann talaði til áhorfenda og hinna karakteranna og opnaði smátt og smátt gátt inn í þann heim sem systkinin bjuggu í. Sagan og sum atriði í verkinu sköpuðu hugrenningatengsl við leikverk Federico Garcia Lorca Hús Bernhörðu Alba. Hugmyndin um útilokunina frá samfélaginu, vald- beiting eins úr hópnum og algjört valdaleysi hinna. En ólíkt Húsi Bern- hörðu, þá var engin barátta eða átök í húsi hinna lánsömu. Kúgarinn, ef svo mætti kalla hlutverk Hannesar Þórs Egilssonar, var að því virtist jafn mikið fórnarlamb aðstæðna og þau hin. Hann stjórnaði þó hinum að vild án þess að nokkurt þeirra reyndi að brjótast undan kúguninni eða það væru átök á þeirra milli – einn samferðamaður minn á sýninguna gaukaði því einnig að mér að kar- akterinn minnti á aðalskúrkinn í nýjustu útgáfu tölvuleiksins Far Cry – hinir karakterarnir virkuðu algjör- lega heilaþvegnir eða heiladofnir. Á tveimur augnablikum, annars vegar þegar einn bróðirinn vaknaði á undan hinum og dansaði drauma sína og hins vegar þegar „móðirin“ birtist fékk áhorfandinn á tilfinn- inguna að eitthvað væri að gerast, að einhvers konar uppbrot myndi eiga sér stað, en að örfáum mínútum liðnum féll allt í sama farið. Frásögn- in var þannig sundurlaus og átaka- lítil og aldrei nógu sannfærandi. Spennuleysi verksins rímaði þó við hugmyndina um sjálfhverfu og til- gangsleysi í nútímasamfélagi þar sem einstaklingarnir gefa allt til að skapa sinn fullkomna sýndarveru- leika þar sem allt er mögulegt. Hannes Þór túlkar hlutverk stjórn- andans í gegnum ýkt líkamlegt lát- bragð og raddbeitingu. Karakter- sköpunin minnti á loddarann í Græna borðinu eftir Kurt Joos og kynninn í myndinni Cabaret frá 1972 þar sem sorglegur veruleiki er kynntur til leiks með gríni. Hann fettir sig og brettir og beitir röddinni í hálfgerðu öskri. Hannes hefur mjög gott vald yfir líkamlegri tjáningu og skapar skemmtilegan karakter í gegnum hreyfingar. Raddbeitingin er aftur á móti ekki eins sterk og verður á köflum leiðigjörn. Eitthvað sem ég vil skrifa á reikning danshöf- undarins. Látbragð er frásagnarmáti í sjálfu sér og því er það vandmeð- farið að tengja talað mál við það. Að mínu mati skapaði það að setja ýkt tal ofan á ýkt látbragð truflandi framsetningu að sama skapi og framsetning efnisins þegar Hannes notaði „eðlilega rödd“ til viðbótar við látbragðið skapaði einlægni og nálægð við karakterinn. Mörg undanfarin ár hefur dans- leysi einkennt mörg dansverk. Hversdags hreyfingar, talað mál, leikrænir tilburðir og tónlist hafa verið í stóru hlutverki hjá danshöf- undum. Í sýningunni Hin lánsömu er dansinn í miklum hávegum þrátt fyrir að það hafi einnig leikræna hlið. Dansinn er kröftugur og hraður og krefst mikils af dönsurunum líkam- lega bæði í sólóum og hópatriðum. Dansararnir átta sem birtust á sviðinu réðu vel við það sem þeim hafði verið sett fyrir svo það var unun á að horfa. Samspilið var fal- legt. Anton Lachky byggir dans- sköpun sína á styrkleikum hvers og eins dansara sem hann vinnur með. Hann gefur þeim síðan áskoranir til þess fallnar að þeir þrói sig sem dansarar. Hin lánsömu bar þessari hugmyndafræði Antons berlega merki. Sjá mátti hvernig ákveðin persónueinkenni dansaranna birt- ust í ekki síst sólóunum og verður þá helst að nefna Þyri Huld Árnadóttur sem hefur afar sérstakan en flottan akróbatískan hreyfistíl. Það sem Þyri sýndi í þessu verki er eitthvað sem áhorfendur hafa séð áður en í þessu tilfelli tókst að gefa því ljóð- rænni og tjáningarríkari farveg en oft áður svo hreyfiforði hennar naut sín. Sólóið hennar í seinni hluta verksins, hreyfingarnar fjórar, voru einfaldar en afar sterkar. Það getur verið leiði- gjarnt fyrir áhorfendur að sjá sama dansarann eða leikarann í mörgum verkum en alltaf í sama karakternum en það gerðist ekki í þessu dansverki. Aðrir dansarar verksins fengu líka að sýna á sér sínar sterku hliðar. Sigurður Andrean, sem er nýlega útskrifaður frá samtímadansbraut LHÍ, var einstaklega fallegur svanur og Einar sem dansað hefur með dansflokknum um nokkurt skeið var sérlega sexí og tælandi. Tanja Marín, Inga Maren, Elín Signý og Hjördís Lilja fengu veigaminni sólóa en stóðu sig allar vel. Elín sem hefur sést í nokkrum sýningum undan- farið hefur kröftugan og óheflaðan hreyfistíl sem gaman er að sjá. Hjör- dís Lilja býr yfir langri reynslu sem dansari sem sést í öllu sem hún gerir og það var gaman að sjá Ingu Maren aftur á sviði Borgarleikhússins. Tanja Marín hefur starfað sem dansari erlendis en er nú í fyrsta skipti á sviði hér á landi. Áhorfendur eiga vonandi eftir að sjá hana oft aftur því hún býr greinilega yfir góðri reynslu og færni í dansinum. Dansinn hennar var afslappaður og rann vel. Þegar minnst er á sólóið hennar Þyri verður að minnast á lýsingu Björns Bergsteins. Björn hefur lýst nokkuð margar sýningar dans- flokksins með mjög góðum árangri og þessi sýning var engin undan- tekning. Það var engin sviðsmynd í verkinu og því var það aðeins lýsingin og reykvélar sem sköpuðu umhverfi dansins. Það umhverfi sem skapaðist var fjölbreytt og hafði bæði þá eiginleika að fela og draga fram, undirstrika og dempa. Stemn- ingin í verkinu var þó ekki minnst sett fram með búningunum og vali á tónlist. Búningarnir, glitrandi síð- kjólar og smart samkvæmisföt, voru elegant og gáfu sterka tilfinningu fyrir því fjárhagslega ríkidæmi sem karakterarnir áttu að lifa í. Tónlistin, sem innihélt þekkt tónverk, var vel samsett og gaf verkinu kraftmikið og fágað yfirbragð. Sesselja G. Magnúsdóttir niðurstaða: Dansinn í sýning- unni var áhrifamikill, kröftugur og krefjandi. Söguþráðurinn var aftur á móti ekki nægilega grípandi. Safnast verður saman á Hlemmi kl. 13:00 og hefst gangan hálftíma síðar. Kl. 14:10 hefst útifundur á Ingólfstorgi. Félagsmenn Fjölmennum og tökum þátt í kröFugöngu og útifundi 1. maí. Boðið verður upp á kaFFi að útiFundi loknum í gullhömrum graFarholti, Frá kl. 15:00 - 17:00. VM-Félag vélstjóra og málmtæknimanna Sterkur dans í minna sterkri sögu Úr sýningunni Hin lánsömu eftir Anton Lachky sem Íd sýnir í Borgarleikhúsinu. MynD/JónAtAn GrétArSSon 1 . m a Í 2 0 1 8 Þ r i ð J u D a G u r26 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð menning 0 1 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F A 3 -6 1 6 8 1 F A 3 -6 0 2 C 1 F A 3 -5 E F 0 1 F A 3 -5 D B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.