Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 46
46 bleikt - kynlíf 4. maí 2018 „Ætla að steinhalda kjafti yfir órum mínum um að hann bindi mig fasta við rúm og flengi mig duglega áður en hann tekur mig harkalega Elsku Birna Þ ú ert ekki óeðlileg og þú ert ekki pervert – svo við höfum það á hreinu! Það sem fólk kýs að gera saman í kynlífi og er gert með samþykki allra aðila er hluti af heil- brigðu kynlífi og kyntjáningu. Samþykki er töfraorðið! Þetta er nýja lífið þitt og það er ENGIN ástæða til að endurtaka mistökin úr því síðasta. Kynferðisleg þögn milli para er skelfilegur hlutur – kannski ekki skelfi- legur eins og járnbrautarslys eða að lenda undir píanói úti á götu – frekar eins og að ganga um heilan áratug í skóm sem eru of þröngir, hælsærið fær aldrei að jafna sig og það endar með sýkingu og svo þarf að fjarlægja hælinn. Úff! Þú ert á dásamlegum aldri – aldrin- um þar sem þú ert eflaust búin að gera þér grein fyrir að þú átt vonandi 20 eða 30 góð ár eftir, en skilur líka hverfulleikann – þetta gæti allt endað á morgun ef þú færð loftstein í hausinn í Bankastrætinu. Hver hrukka er tilefni til að skála í Prosecco, hver millimetri sem brjóstin síga er sig- ur, og hver einasti dagur dásamleg gjöf. Spáðu aðeins í hvað gæti gerst ef þú ákveður að stíga inn í sannleikann og hafa hann að leiðarljósi í næsta sam- bandi (sambandi segi ég og á þá við næstu tengingu sem þú nærð við einstak- ling andlega/kynferðislega hvort sem um verður að ræða þriggja stunda sælu eða samband sem endar þegar annað ykkar deyr). Ég sé þrjá möguleika: n Hann kann að meta að þú treyst- ir honum fyrir órum þínum og löngun- um. Hann er sjálfur reyndur í Shibari- bindingum (flettu því upp ef þú þekkir ekki hugtakið), og er einmitt búinn að vera að leita að konu sem er til í sjóðheitt en jafnframt innihaldsríkt bindinga- og tilfinningasamband með honum. n Hann kann að meta að þú treystir honum fyrir órum þínum og löngunum. Hann er óreyndur á sviðinu en finnst spennandi að skoða möguleikana með þér. n Hann hneykslast/verður hræddur/ óöruggur þegar þú treystir honum fyr- ir órum þínum og löngunum. Hann er greinilega ekki til í þetta. Hann stingur fingrum í eyrun og byrjar að syngja Óla prik mjög hátt – svo hleypur hann út af kaffihúsinu og gleymir að borga. Ef svo ólíklega vill til að númer 3 verði niðurstaðan er líka eins gott að þú opn- aðir þig. Myndirðu virkilega vilja eyða tíma þínum í mann sem væri ekki einu sinni til í að spá í þessa hluti með þér? Ég held nefnilega ekki! Vonandi hjálpar þetta eitthvað, mín kæra. Til hamingju með nýja lífið og áfram konur með eðlilega óra og þarfir! Ragga Elsku Ragga É g hef fylgst með skrifunum þínum í langan tíma og lært svo margt af þér. Núna er ég nálægt fimmtugu, ný- skilin og finnst lífið vera að breyt- ast á ógnarhraða. Eins og ég hafi búið í einhverjum helli og sé að koma út til að skoða lífið í fyrsta sinn, kannski næstum því fyrsta sinn því í kringum tvítugt átti ég nokkur villt ár. Smá um hjónabandið, ég held að það gæti skipt máli: Við vorum skotin sem unglingar og þekktumst í skóla. Hittumst aftur skömmu eftir tvítugt og byrjuðum saman – ég hafði aldrei fengið fullnægingu sjálf en hann var líklega venjulegur gaur sem stundaði sjálfsfróun tvisvar á dag. Þetta var líklega frekar dæmigert, ég varð ólétt fljótlega, hann menntaði sig og ég aðeins síðar. Börnin urðu þrjú og svo sem ekkert vesen með þau. Við vorum alltaf ágætis vinir en ég get ekki sagt að kynlífið okkar hafi nokkurn tíma náð almennilegu flugi. Ég ákvað um 25 ára aldurinn að taka ábyrgð og lærði að fróa mér – það var mitt einkaverkefni og hann tók ekki þátt. Ég fékk það mjög sjaldan í okkar sam- eiginlega kynlífi en stundaði sjálfsfró- un í einrúmi allt að því daglega, en mánaðarlega þegar minnst var. Ég hef alltaf haft óra um ýmislegt sem gæti líklega ekki talist til eðli- legs kynlífs, bindingar, flengingar og þannig hluti, en ég hélt þeim fyrir mig því ég hugsa að mað- urinn minn hefði hrein- lega ekki þolað að heyra um þá. Hann hefur alltaf verið ótrúlega hefðbundinn, vinn- ur í jakkafötum, elskar kjötsúpu og slátur og vill hafa samfar- ir í trúboða- stellingunni með ljósin slökkt (þessu orðalagi stal ég frá þér, Ragga, en svona var hann og er). Þetta hefur ef- laust ekki styrkt okkar samband, enda uxum við í sund- ur og þegar síð- asta barnið flutti að heiman sáum við að skilnaður væri raunhæfur kostur. Þetta var fyrir einu og hálfu ári. Fyrstu mánuðirnir fóru í að koma mér fyr- ir á nýjum stað, en í lok fyrsta ársins skráði ég mig á Einkamál. Sú reynsla var ekki beinlínis uppörvandi, skilaboðum rigndi svo sem inn, en aðallega frá karlmönn- um sem vildu sýna mér liminn á sér eða greiða mér fyrir kynlíf. Ekki alveg minn te- bolli, svo ég fékk mér Tinder í símann, eft- ir mikla hvatningu tveggja vinkvenna. Það hefur verið mun skárra, enda eru menn þar yfirleitt með myndir og geta ekki einu sinni sent kynfæramyndir gegnum app- ið þótt eflaust væru einhverjir til í það. Til að gera langa sögu stutta þá er ég búin að hitta mann sem ég er mjög til í að sofa hjá. Hann er fyndinn og skemmtilegur og við erum búin að hittast þrisvar í kaffi og kvöldverð. Núna finn ég samt stressið hellast yfir mig og stend sjálfa mig að því að ætla að steinhalda kjafti yfir órum mín- um um að hann bindi mig fasta við rúm, bindi fyrir augun á mér og flengi mig dug- lega áður en hann tekur mig frekar harka- lega. Úff, það er smá erfitt meira að segja að skrifa þetta. Þú sérð kannski núna hvar ég er stödd. Mig langar en ég hef aldrei opn- að mig og er drulluhrædd um að hann muni dæma mig sem einhvern pervert og hafna mér. Ég er samt að streitast á móti því það síðasta sem ég vil er annað lang- tímasamband þar sem þessir hlutir eru ósagðir. Hvað á ég að gera? Með fyrirfram þökkum og þrá eftir svari, Birna Birna þráir bindingar n Vill láta flengja sig n Aldrei opnað sig n Karlinn vildi bara hefðbundið kynlíf með ljósin slökkt Ragnheiður Eiríksdóttir Skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.