Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 2
2 4. maí 2018fréttir R óbert Wessman, forstjóri og stofnandi Alvogen, og við- skiptafélagar hans fjárfestu í fjórum glæsilegum lúxus- íbúðum á Siglufirði. Íbúðirnar eru í sögufrægu húsi við Hlíðarveg 20 í bænum, sem áður hýsti grunn- skóla bæjarins og gengur undir nafninu „Gagginn“ meðal bæjar- búa. Skólahúsinu hefur nú verið umbreytt í íbúðarhúsnæði sem inniheldur 15 lúxusíbúðir. Með- al annars fjárfestu Róbert og fé- lagar í tveimur penthouse-íbúð- um á efstu hæð hússins. Kaupverð eignanna liggur ekki fyrir. Leikvöllur hinna ríku og frægu Gríðarleg uppbygging hefur átt sér stað á Siglufirði undanfarin ár og virðist ekki sjá fyrir endann á henni. Stærstan þátt í henni á, að öðru ólöstuðum, Róbert Guð- finnsson, sem dælt hefur fjár- magni í sinn gamla heimabæ og hefur sérstaklega horft til ým- iss konar ferðaþjónustu. Meðal annars hefur Róbert fjárfest fyr- ir hundruð milljóna í glæsilegum golfvelli sem ráðgert er að opna á þessu ári. Þessar fjárfestingar virð- ast svo sannarlega vera að skila sér því ýmislegt bendir til þess að Siglufjörður og nærliggjandi svæði sé að verða leikvöllur hinna ríku og frægu. Grunnskólinn gamli, sem lyf- jaforstjórinn fjárfesti í, var teikn- aður af Guðjóni Samúelssyni og byggður á sjötta áratug síð- ustu aldar. Sveitarstjórn Fjallabyggðar aug- lýsti hús- ið til sölu í febrúar 2015 og keypti fyrirtækið Gagginn ehf. fasteign- ina með það að leiðarljósi að út- búa þar lúxusíbúðir. Eins og áður segir keyptu Róbert og viðskipta- félagar hans tvær penthouse- íbúðir hússins sem eru 106 og um 80 fermetrar að stærð. Að auki fjárfestu þeir í tveimur íbúðum á neðri hæðum hússins sem báðar eru tæplega 150 fermetrar. Fyrirtækjaflétta að auðmannasið Eins og íslenskra auðmanna er siður þá var sett upp flókið net fyr- irtækja í kringum fjárfestinguna. Þannig á félagið Hlíðarvegur 20 ehf. fasteignirnar fjórar en það fé- lag er síðan í 100% eigu Aztiq fjár- festingar ehf. Það félag er síðan í 100% eigu Aztiq Partners AB og til að flækja málið enn frekar er það ágæta félag í eigu enn fleiri fyrirtækja og sjóða. Í ítarlegri út- tekt Morgunblaðsins á dögunum kom fram að eignarhlutur Róbert Wessman í Aztiq Partners AB væri 74% í gegnum eignarhaldsfélag- ið Hexalonia Holdings í Lúxem- borg. Viðskiptafélagar hans, Árni Harðarson og Divya Patel, ættu síðan 24% hlut í gegnum önnur félög. Samkvæmt Fasteignaskrá gengu kaupin á íbúðunum á Siglu- firði í gegn um áramótin 2016– 2017 en síðan hefur farið drjúg- ur tími í að standsetja þær með glæsilegum hætti. Á dýrustu íbúð sem Íslendingur hefur keypt Fjárfestingar Róberts í fasteign- um hafa vakið athygli fjölmiðla undanfarin misseri. Á svipuð- um tíma og Róbert keypti eign- irnar á Siglufirði fjárfesti hann í glæsilegri íbúð á Manhattaneyju í New York-borg. Kaupverðið var litlar 29 milljónir bandaríkjadala, sem samsvaraði 3,3 milljörð- um króna á gengi þess tíma. Íbúðin, sem er í fjölbýlis- húsi við 423 Park Avenue, er 373 fermetrar að stærð og er íburðurinn gríðar- legur. Í umfjöllun frétta- miðla kom fram að án efa væri um að ræða dýr- ustu íbúð sem Íslendingur hefur átt. Í ágúst 2017 fjárfesti Róbert, ásamt fyrr- greindum viðskiptafélögum, í glæsilegri íbúð á Vatnsstíg 20–22 í Skuggahverfi og var því slegið upp í helstu fjölmiðlum. Íbúðin er 314 fermetrar að stærð og var Guð- mundur Kristjánsson í Brim selj- andi eignarinnar. Þar býr Róbert, þegar hann er staddur á Íslandi, ásamt kærustu sinni, Ksenia Vlad- imirovna Shakmanova, og börn- um hennar. Ekki kom fram að Róbert og fé- lagar hans fjárfestu einnig í þremur öðrum íbúðum í húsinu. Annars vegar um 174 fer- metra íbúð á 10. hæð hússins sem og tvær íbúðir, 173 og 136 fermetra, á 7. hæð hússins. n hlutir til að segja við Sjálfstæðisflokkinn þegar hann hringir Sjálf- stæðis- flokkurinn hefur ræst úthringiverið í Valhöll fyrir komandi borgar- stjórnarkosningar. Hafa margir kjósendur og innflytjendur fengið áminningu um að kjósa flokkinn og ná borginni aftur úr klóm vöfflugerðarmeistarans í Vest- urbænum. Af því tilefni hefur DV tekið saman fimm hluti sem er hægt að segja þegar Sjálfstæðis- flokkurinn hringir. „Voru þið búnir að skila pen- ingunum frá FL Group?“ „Er Eyþór kominn með prófið aftur? Getur hann skutlað mér á kjörstað?“ „Verður þá sami matur í Ráð- húsinu og í grunn- skólunum?“ „Ég skal kjósa ykkur ef ég fæ sæti í stjórn Orkuveitunnar og Faxaflóahafna.“ „Af hverju er Hildur hávaxnari en Eyþór á öllum myndum nema sérstökum fram- boðsmyndum?“ Í þeirri menningarlegu eyðimörk sem virðist einkenna fjölmiðla- landslagið hér á landi þá er hin dularfulla heimasíða Ástu B, Bókaskápur Ástu B, þakklátt frí frá nýjustu tíðindum af meðal- mennskunni í Eurovision. Umsjónarmaður síðunnar birtir smámola um bókmenntir á hverj- um einasta degi, þar sem farið er yfir allt og ekkert á fróðlegan og skemmtilegan hátt. Það er ljóst að Ásta B er dulnefni, en Hallgrímur Helgason rithöfundur ljóstraði hugsanlega upp um höfundinn í pistli sem hann birti á síðunni, en þar heldur hann því fram að Ásta sé hliðarsjálf Snæbjörns Arngríms- sonar, sem stofnaði bókaforlagið Bjart, en sá er þekktastur fyrir að hafa komið Harry Potter-bókunum í hendur ungmenna í íslenskri þýð- ingu. Það skiptir náttúrlega engu máli. Heimasíðan er frábær. Á þessum degi, 4. maí 1803 – Bjarni Bjarnason og Steinunn Sveinsdóttir dæmd til dauða fyrir að myrða maka sína árinu áður. Steinunn lést í fangelsi en Bjarni var aflífaður í Noregi 1805. 1880 – Jón Sigurðsson og Ingibjörg kona hans jarðsett í Reykjavík við hátíðlega athöfn. Hjónin létust ári áður í Kaupmannahöfn. 1904 – Byrjað að vinna að Panama- skurðinum. 1948 – Hvalstöðin í Hvalfirði opnuð. 1979 – Hin umdeilda Margrét Thatcher fyrsta konan sem tekur við embætti forsætisráðherra Bretlands. 1991 – Hin sænska Carola Häggkvist sigrar í söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva með laginu „Fångad av en stormvind“. Stefán og Eyfi syngja lagið Draumur um Nínu. Síðustu orðin Sagan segir að síðustu orð Humprey Bogart, mesta töffara allra tíma, hafi verið þessi: „Ég hefði aldrei átt að fara úr viskí í kokteila.“ – Humprey Bogart Róbert Wessman kaupir 4 lúxusíbúðir á Siglufirði Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Gagginn á Siglufirði Skólahúsið gamla hefur gengið í endurnýjun lífdaga. LOFið – Valur Grettisson, rithöfundur og ritstjóri Reykjavík Grapevine, á lof vikunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.