Fréttablaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 62
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Ég er bæði íhaldssamur og þrjóskur. Þegar ég hef fundið eitthvað sem mér líkar vel
við, þá held ég um það heljartaki
fram á síðustu stundu. Ég legg í
sama bílastæðið, sit við sama enda
fundarborðsins, panta mér sömu
réttina af matseðlunum og þannig
mætti lengi telja. Það má því segja
að mér sé illa við breytingar.
Ég hef ásamt öðrum rekið fyrir-
tæki í sama húsnæðinu undan-
farin tíu ár. Í dag rennur leigu-
samningurinn út. Með ævikvöld
leigusamningsins í huga hef ég
haft augun opin fyrir skrifstofu-
húsnæði sem gæti hentað undir
reksturinn. Ég hef haft augastað
á einu tilteknu leigurými undan-
farnar vikur og í huga mínum
hafði ég tekið ákvörðun um að
flytja þangað. Þegar samstarfsfólk
mitt skaut að mér öðrum hug-
myndum hummaði ég þær fram af
mér – ég var búinn að finna eitt-
hvað sem mér líkaði vel við.
Á allra síðustu metrum leigutím-
ans togaði nánast einn samstarfs-
maður minn mig með sér að skoða
nýtt húsnæði sem hann hafði séð
auglýst. Ég féllst á að fara með
honum, gera honum til geðs. Þetta
yrði í mesta lagi klukkustund úr
mínu lífi, sem ég fengi ekki aftur.
Þegar á staðinn var komið féll ég
fyrir húsnæðinu og í dag flytjum
við skrifstofuna okkar þangað.
Ég er mjög spenntur fyrir flutn-
ingunum og þeim nýju tímum sem
breytingunum fylgja. Kannski eru
breytingar ágætar eftir allt saman?
Það hlýtur að minnsta kosti að
vera betra að setja markið hátt og
hitta ekki alltaf, heldur en að miða
lágt og hitta. Ég er ánægður með
breytingarnar en ég er fyrst og
fremst ánægður með félaga minn,
sem gafst ekki upp fyrir þrjósk-
unni í mér.
Breyttir tímar
Hauks Arnar
Birgissonar
BAkþAnkAR
Í dag er
góður dagur.
Bræðingur er
bátur dagsins
á 649 kr.
0
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
3
-5
C
7
8
1
F
A
3
-5
B
3
C
1
F
A
3
-5
A
0
0
1
F
A
3
-5
8
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K