Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 13
4. maí 2018 fréttir 13 Hallgrímur Helgason Á einn beittasta pennann í bransanum sem stingur svo auðveldlega á graftarkýl- um samfélagsins. Mætti alveg fara að brýna hann betur. Heimir Hallgrímsson fékk íslenska knattspyrnumenn til að hlusta og gera eins og hann segir og lands- liðið tapar varla leik. Helgi Seljan Ef Helgi situr fyrir framan þig og spyr þig ágengra spurninga þá eru allar líkur á því að þú sért með allt niðrum þig. Hildur Lilliendahl Holdgervingur femínismans á Íslandi, jafnvel öfgafemín- isma segja sumir. Umdeild, elskuð og hötuð. Jón Viðar gagnrýnandi Af honum má læra að vera óhrædd að tjá skoðanir okkar, mýktina og taktinn verðum að sækja annað. Ómissandi fyrir íslenskt samfélag. Þorir þegar aðrir þegja. Katrín Jakobsdóttir Hefur áru sem pólitíkusar myndu drepa fyrir að hafa. Hún getur verið í stjórn, stjórnarandstöðu, ráðherra, þingmaður eða stigavörður í spurningar- leik, það getur eng- um verið illa við hana, nema kannski þeir sem hrópuðu húh undir orðum VG þegar sendi átti Sjálfstæðisflokk- inn í útlegð. Í staðinn giftist Katrín honum Bjarna sínum. Sonur þeirra er ættleiddur og heitir Þórólfur Gísla- son og hann á barn sem heitir Sigurður Ingi. Hún kennir okk- ur, sem við vissum, að ekkert er að marka það sem sagt er í að- draganda kosninga. Kári Stefánsson Væri uppáhald allra ef hann væri ekki svona geðstirður. Er reyndar uppáhald sumra einmitt vegna þess. Kolbrún Bergþórsdóttir Drottning bókagagnrýnenda. Þó hún sé sanngjörn og kurteis þá viltu síður gefa út bók sem hún er ekki ánægð með. Nokkur vel valin orð frá Kollu og bók- in deyr í hillunni eða lesendur mynda röð. Logi Bergmann Eiðsson Bendir okkur á hluti sem við vit- um en vorum ekkert að pæla í. Og predikar og stendur við sína jákvæðu möntru, að vera alltaf léttur. Jafnvel þegar maður er í lögbanni. Illugi Jökulsson Ef Illugi veit ekki svarið veit það enginn. Hefur mótað útvarp og fjölmiðla. Magnús Tumi Guðmundsson segir okkur hvort það sé farið að gjósa og hvað við eigum að gera ef svo er. Og við hlustum og hlýðum og jafnvel hlaup- um. Hann getur sett okkur algjörlega út af laginu, svo við jafnvel leggjum á flótta þegar geðveikir miðlar spá jarð- skjálfta í Grindavík. Páll Óskar Hjálmtýsson Jákvæði diskókóngurinn sem hjálpaði til að gera samfélagið þannig að allir eigi rétt á að vera með. Rut Káradóttir Þú getur verið nokk- uð öruggur um að fólki mun finnast heimilið þitt spennandi ef Rut hefur hannað það eða raðað því upp. Það gæti jafnvel dugað að segja bara að hún hafi gert það. Sema Erla Serdar Sú sem berst fyrir litla manninn sem á að sparka úr landi þar sem ætti að vera nægt pláss fyrir alla. Fær holskelfu hótana en heldur áfram. Við erum ein fjölskylda. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Hún kennir okkur að láta draumana rætast en þessi merka kona stofnaði Kvenna- blaðið og gefur ekkert eftir. Hún er einn okkar fremsti lista- maður og kletturinn sem eigin- maðurinn styður sig við þegar hann þarf að kasta mæðinni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Maðurinn getur ekki fengið sér kökubita án þess að vera annaðhvort úthúðað eða hrósað í hástert fyrir vikið. Hefur fengið og fær eflaust enn fullt af góðum hugmynd- um fyrir land og þjóð. Á í smá basli með framsetninguna. Skúli Mogensen Er eða verður fyrirmynd og áhrifavaldur þeirra viðskiptamanna sem taka stórt upp í sig og leggja mikið undir. Eða hvað? Sólrún Diego er í leiðtogasætinu í baráttunni við óhreinindin. Sú eina sem getur þrifið vatn með vatni og þrif- ið það vatn með ed- iki. Tara Margrét Vilhjálmsdóttir Það er í fínu lagi að vera feitur og fólk með spik þarf ekkert að skammast sín. Það eru þeir sem finnst það ekki í lagi sem eiga að skammast sín. Tara kennir Íslendingum vera óhræddir við að koma fram nákvæm- lega eins og þeir eru. Vigdís Finn- bogadóttir Hún gæti sagt okkur að ganga fram af bjargi og við myndum þramma af stað. Væri dýrlingur ef við værum kaþólsk. Þorgrímur Þráinsson Menn mega gantast með tóbaks- Togga, en reykingar hafa snarminnk- að. Hann dælir út bókum með jákvæðum boðskap til barna og ung- linga. Gott karma, nema þegar hann gagnrýnir konur fyrir að hanga á Face- book og horfa ekki í augu barna sinna á meðan þær gefa þeim brjóstamjólk. Þau stjórna því hvernig þú hugsar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.