Fréttablaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 3
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 0 1 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 1 . M a Í 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
skoðun Laugavegurinn verði
göngugata allt árið, skrifar Pawel
Bartoszek. 15
sport Haukar Íslandsmeistarar í
fjórða sinn. 14
Menning Í sýningunni Hin
lánsömu er dansinn í miklum
hávegum. 26
lÍfið Jóhanna Guðrún og Max
Petrov fengu fullt hús stiga í
þættinum Allir geta
dansað. 34
plús 3 sérblöð
l fólk l 1. MaÍ l
bÍlar
*Samkvæmt
prentmiðla-
könnun
Gallup
apríl-júní
2015
• Sex 30 milljóna króna vinningar á tvöfaldan miða
eða 15 milljónir króna á einfaldan miða
• Drögum út meira en 51 þúsund vinninga á árinu
Vinningar í hverri viku - Happdrætti DAS
Mestu vinningslíkurnar
- skynsamlegasti kosturinn
Vikulegir útdrættir
Fanney Davíðsdóttir er skynsöm og spila
r í Ha
ppd
ræt
ti D
AS
Kauptu miða á das.is eða í síma 561 77 57
Nýtt happdrættisár hefst í maí
HeilbrigðisMál „Þetta kemur ekk-
ert á óvart,“ segir Sirrý Arnardóttir,
framkvæmdastjóri Pieta-samtak-
anna. Fjórtán prósent svarenda í
nýrri könnun Maskínu fyrir Pieta
hafa stundum eða oft á síðustu
fimm árum haft áhyggjur af sjálfs-
skaða- eða sjálfsvígshugleiðingum
hjá sjálfum sér. 16 prósent hafa
sjaldan haft slíkar áhyggjur og 70
prósent segjast aldrei hafa þær.
Sirrý kveðst hafa kynnt Pieta-
samtökin víða. Fólk hafi þörf fyrir
að segja frá upplifun sinni í þessum
efnum. Þrátt fyrir það séu sjálfsvíg
enn tabú.
„Fólk getur ekki sagt orð eins og
sjálfsvíg, féll fyrir eigin hendi, tók
sitt eigið líf. Fólk á erfitt með að nota
orðin. Hvað er það annað en tabú?“
Niðurstöður könnunar Maskínu
benda til að tekjulágt fólk sé líklegra
en tekjuhátt til að hafa áhyggjur af
skaða- eða sjálfsvígshugsunum.
Um 32 prósent þeirra sem eru
með 400 þúsund krónur eða minna
í mánaðarlaun höfðu stundum eða
oft haft áhyggjur af slíku. Það gildir
hins vegar um aðeins 11 prósent
þeirra sem voru með tekjur á bilinu
550 til 799 þúsund krónur.
Ríflega 28 prósent einhleypra
höfðu stundum eða oft haft slíkar
áhyggjur síðustu fimm árin, en
einungis 9 prósent þeirra sem eru í
hjónabandi eða sambúð.
Sirrý hvetur þá sem eru með
sjálfsvígshugsanir eða að hugsa um
að skaða sig til þess að hafa sam-
band við Pieta-samtökin í síma
5522218 og fá ókeypis aðstoð.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt
Maskínu, sem er netpanell og er
dreginn af handahófi úr Þjóðskrá.
Svarendur voru af báðum kynjum á
aldrinum 18-75 ára. Svarendur voru
891 og voru gögnin vigtuð með tilliti
til kyns, aldurs og búsetu. – jhh
Margir íhugað sjálfsvíg
Fjórtán prósent svarenda í könnun Maskínu hafa haft áhyggjur af sjálfsskaða-
eða sjálfsvígshugleiðingum. Vandinn er meiri hjá tekjulágum og einhleypum.
verslun „Við afnemum alla afslætti
og bjóðum upp á lægsta eldsneytis-
verð á landinu, án nokkurra skil-
yrða,“ segir Rakel Björg Guðmunds-
dóttir, markaðsstjóri Atlantsolíu
sem frá deginum í dag selur bensín
og dísilolíu á sama verði og Costco.
Atlantsolía lækkar verð á bensíni
og dísilolíu á stöð sinni í Kaplakrika
í Hafnarfirði. Bensínlítrinn fer úr
211,9 í 189,9 krónur og dísillítrinn
úr 204,3 krónum í 182,9 krónur.
„V i ð t e l j u m
okkur hafa svig-
rúm til að bjóða
öllum þetta verð,
núna, á þessari
stöð án meðlima-
gjalda eða
s é r st a k ra r
skráningar,“
segir Rakel.
– smj /
sjá síðu 2
Boða verðstríð
í eldsneytissölu
28%
einhleypra hafa íhugað
sjálfsvíg eða sjálfsskaða.
Dýrfinna Arnardóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir lyfta Íslandsmeistarabikarnum í körfuknattleik eftir sigur Hauka á Val, 74-70, í æsispennandi oddaleik í gærkvöldi. Sjá Sport 14 Fréttablaðið/SteFán
0
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
3
-5
C
7
8
1
F
A
3
-5
B
3
C
1
F
A
3
-5
A
0
0
1
F
A
3
-5
8
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K